blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 6
6 FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 blaöiö Glæsileg gisting í boði! Allt innifalið í 11 daga - frá aðeins Ótrúlegt verð! - frá aðeins Allt inniTano i n aaga - tra aoeins M i 84 945 kr ^y.yyo kr. ® ® !*■ • *NptuprrS á mann mprS 1D ODO kr 18,des.-aukafl f°: des' ~ uPPselt 24Jian~°^SætÍlaus 3 fik “ °rfa sæti laus 3. feb. - aukaflug Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti. Hjón með 2 börn, 2-11 ára, 4. janúar, 11 nætur, El Cortijo - íbúðir. Beint morgunfiug . rneð íslensku í'u9fe'a9' * Hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð 2. eða 9. janúar, í íbúð með 2 svefn- herbergjum á Parquem^r. Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti. Beint morgunfiug . með íslensku flugfelagi Skíðaferðir Frá aðeins 78.990 kr. 29.990 kr. Frá aðeins nóv. - 7 nætur 5. des 1 i nætur aes. - 73 nætur Flugsæti með sköttum. Fargjald A. Beint morgunflug . með ístensku flugfelag« Fiug með Primera Air Það er íslenska flugfélagið JetX sem annast allt leiguflug Primera Air fyrir Heimsferðir á Islandi og fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera Travel Group í Skandinavíu. Þjónusta um borð er fyrsta flokks og að sjálfsögóu á íslensku. Mutuiu MasterCard fcrAaát’ísunlnat^xt ' Vffi . k»*g**- Heimsferðir Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyrí sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 Dóminíska Tenerife Jamaica 8 dagar - frá aðeins 98.490 kr. Kanarí Ótrúlegt verð! - frá aðeins 43.395 kr. Þingmaður gagnrýnir lögreglu fyrir lélegt upplýsingaflæði Áttu að nota Útvarpið Mikil umferðarteppa myndaðist á Vesturlandsvegi f fyrrakvöld og náði bílaröðin um tíma alla leið á Grundartanga. Tvívegis þurfti að loka Hvalfjarðargöngum, hálftíma í senn, svo bílar sætu þar ekki fastir. Umferðarslys á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg er sagt meginorsök taf- anna. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gagnrýnir lög- reglu fyrir lélegt upplýsingaflæði. Tilkynning um slysið var birt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins og var sagt að tafirnar stæðu yfir í um tvo tíma. Þær stóðu hins vegar mun lengur og leystist ekki úr hnútnum fyrr en að ganga ellefu. Sjálfur lenti Jón í umferðarteppunni. „Það sem mér finnst gagnrýnivert í þessu er að fréttastofa Útvarps hafi ekki verið notuð til að koma skilaboðum til fólks um hver staðan væri. Benda þá fólki frekar á að bíða fyrir þá sem það vildu frekar," segir Jón. Árni Friðleifsson, varðstjóri lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir vegakerfið ekki anna umferð- inni ef út af bregður. Hann segir það reglu að haft sé samband við fjölmiðla, en aðstæður á vettvangi séu mismunandi og því geti tafir orðið á störfum lögreglunnar við vettvangsrannsókn. Árni bætir við að verið sé að skoða hvernig bæta megi upplýsingaþjónustuna. magnus@bladid.net 10 hættulegustu gatnamót Reykjavíkur ^WWSuðurgata/Hringbrau^^^ k vS^//r ^StfHringbraut/Njarðargata ■ 'MJsnm # Kringlumýrarbraut/Miklabraut utwLJr j ’ Miklabraut/Grensásvegur Vesturlandsvegur/Suðurlandsvegur # Bústaðávegur/Reykjanesbraut Miklabraut hættulegust ■ Kostnaður vegna tjóna í Reykjavík 12 milljarðar í fyrra ■ Slysa- og tjónatíðni lægri hjá 17 ára en 18 og 19 ára hópnum Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Miklubraut var