blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLFERÐIR
heilsa@bladid.net
Fyrir þá ævintýragjörnu myndi ég mæla með Bólivíu.
Þar eru víða hræðilegir vegir og enn hræðilegri rútur,
en það er líka hægt að gera svo ótal margt, eins og til
dæmis hjóla, fara í gönguferðir, klífa fjöll og fleira.
Töfrar Kúbu
Heimsferðir bjóða upp á n nátta
ferð til Kúbu þann 24. nóvember
næstkomandi. Farið verður til
höfuðborgarinnar, Havana, þar
sem meðal annars er hægt að
kíkja á byltingarsafnið, kynnast
veitingastaðnum Bodeguita del
Medio sem Hemingway gerði
frægan, fara á næturklúbbinn
Tropicana og ýmislegt fleira.
Einnig verður farið til Varadero
þar sem eina fegurstu baðströnd
heims er að finna og hægt er
að stunda sjóíþróttir, golf og
sjóstangaveiði ásamt því að kíkja
í ýmiss konar verslanir, veitinga-
hús og skemmtistaði.
Mikil
náttúrufegurð
Dagsferðir til Mývatns frá höf-
uðborgarsvæðinu eru ekki mjög
vænlegur valkostur fyrir þá sem
eru akandi, enda er vegalengdin
slík að lítill tími færi í annað
en akstur. Flugfélag Islands
býður daglega upp á dagsferð til
Mývatns, þar sem flogið er til
Akureyrar, leiðsögumaður tekur
á móti hópnum og farið er með
rútu að Goðafossi og svo Mývatni.
Mývatnssvæðið hefur mótast í
eldsumbrotum liðinna alda og
er einn fegursti og fjölbreyttasti
staður landsins ásamt því að
vera eitt stærsta griðland fugla í
Evrópu.
Ung kona á Hellu miðlar reynslu sinni og þekkingu á Netinu
Veitir bakpokaferða-
löngum upplýsingar
Þrúður Helgadóttir er
23 ára stúdent af ferða-
málalínu Fjölbrautaskóla
Suðurlands og býr á Hellu.
Hún rekur vefinn bakpok-
inn.com þar sem finna má
allar nauðsynlegar upplýs-
ingar fyrir bakpokaferða-
lög um heiminn. Þrúður
hefur sjálf mikla reynslu
af slíkum ferðalögum,
ekki síst í Suður-Ameríku
sem hún er sérstaklega
hrifin af.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
„Ég fór á ferðamálalínu í fjölbraut
vegna áhuga míns á ferðamálum. Þá
var ég búin að ferðast um Suður-Am-
eríku í 4 mánuði, en það gerði ég árið
2001 og heimsótti Síle, .Argentínu,
Paragvæ og Brasilíu. Svo fór ég aftur
í desember síðastliðnum til Argent-
ínu, Síle, Bólivíu og Perú. Reyndar
er því miður nú búið að leggja ferða-
málalínuna niður í skólanum vegna
dræmrar aðsóknar," segir Þrúður.
Spurð hvort hún eigi sér uppá-
haldsland í heiminum segir hún erf-
itt að svara því. „Ef ég ætti að nefna
eitthvert land fyrir túrista sem vilja
hafa það notalegt held ég að Taíland
sé alger draumur. Þar er fallegt lands-
lag, góður matur og vingjarnlegt fólk.
En fyrir þá ævintýragjörnu myndi
ég mæla með Bólivíu. Þar eru víða
hræðilegir vegir og enn hræðilegri
rútur, en það er líka hægt að gera svo
ótal margt, eins og til dæmis hjóla,
fara í gönguferðir, klífa fjöll og fleira.
Þar er líka mikill fjölbreytileiki í
landslagi og menningu.“
Þrúður hefur lagt í vana sinn að
ferðast ein og segir það hafa sína
kosti og galla. „Það væri kannski
gaman að hafa einhvern með sér
og svo getur maður þurft að borga
fyrir tveggja manna herbergi þótt
maður sé bara einn. Hins vegar
kynnist maður fólkinu betur en ell-
egar og lærir tungumálið betur,“ út-
skýrir hún.
Þrúður Helgadóttir Fyrir
framan foss nálægt Ahuachap-
án í El Salvador.
MANNESKJAN
►
Þrúður hefur farið til allra
byggðra heimsálfna nema
Eyjaálfu.
►
►
Hún hefur haldið úti síðunni
bakpokinn.com frá árinu
2004.
