blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 10
10 FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 2007 blaðiö Einar Oddur Kristjánsson látinn Baldvin Hall- dórsson látinn Baldvin Halldórsson, leikari og leikstjóri, er látinn á 8;. aldurs- ári. Hann var einn ástsælasti leikari þjóðarinnar og helgaði Þjóðleikhús- inu ævistarf sitt, þar sem hann lék nærri 200 hlutverk frá 1950 til 1992. Hann var einn helsti leikstjóri Þjóðleikhússins 1955 til 1978 og afkastamikill leikari í útvarpi, sjónvarpsverkum og kvik- myndum. Baldvin fæddist á Arn- gerðareyri við ísafjarðardjúp 23. mars 1923. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Vigdísi Pálsdóttur og þrjú uppkomin börn. Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, varð bráðkvaddur þegar hann var í fjall- göngu á Kaldbaki í Dýrafirði ásamt hópi manna um hádegisbil síðastlið- inn laugardag. Einar Oddur fæddist á Flateyri 26. desember 1942. Hann var fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar Hjálms 1968 til 1993 og Útgerðarfélags Flat- eyrar 1974 til 1993. Hann var formaður Vinnuveitendasambands íslands 1989 til 1992 og einn aðalhöfundur hinnar svonefndu þjóðarsáttar. Einar Oddur var skrifstofumaður 1961-1965 og póstafgreiðslumaður 1965-1968. Kann varð síðar fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar Hjálms hf., Stjórnarformaður Hjálms hf., Vestfirsks skelfisks hf. og Kambs hf. I hreppsnefnd Flateyrarhrepps 1970- 1982. í stjórn Vinnuveitendafélags Vestfjarða síðan 1974. I varastjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna 1983-1989, í aðalstjórn 1989- 1994. Stjórnarfor- maður Vélbáta- útgerðarfélags ísfirðinga síðan 1984. Einar Oddur var fyrst kjörinn á þing 1995, en hafði áður gegnt fjölmörgum trúnað- arstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var þingmaður Vestfjarða og síðar Norðvesturkjördæmis allt til dauðadags. Einar Oddur var 64 ára og lætur eftir sig eiginkonu, Sigrúnu Gerðu Gísladóttur, og þrjú uppkomin börn. Stoliðog skemmt í HI ■ Flatskjám rænt og rótað í skjölum Rán var framið í launadeild Að- albyggingar Háskóla íslands um síðustu helgi. Glerhurð var brotin, gögnum rótað upp og nokkrir tölvu- skjáir og tölvuhlutir fjarlægðir. Að sögn lögreglu voru engin merki um innbrot en svo virðist sem hurð bak- dyramegin í húsinu hafi verið úr lás á sunnudagskvöld er ránið var framið. „Öryggisvörður tók eftir ólæstri hurð bakatil í húsi aðalbyggingar- innar á sunnudagskvöld og tilky nnti það strax til lögreglu. Einhver hafði verið á ferð um bygginguna og rótað til í skrifstofum," segir Björg- vin Björgvinsson hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Skúli Júlíusson, rekstrarstjóri fasteigna háskólasvæðisins, segir að ekki enn sé vitað hver hafi verið að verki, þar sem engar öryggismynda- vélar séu á svæðinu. „Fimm 19 tommu flatskjám og einni tölvu var rænt, tölva var eyðilögð og átt var við eitthvað af gögnum. Þar að auki var brotin rúða á ganginum." Skúli segir að innbrot séu fremur fátíð á háskólasvæðinu en þetta sé það þriðja frá því í vor. „í kjölfar atviksins munum við herða öryggisatriði, fjölga mönn- uðum vöktum og koma upp almenni- legum öryggismyndavélum.“ Málið er í rannsókn hjá lögreglu. bjorg@bladid.net Norðvesturkjördæmi Herdís tekur sæti Herdís Þórðardóttir, fiskverkandi á Akranesi, mun væntanlega taka sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn í Norðvesturkjördæmi í stað Ein- ars Odds Kristjánssonar sem lést um helgina. Herdís skipaði fjórða sæti á lista sjálfstæðismanna í kjör- dæminu fyrir alþingiskosningarnar í vor. Herdís er fædd 1953, lauk gagn- fræðaprófi og sjúkraliðanámi og starfar nú við eigið fiskverk- unarfyrirtæki á Akranesi. Eiginmaður Herdísar er Jóhannes Sig- urður Ólafsson fiskverkandi og eiga þau fjögur börn og fimm barnabörn. Verð frá 2.790 þús. Kíktu á suzukibilar.is SUZUKI BILAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100 er lífsstill!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.