blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 5
blaöió
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007
FRETTIR
5
GUTTORM VIK
► Guttorm Vik kom til starfa í
sendiráði Noregs í sept-
ember 2003. Hann hóf störf
í norsku utanríkisþjónust-
unni 1972. Starfsvettvangur
hans hefur einkum verið á
sviði fjöihliða viðskiptasam-
starfs.
► Guttorm lætur af störfum á
íslandi íiokjúlí.
þeirra til að leysa önnur vandamál,
eins og bent var á skynsamlegan
hátt í forystugrein í Morgunblað-
inu. Mér finnst undarlegt hvernig
sumir hafa fjallað um þessi mál.
Það voru íslendingar sem óskuðu
eftir þessum viðræðum en hér hafa
menn verið að skrifa um Gamla
sáttmála frá 1262,“ tekur Guttorm
fram.
Keppni í töffaraskap
Hann segir að það sé eins og að
keppni ríki meðal íslenskra stjórn-
málamanna um hver þeirra sé töf-
fastur og slái best skjaldborg um
hagsmuni þjóðarinnar. Spurður
hvort slíkt sé óeðlilegt segir hann:
„Já, að einu leyti, því að í Noregi
hef ég aldrei upplifað að stjórnmála-
menn komist jafnharkalega að orði
eins og gerst hefur hér.“
Stefán Snævarr, prófessor í heim-
speki við Háskólann í Lillehammer,
sá hins vegar ástæðu til að koma með
ábendingu í grein nú í apríl í Aften-
posten vegna ummæla blaðamanns
þar um ófágað orðbragð íslenskra
stjórnmálamanna. Bendir Stefán á
að 1994 hafi Bjítrn Tore Godal, sem
þá var ráðherra, sagt að hann ætti
ekki í samningaviðræðum við þá
sem brotist hefðu inn í hús hans
þegar hann var spurður hvort Norð-
menn hygðust semja við íslendinga
um fiskveiðar í Smugunni. Stefán
bendir á að veiðar íslendinga þar
hafi ekki verið ólöglegar.
„Þetta var fyrir 13 árum. Ef menn
skoða það sem íslenskir stjórnmála-
menn sögðu þá um Noreg munu
menn finna verri yfirlýsingar en
þetta,“ tekur Guttorm fram.
Hann tekur nýrra dæmi um harka-
leg ummæli íslensks ráðamanns.
„Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi
forsætisráðherra, sagði til dæmis í
fyrra að norski olíusjóðurinn hefði
reynt að stuðla að óstöðugleika í
íslensku efnahagslífi í ábataskyni
þegar íslenska krónan féll snemma
á síðasta ári. Sjóðurinn hafði keypt
íslensk skuldabréf og selt þau vegna
þess að krónan var orðin of há. Það
sló enginn norskur fjölmiðill þessu
upp. Eg held að mönnum hafi þótt
þetta of mikið af því góða. Ég er viss
um að enginn norskur forsætisráð-
herra hefði sagt að nú hefði ísland
reynt að skapa óróleika í norsku
efnahagslífi."
Góð samvinna
Guttorm bendir á að flestir Norð-
menn séu mjög jákvæðir í garð
Islands, eins og komið hafi fram
í alþjóðlegri rannsókn sem kynnt
var á fundi Verslunarráðs íslands
fyrr á þessu ári. Almennt hafi sam-
vinna þjóðanna verið mjög góð og
batni stöðugt. „Samvinna okkar
innan Evrópska efnahagssvæðisins
er mjög góð og það er mikilvægt
fyrir bæði löndin. Samvinna okkar
á sviði menningarmála er einnig
mikil auk þess sem grasrótarsam-
starfið er gott. Samvinna okkar
um flest og mikilvægustu fiskveiði-
málin er jafnframt góð. Það eru allir
sammála um að ekki megi veiða of
mikið eða stunda brottkast. Það eru
allra hagsmunir að reglum sé fylgt.
Það eru einnig sameiginlegir hags-
munir okkar að öryggi á Norður-
höfum sé tryggt. Þegar samvinnan
á því sviði verður enn meiri held ég
að tortryggnin minnki."
Eftirmaður Guttorms þekkir vel
til á íslandi. „Margit Tveiten var
sendiráðsritari á íslandi fyrir 15
árum. Hún talar reiprennandi ís-
lensku sem ég geri ekki. Mér finnst
íslenska málfræðin sú erfiðasta í
heimi. Margit, sem er lögfræðingur,
spilaði fótbolta með Kristrúnu
Heimisdóttur í KR og það var hún
sem hvatti Kristrúnu til að læra lög-
fræði. Ég er mjög ánægður með að
Margit og eiginmaður hennar, Jon
Bech, sem er jafngeðþekkur og hún,
skuli taka við af mér og Torbjírg á
Islandi."