Þrúður talar spænsku reip-
rennandi eftir ferðalög sín
um Suður-Ameríku.
Heimsreisur skipulagðar
Á síðunni bakpokinn.com eru fjöl-
margir hlekkir og upplýsingar um
ódýr flug og gistingu, ferðamanna-
bólusetningar, vegabréfsáritanir
og fleiri praktísk atriði. „Ég veit að
margir sem skoða síðuna eru að leita
sér upplýsinga um ódýr flug og svo
hafa sumir notað síðuna sér til að-
stoðar við að skipuleggja heimsreisu.
Ferðaskrifstofurnar bjóða gjarnan
upp á rándýrar heimsreisur þar sem
gist er á fimm stjörnu hótelum og svo
framvegis. En það er líka hægt að fara
í sína eigin heimsreisu, bóka ódýr
flug og gista á ódýrum hostelum. Svo
er hægt að stilla kostnaðinum í hóf
með því að dveljast lengur á ódýrari
stöðunum en styttra á þeim dýrari,“
segir Þrúður og bætir því við að hún
telji flesta þá sem heimsækja síðuna
vera ungt fólk. „Ég held að flestir séu
svona á aldrinum 17 til 35 ára og æv-
intýragjarnir. Þeir sem eru eldri sækj-
ast kannski frekar í meira öryggi auk
þess sem þeir eru líklegri til að hafa
efni á meiri lúxus.“
Ferðir eru framtíðin
Á milli þess sem Þrúður kynnir
sér nýjustu upplýsingar um
ferðamál fyrir heimasíðu sína
vinnur hún á upplýsingamiðstöð
ferðamanna á Hellu á daginn og
þjónar til borðs á veitingastað á
kvöldin og um helgar. En hver eru
framtíðaráformin?
„Mig langar til þess að vinna
við ferðaiðnaðinn, gjarnan sem
leiðsögumaður og ferðaskipuleggj-
andi. Þótt það sé fínt að vera á
upplýsingamiðstöð ferðamanna er
ég aðallega þar að benda á kort og
gefa leiðbeiningar. Ég fæ langmest
út úr því að sýna fólki fallega staði
og fylgjast með viðbrögðum þeirra.
Svo væri gaman að fara í háskóla-
nám í viðskiptafræði eða einhverju
fjármálatengdu sem myndi iwtast
fyrir starf í ferðaþjónustu. Eg er
hins vegar ekki búin að taka neina
ákvörðun um það enn þá, enda er
ég á leið í reisu um Suður-Ameríku
þann 4. september næstkomandi.
Þar ætla ég að vera allavega í sjö
mánuði og þótt ég sé ekki búin að
skipuleggja ferðina alveg ofan í kjöl-
inn hugsa ég að ég fari í gegnum
Amazon í Brasilíu til Venesúela og
Kólumbíu, og síðan suðureftir allri
strönd Brasilíu," segir þessi ævin-
týragjarna unga kona að lokum.
Grillaður naggrís „Cuy“ er mikill veislu-
réttur í Perú, en það er grillaður naggrís.
Djöflagríma Frá karnivalinu „La Dia-
blada“ í Oruro í Bólivíu.
Fjör í Hrísey
Hríseyingar efna til veglegrar
Skelja- og fjölskylduhátíðar næstu
helgi. Um er að ræða tvær hátíðir,
sem steypt er saman í eina stóra,
en það eru Fjölskylduhátíðin sem
haldin hefur verið frá árinu 1997 og
Skeljahátíðin sem hóf göngu sína
árið 2003.
Hátíðin sjálf fer fram á laugar-
deginum, 2i.júlí, en örlítið forskot
er tekið á sæluna á föstudag með
óvissuferðum fyrir börn og full-
orðna og útgáfutónleikum Hvanna-
dalsbræðra. Á laugardeginum
verður meðal annars söngvakeppni
fyrir börn, fjársjóðsleit, veitingar
frá kokkum Friðriks V. á Akureyri
og íslandsmót í skeljakappáti. Að
lokinni flugeldasýningu er hátíð-
inni formlega lokið og verður boðið
upp á ferjuferð klukkan 01.00 fyrir
þá sem vilja komast heim.
Hrísey er margrómuð fyrir kyrrð,
náttúrufegurð og fuglalíf en þessa
helgi taka Hríseyingar sér sjálfstæði
og til þess að komast í eyjuna þarf
að framvísa sérstöku vegabréfi.
Allar nánari upplýsingar og dagskrá
hátíðarinnar má nálgast á vefsíð-
unni hrisey.net.