blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 19
IÞROTTIR
ithrottir@bladid.net
Þó er eitt jákvætt við þessa þróun fyrir kylfinga að
brautir margar hverjar og grín spilast nú eins og vellir á
erlendum sólarstöðum. Glerharðar brautir þýða að boltinn
skoppar lengra og erfiðara er að pútta en nokkru sinni.
Undirbún-
ingstímabil
flestra knatt-
spyrnuliða í Evrópu
erhafiðeðaað
hefjast enda aðeins
nokkrarvikuríað
tímabilin heíjist. Alan Curbishley,
stjóri West Ham, var yfir sig ánægður
með 2-0 sigur sinna manna á Dag &
Red en þar lék í fyrsta sinn um hálfs
árs skeið Dean nokkur Ashton eftir
að hafa náð sér af meiðslum. Ashton
er einn sá dýrasti í sögu liðsins.
Spænska
dagblaðið
Marcakrefst
þess fyrir hönd
lesenda sinna að
forráðamenn Real
Madrid kaupi eina
stjórstjörnu til liðsins til viðbótar
hið minnsta. Marca sem jafnan er
vel hliðhollt meisturunum í Madríd
telur hneisu að aðeins hafi verið
gerð ein kaup meðan erkifjendurnir
hafa fengið til sín hverja stjörnuna á
fætur annarri. Flestir nýir leikmenn
Real hafa komið á frjálsri sölu.
Ilgölfarið hefur
lekið út að Real
séaðskoðakaup
á Hollendingnum
Wesley Sneijder
fráAjax en hannvar
kominn með annan
fótinn í læknisskoðun hjá Valencia
þegar þær umræður féllu um sjálfar
sig. Þykir hann of dýr kostur þar á
bæ en peningar hafa aldrei verið af
skornum skammti 1 höfuðborginni.
Francesco
Totti mun
að líkindum
ekki klæðast peysu
ftalska landshðsins
að nýju en karlinn
hefur ekkert
svar gefið landsliðsþjálfara sínum
eftir langa bið þess síðarnefnda. Vill
Totti einbeita sér að sínu félagsliði
sem er kurteisleg aðferð við að
segja að hann sé einfaldlega of
latur til að nenna að standa í slíku.
Enda er víst næturlífið í Róma-
borg með því besta sem gerist.
Park Ji Sung
munvart
spila með
Manchester United
fyrrenumjólin en
kóreski leikmað-
urinn glímir við
hnévandamál og er nýkominn úr
uppskurði þess vegna. Hann ferðast
samt með Uðinu um Asíu þessa
dagana enda geysilega vinsæll þar.
Italinn Fabio Ca-
pello sem hafði
frumkvæði að
því að selja David
Beckham til LA
Galaxy er nefndur
sem hugsanlegur
þjálfari sama liðs. Játar hann að hafa
fengið nokkur tilboð frá Bandaríkj-
unum en núverandi staða Galaxy er
döpur og Alexei Salas gæti fengið
sparkið fljótlega nái Beckham ekki
að rífa liðið upp úr öldudalnum.
Bresk lögregluyfirvöld réðust
inn á skrifstofur þriggja
knattspyrnuliða (gær vegna
rannsóknar á meintri spillingu.
Newcastle, Portsmouth og Glasgow
Rangers fengu þannig óvænta
heimsókn auk þess sem tekið
var hús á tveimur einstaklingum.
Er þetta aðeins ein rannsókn af
nokkrum sem yfirvöld standa
fyrir hvað knattspyrnufélög og
viðskipti þeirra 1 millum varðar.
SNEIIDER
EHTRfiEH.
Sft'’
sr
Ekki komið dropi úr lofti suðvestanlands lengi
Golfvellir láta á sjá
„Við vonumst eftir rigningu sem fyrst en þó margar
brautir séu orðnar slæmar þá er það ekkert sem lagast
ekki við góða dembu,“ segir Ágúst Húbertsson, fram-
kvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði. Ein-
munablfða og brakandi þurrkur suðvestanlands kemur
illa niður á golfáhugamönnum sem öðrum en brautir
margar á mörgum völlum líta afar illa út.
Veðurspár gera ráð fyrir að sólskin og hiti víki suð-
vestanlands þegar fram að helgi er komið og langþráð
rigning er í kortunum. Langþráð fyrir fjölmarga enda
ár og dagur síðan slíkt veður hefur staðið jafn lengi yfir
og raun ber vitni nú. Þó er eitt jákvætt við þessa þróun
fyrir kylfinga að brautir margar hverjar og grín spilast
nú eins og vellir á erlendum sólarstöðum. Glerharðar
brautir þýða að boltinn skoppar lengra og erfiðara er að
pútta en nokkru sinni.