Sjálfur flyst Guttorm, sem finnst
rússnesk málfræði rniklu auðveld-
ari en íslensk, til Vínar til að gegna
starfi sendiherra hjá Fastanefnd
Noregs hjá ÖSE.
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Vagnhöfða 25 112 Reykjavík sími 567 4455 fax 567 4453
Án viðbaptts syKurs!
Án viðbaptts salts!
Kjamgóð napring í þafgilegum umbúðum bar
Kaup Geysis Green Energy á 32% hlut í Hitaveitu Suðumesja
Þáttaskil í orkumálum
Svandís Svavarsdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri
grænna, segir nýjan
samning sem tryggir
einkafyrirtæki 32 pró-
senta hlut í Hitaveitu
Suðurnesja brjóta blað í
orkumálum Islendinga.
Svandís átelur fyrri rík-
isstjórn fyrir að hafa selt
15,2 prósenta hlut ríkis-
ins í Hitaveitunni án
opinberrar umræðu til
einkaaðila og núver- ustunni á markað," segir Svandís.
andi ríkisstjórn fyrir Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
hafa setið hjá aðgerð- ráðherra segir vera skýrt að það
arlaus á meðan um- sé ekki á dagskrá sitjandi ríkis-
ræddir samningar stjórnar að beita sér fyrir einka-
vorugerðir. væðingu orkufyrirtækja. „Ég er
„Það er gríðarlega sama sinnis og viðskiptaráðherra
mikilvægtaðalmenn- sem hefur lýst því yfir að það væri
ingur í landinu átti eðlilegt að undanfari allra slíkra
sig á því hvaða þátta- áforma væru víðtækar umræður í
skil eru hér á ferð samfélaginu öllu,“ segir Össur.
þegar verið að setja elias@bladid.net/ejg
hluta af grunnþjón-
Hámark grasfrjó-
korna nálgast
Á Islandi er miðkafli grasfrjó-
kornatímabilsins að ganga í garð en
þá ná frjókornin yfirleitt hámarki.
Þessi kafli byrjar alla jafna í lok
júlí eða byrjun ágúst en í ár gæti
hann orðið fyrr vegna blíðunnar
sem hefur verið á landinu að und-
anförnu, að sögn Margrétar Halls-
dóttur, jarðfræðings hjá Náttúru-
fræðistofnun íslands.
I Reykjavík mældist grasfrjó langt
yfir meðaltali frá lokum júní fram
í byrjun júlí. Það minnkaði hins
vegar verulega upp úr 5. júlí og hefur
síðustu daga mælst undir meðaltali.
Talið er frjómagnið hafi minnkað
vegna þess að tún voru slegin og hirt
við Bústaðaveginn. Aukinn raki síð-
ustu daga hefur einnig átt þátt í því
að draga úr dreifingu frjókorna.
Á Akureyri hefur magn grasfrjó-
korna hins vegar verið í kringum
meðaltalið. Segir Margrét að þar
komi norðanáttirnar við sögu sem
hafa verið ráðandi þar undanfarið
en þegar suðlægar áttir eru á Akur-
eyri er mikið af frjókornum.
hbv
Almarkaður-
inn a iði
Eftir að Alcoa laut í lægra haldi
fyrir Rio Tinto í slagnum um
Alcan hefur gengi fyrirtækisins
hækkað. Ástæðan er sú að nú
er talið líklegt að gert verði
yfirtökutilboð í Alcoa. Stærsta
námafyrirtæki í heimi, BHP
Billiton, hefur einkum verið
nefnt í því samhengi. Gengi Rio
Tinto hefur aftur á móti lækkað
enda er ljóst að skuldir fyrirtæk-
isins munu hækka mikið gangi
kaupin á Alcan í gegn. Forsvars-
menn Rio Tinto hafa gefið það
út að hlutar úr rekstri fyrir-
tækisins verði seldir til þess
að mæta skuldunum, þeirra á
meðal fullvinnsluhluti Alcan.
Frábært uppsláttawerk fyrir
alla semfást við matargerð,
frá byrjanda til meistara,
og ómissandi 1'hverju eldhúsi.
Sex aðgengilegir efnisflokkar ná til
allra þátta og tilbrigða á matseðlinum
með einföldum forréttum og súpum,
seðjandi aðalréttum, Ijúffengum
pottréttum, ferskum og léttum
sumarsalötum, spennandi grillréttum, Sg
matarmiklum og lystilegum bökum og
búðingum og framandlegum,
sterkkrydduðum og bragðmiklum
réttum.
Pt'n
"I 1 flc
fili
Skjaldborg
Nyja kjúklingaréttabókin loksins komin út
m