hættulegasta og tjónamesta gata Reykjavíkur árið 2006 en þar urðu 462 tjón og slösuð- ust 139 einstaklingar. Fjölgaði slös- uðum þar um 45 prósent á milli ára en tjónum um 11 prósent. Af tíu hættuleg- ustu gatnamótum í Reykjavíkeru þrjú þeirra á Miklubraut, þrjú á Kringlu- mýrarbraut og tvö á Hringbraut. Forvarnarhús Sjóvár gefur út skýrslu um umferðartjón áhverju ári. Er skýrslan unnin út frá tölum frá Sjóvá sem eru framreiknaðar miðað við markaðshlutdeild. Umferðartjónum fjölgaði á öllum stærri götum Reykjavíkur í fyrra en þeim fækkaði hins vegar í hverfum þar sem hámarkshraði er 30 kíló- metrar. Kostnaður tryggingafélaga vegna tjónanna í Reykjavík jókst um rúmlega 40 prósent milli ára og nam um 4,6 milljörðum króna. Þegar kostnaði tjónvalda og samfélagskostn- aði er bætt við er áætlaður kostnaður 12 milljarðar króna. 85 kílómetra löng bílalest. I Reykjavík voru 9740 umferðartjón tilkynnt til tryggingafélaganna í fyrra og er það aukning um 35 prósent frá árinu 2005, samkvæmt nýrri skýrslu frá Sjóvá Forvarnarhúsi. Slösuðust 1234 einstaklingar í þessum umferðar- óhöppum og fjölgaði þeim einnig um 35 prósent. Rúmlega 41 prósent þeirra sem slösuðust í umferðaróhöppunum slasaðist i aftanákeyrslum. Tæplega 20 þúsund bílar skemmd- ust i þessum 9740 óhöppum. Ef sá fjöldi bíla yrði settur í eina bílalest yrði hún um 89 kílómetra löng og myndi ná frá Reykjavlk upp í Reyk- holt í Borgarfirði. Aftanákeyrslum fjölgar Aftanákeyrslur eru algengustu um- ferðaróhöppin en þeim fjölgaði um 25 prósent í Reykjavík milli áranna 2005 og 2006. Um 68 prósent tjóna á Kringlumýrarbrautinni voru aftaná- keyrslur og 66 prósent á Miklubraut- inni. Er áætlaður tjónakostnaður vegna þeirra 3,8 milljarðar, þegar kostnaður tryggingafélaga, tjóna- valda og samfélagskostnaður er tek- inn saman. Tjónamestu gatnamótin voru gatna- mót Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. Tjónakostnaðurinn var hins vegar mestur á gatnamótum Hring- brautar og Njarðargötu en hann er um 132 milljónir króna þegar tekinn er saman kostnaður tryggingafélaga, tjónvalda og samfélagskostnaðurinn. 72 prósent óhappa á gatnamótunum voru aftanákeyrslur. Slysatíðni hæst hjá 18 ára Tjónatíðni í Reykjavlk er mest eftir hádegi en einnigerhún mikil snemma á morgnana þegar ökumenn eru á leið til vinnu. Slysatíðnin er hins vegar mest seinni hluta kvölds og á nótt- BÍLAEIGN ► Skráðar bifreiðar á höf- uðborgarsvæðinu voru tæplega 154 þúsund talsins í desember 2006 sem er 68 prósent skráðra bifreiða í landinu. ► Milli áranna 2005 og 2006 fjölgaði skráðum bifreiðum um rúmlega 9 prósent. ► Tjón á höfuðborgarsvæðinu eru 71 prósent af heildar- tjónum á landinu, þar af 51 prósent í Reykjavík. unni. Kemur fram í skýrslu Forvarn- arhússins að þetta sé einmitt sá tími sem fleiri ungir ökumenn séu á ferð en á öðrum tímum sólarhringsins. Yngstu ökumennirnir eru líkleg- astir til að valda slysi. Er hlutfall slysa hjá yngsta aldurshópnum mun hærra en tjónahlutfallið í þeim aldurshópi. Samkvæmt skýrslu Forvarnarhússins stóðu 17 ára ökumenn sig þó betur en 18 og 19 ára hópurinn árið 2006. Það árið var slysatíðni hæst hjá 18 ára öku- mönnum eða 11 prósent. Hjá 19 ára hópnum var hún 7 prósent og 4,2 pró- sent hjá 17 ára. Tjónatíðnin þetta árið var tæp 4,2 prósent hjá bæði 18 og 19 ára hópnum en 2,6 hjá 17 ára. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.