Enda þótt margar brautir valla suðvestanlands séu
orðnar virkilega ljótar að sjá er enn sem komið er lítil
Hvaleyrin Jörðin er rifin og tætt og vart
boðleg kylfingum vegna þurrka en fram-
kvæmdastjórinn hefur ekki áhyggjur.
hætta á að varanlegar skemmdir hljótist af að sögn Ág-
ústs. Mikið sé vökvað yfir blánóttina og mun meira en
venjulega og það dugi til að halda í horfinu þangað til
rignir. „Þá verður þetta fljótt að jafna sig og ég hef engar
áhyggjur enn sem komið er
ítuiKnamoti DTGioa
ðablikf
Mikil almenn ánægja
Óhætt er að fullyrða að þær tæp-
lega 1500 stúlkur sem þátt tóku í
Símamóti Breiðabliks um helgina
hafi skemmt sér hið besta. Veður-
blíðan var með ólíkindum og á
köflum of heitt fyrir knattspyrnu
enda fór hitastigið yfir 25 stig þegar
best lét. Það kom ekki í veg fyrir að
stúlkurnar velflestar skemmtu sér
enda var fjölmargt annað í boði en
knattspyrnan ein saman.
Er þetta eina mótið hérlendis þar
sem aðeins keppa stúlkur og hafa
vinsældir þess vaxið gríðarlega á
fáum árum. Er nú leikið stanslítið
á fjölmörgum völlum í fjóra daga
enda fjöldi liða 136 talsins.
7. flokkur A 7. flokkur B Breiðablik GRV 2
6. flokkur A 6. flokkur B 6. flokkur C (R IR/Valur Valur
5. flokkur A 5. flokkur B 5. flokkur C Þór Víkingur IBV
4. flokkur A 4. flokkur B Valur HK
sieim<
Þjakaðir af minnimáttarkennd
Það er á mörkum þess að vera kli-
sjukennt að segja að sigur Brasilíu á
Argentínu í úrslitaleik Copa Amer-
ica um helgina hafi verið ósigur fyrir
fótboltann en það er mat margra
sem með fylgdust. Hinn lipri, áhorf-
endavæni bolti Argentínumann-
anna hafi beðið hnekki gagnvart
spræku, skipulögðu en leiðinlegra
liði Brasilíu. Upp úr stóð að gömul
grýla sem Argentínumenn vonuð-
ust til að væri búið að grafa fyrir
margt löngu, minnimáttarkennd
gagnvart heimsfrægu liði Brasilíu,
lét á sér kræla og var f raun aldrei
vafi hvorum megin sigurinn lenti.
Basile, þjálfari Argentínu, gerði
grundvallarmistök að hefja leik
með þrjá afturliggjandi miðjumenn.
Mascherano, Cambiasso og Verón
eru góðir til brúksins en vitandi að
Dunga, þjálfari Brasilíu, er skipu-
lagðari en andskotinn og bjó lið sitt
í nokkuð þéttar skotgrafir var þörf
fyrir sköpunarkraft á miðjuna og
þessir þrír fá seint verðlaun fyrir
það. Dagskipunin var því einföld
af hálfu Dunga: tvö- og þrefalda
á eina leikstjórnanda Argentínu,
Riquelme, sem fyrir vikið var í tjóni
allan leikinn og fyrir utan eitt stang-
arskot skapaði bara örvæntingu.
Það bætir enn á hneisu Argentínu
að Brasilía var án fjögurra stjörnu-
leikmanna sinna en Carlos Dunga
þjálfari er nú goð í heimalandinu
eftir að hafa fengið þaðan háðs-
glósur og skítkast um hrfð.
Forseti til
landsins
Forseti evrópska knattspyrnu-
sambandsins, Frakkinn
Michel Platini, mun koma til
íslands og veita verðlaun þeim
er sigrar U19 Evrópukeppni
kvenna sem hefst hér í vik-
unni. Er þetta mikilvægasta
mót sem haldið hefur verið
hér á landi og vel til fundið hjá
KSÍ að hafa freistað kappans
til að mæta.
Fífill fegurri
Það hefði þótt saga til næsta
hér fyrir nokkrum árum að
helmingi færri styddu Fram
en KR en það virðist raunin í
sumar samkvæmt aðsóknar-
tölum. Er aðsókn á leiki Lands-
bankadeildar karla afar góð
og sækja flestir á heimaleiki
KR þrátt fyrir afleitt gengi.
Þangað koma að meðaltali
rúmlega 1800 manns meðan
aðeins 900 hafa hug á að kíkja
á leiki Frammara. Eru það
færri en sjá heimaleiki nýliða
HK og ljóst að knattspyrnufor-
ysta Fram þarf allverulega að
taka til í sínum ranni.
Framtíöin
í Serbíu
Körfuknattleikurinn á
aldeilis framtíðina fyrir sér
í Serbíu. Um helgina varð
Serbía Evrópumeistari U20
ára landsliða í karlaflokki og
nokkrum dögum fyrr varð
kvennalandslið landsins U18
ára Evrópumeistari.
Fjölmenni á
Laugavegi
Yfir 130 keppendur tóku þátt
í Laugavegshlaupinu, einu
erfiðasta maraþonhlaupi sem
haldið er hérlendis ár hvert.
Er hlaupið hina vinsælu göngu-
leið frá Landmannalaugum
inn í Þórsmörk og þykir gott
að klára það á fimm til sex
klukkustundum enda hreint
ekki greiðfært alla leiðina.