blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 8
8 FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 blaöió Noröur-Kórea Slökkt á kjarnakljúfi Mohammed ElBaradei, yfir- maður Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar, hefur staðfest að Norður-Kóreumenn hafi slökkt á helsta kjarnakljúfi landsins í Yongbyon. ElBaradei sagði aðgerðina vera skref i rétta átt, en samkomulag náðist um það í febrúar síðastliðinn að Norður-Kóreumenn slökktu á kjarnakljúfínum í skiptum fyrir 50 þúsund tonn af olíu. Bretland Johnson vill stýra London Boris Johnson, þingmaður breska íhaidsflokksins, segist ætla að bjóða sig fram til borgarstjóra London á næsta ári. Johnson von- ast til að taka við borgar- stjórastólnum af Ken Living- stone, en þarf þó fyrst að hljóta útnefningu eigin flokks. Johnson er umdeildur og segist geta boðið íbúum höfuðborg- arinnar upp á nýjar og ferskar hugmyndir við stjórnun borgarinnar. Sjö létust í jarðskjálfta H Geislavirk efni láku úr kjamorkuveri ■ Jarðskjálftinn mældist 6,8 stig á Richterskvarða Eftir Atla Isleifsson atlii@bladid.net Sjö manns létust og fleiri hundruð manns slösuðust í öflugum jarð- skjálfta með upptök undan vestur- strönd Japans í gær. 1 Niigata-héraði eyðilögðust fjölmargar byggingar, vegir og brýr í skjálftanum sem mældist 6,8 stig á Richterskvarða. Hin látnu voru öll á sjötugs- og átt- ræðisaldri og urðu undir hrynjandi byggingum í bænum Kashiwazaki. Mikinn svartan reyk lagði frá kjarnorkuverinu í Kashiwazaki, því stærsta í heimi, eftir að eldur kom upp í straumbreyti. Forsvarsmenn kjarnorkuversins segja að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn og skemmdir orðið litlar. Nokkrum klukkustundum síðar var tilkynnt að vatn sem innihélt geislavirk efni hafi lekið út, en efnin sögð vera undir hættumörkum. Tugþúsundir heimila í Niigata-héraði eru án raf- magns og rennandi vatns vegna skjálftans, auk þess að þúsundum manna var gert að yfirgefa heimili sín vegna skjálftahættu. Síðdegis JARÐSKJÁLFTI í JAPAN ► Um 6.400 manns létust þegar skjálfti upp á 7,3 reið yfir japönsku borgina Kobe árið 1995. ► Japan er á einu virkasta jarðskjálftasvæði heims. ► Eldur kom upp í straum- breyti í stærsta kjarnorku- veri heims í kjölfar skjálft- ans. í gær skók annar jarðskjálfti Japan, en sá mældist 6,6 stig skók Japan og voru upptök hans nokkru sunnar en fyrri skjálftans. Skýjakljúfar vögguðu „Erfitt reyndist að halda jafnvægi í þær tuttugu sekúndur sem skjálft- inn stóð yfir,“ sagði Masao Honma, lögreglumaður í Kashiwazaki, í sam- tali við japanska fjölmiðla, og bætti við að sumir hafi farið undir borð en flestir flúið út úr húsi. Skýjakljúfar í höfuðborginni Tókýó, um tvö hundruð kílómetra frá upptökum skjálftans í Japanshafi, vögguðu þegar skjálftinn reið yfir. Jarðskjálftaæfingar Jarðskjálftar eru algengir í Japan þar sem landið er á einu virkasta jarðsskjálftavæði í heimi. Tæplega sjötíu manns létust í jarðskjálfta sem reið yfir svæðið í Niigata-héraði fyrir þremur árum síðan. Yfirvöld standa því reglulega fyrir sérstökum æfingum til að æfa viðbrögð við hamförum sem þessum. Shinzo Abe forsætisráðherra flaug til hamfarasvæðisins í gær og gerði þar með hlé á heimsókn sinni til borgarinnar Nagasaki þar sem hann hugðist sækja kosningafund vegna komandi kosninga til efri deildar þingsins. VILTU VITA MEIRA? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net TILBOÐ! Harðviðarpallaefni, Massaranduba 25 x 145 mm, lengd: 215 - 430 sm Einnig til hreinsiefni og olíur ... "j,.* ... HARÐVIÐARVAL -þegar þú kaupir gólfefni Krókhálsi 4 110 Reykjavík Sími 567 1010 www.parket.is Sjálfsvígssprengjuárásir í írak 90 létust í Kirkuk Um níutíu manns týndu lífi og tæplega tvö hundruð særðust þegar þrjár bílsprengjur sprungu í borginni Kirkuk í norðurhluta fraks í gærmorgun. Mannskæðari árásin átti sér stað þegar sjálfsvígs- sprengjumaður sprengdi vörubíl fylltan sprengiefnum á fjölmennu torgi nærri skrifstofum PUK-flokks- ins, stjórnmálaflokks Kúrda. Tugir bíla og fjöldi verslana eyðilögðust í sprengingunni sem myndaði nokk- urra metra djúpan gíg á torginu. Nokkrum mínútum síðar sprungu tvær bílsprengjur til viðbótar skammt frá þeirri fyrstu. Að sögn er búist við að tala látinna muni hækka enn frekar. Árásum hefur fjölgað í Kirkuk síðustu mánuði, en árás gærdagsins Bretland Vísa Rússum úr landi Bresk stjórnvöld hyggjast vísa fjórum rússneskum erindrekum úr landi, vegna ákvörðunar rússneskra stjórnvalda að neita að framselja Andrei Lugovoi, grunaðan morðingja Alexanders Litvinenkos, fyrrum rússnesks njósnara sem var myrtur í Lund- únum á síðasta ári. Rússarnir hafa ekki verið nafngreindir, en BBC segir þá starfsmenn rúss- nesku leyniþjónustunnar. David Miliband, utanríkis- ráðherra Breta, sagði í gær að ýmislegt samstarf við Rússland yrði nú tekið til endurskoðunar. er sú mannskæðasta í borginni frá upphafi innrásar Bandaríkjahers árið 2003. Áður fyrr voru Kúrdar í miklum meirihluta í borginni. Spenna hefur hins vegar aukist að undanförnu þar sem mikill fjöldi súnnímúslíma hefur flúið norður í land vegna óaldarinnar í höfuðborg- inni Bagdad. STUTT • Alnæmi Stjórnvöld í Malaví hafa hvatt alla landsmenn sem stunda kynlíf til að gangast undir alnæmispróf. Talið er að um fjórtán prósent af tólf milljón Malavíbúum séu HlV-smitaðir. • Guantanamo Bandaríkja- menn slepptu sextán sádi- arabískum föngum úr Gu- antanamo-fangabúðunum á Kúbu í gær. Sjónvarpsstöðin Al-Arabiya sagði frá því að 53 Sádi-Arabar væru enn í haldi í fangabúðunum. • Viðræður Ehud Olmert, forsætisráðherra ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Pal- estínumanna, komu saman til fundar í Jerúsalem i gær til að ræða hugsanlegar leiðir til að bæta samskipti ísraela og Palestínumanna í Jerúsalem.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.