blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 20
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 blaóið SAMbio.is SAMWÍ [575 8900 rM 4 Hfl&f l' IH’RI'ISN I N KU H A I" I N £IMB|2Sk/álfabakka HARRY P0TTER 5 kl. 2 -3:30-5-6:30-8-9:30-11 HARRY P0TTER5 W.2-5-8-11 Dtölttl HARRY P01TER 5 M. 2-5-8-11 VIP EVAN ALMIGHTY kl.2-4*6-8-10:10 BLIND DATING M. 8 10 SHREK3 . M.2-4-6 L SHREK3 M. 8 -10:10 OCEAN'S 13 M. 10:10 7 PIRATES 3 M. 4 Sáí&Mn / KRINGLUNNI HARRY P0TTER 5 DiGíTAL M.4-5:15-7-8:15-10 JL SHREK3 M.4 SHREK 3 M'- fpÉu tal M. 6 PIRATES 3 M .8 .símeísSn /AKUREYRI HARRY POTTER 5 SHREK3M/ ÍSLTAL M. 6-8-10 kl. 6 HARRY POTTER 5 SASm&k / KEFIAVÍK M.6-9 EVAN ALMIGHTY kl.8 DIE HARD 4 SHREK3 M/-L kl. 10 kl.6 REGÍIBOGinn TAXI4 M. 6,8og10 L THE L00K0UT M. 550,8 0(| 10,10 14 DIE HARD 4.0 M. 5.30,8 og 10.40 14 PREM0NITI0N M. 5.46, og 8 FANTASTIC FOUR 2 M. 10.15 L SmfiRfÁ^BlÓ HARRY P0TTER 5 W. 3,4,6.7,9oo 10 10 HARRY PÖTTER IUXUS M.3,6og9 10 EVAN ALMIGHTY M. 4,6,8 og 1Ö L DIE HARD4.0 M5.8og10.45 14 FÁNTASTIC F0UR 2 M.3 L DEATH PR00F M.10-FORSÝNING 16 1408 M.6,8og10 16 EVAN ALMIGHTY W.4,6og8 L DIE HARD4.0 kl.730og10-POWER 14 SHREK 3 Islenskt tal M. 4 og 5.45 L hVmYNÐÆRAFTW M.4 L HASKÓLABÍÓ TAXI4 W.6,8oq10 L 1408 DIE HARD4.0 M. 5.50,8 og 10.10 M. 5.15,8 óg 10.45 16 14 Bpijgarbió 1408 M.8og10 16 EVAN ALMIGHTY M.6og8 L DIE HARD4.0 M. 5.40 og 10 14 wmmmmmmmmkf'z i ORÐLAUSLÍFIÐ ordlaus@bladid.net «■ Við erum búin að vera með ótrúlega góða sölu. Þetta er án efa besta sumarið í langan tíma og eiginlega algjört brjálæði. fslendingar Guðrún Lísa Einarsdóttir, rekstrarstjóri ísbúðarinnar í Álfheimum, segir (slendinga sólgna í ísinn þegar sólin skín sem hæst og telur hún óhætt að fullyrða að íslendingar jL séu mikil ísþjóð. Blaöiö/G.Rúnar - ' ísþjóðin íslendingar Hundruð ísa seljast á dag í Ijósi þess að veðurguð- irnir hafa leikið við land- ann undanfarnar vikur hafa ísbúðirnar trónað á toppnum yfir vinsælustu áfangastaðina. Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur halldora@bladid.net Þeir sem gert hafa sér ferð í ísbúðir landsins síðustu daga hafa ekki farið varhluta af biðröðum ísþyrstra íslendinga sem allir vilja kæla sig niður með svalandi ís. Blaðinu lék forvitni á að vita hvernig andinn í ísbúðunum er um þessar mundir og komst í raun um að íssalan hefur sjaldan verið meiri en einmitt nú. „Við erum búin að vera með ótrú- lega góða sölu. Þetta er án efa besta sumarið í langan tíma og eiginlega algjört brjálæði,“ segir Guðrún Lísa Einarsdóttir, rekstrarstjóri ísbúðar- innar í Álfheimum. Hún segir gömul sannindi og ný að íssalan fylgir veðr- inu og þegar veðurguðirnir leika við landann eins og síðustu daga er hægara sagt en gert að komast fyrir í ísbúðunum. „Örtröðin byrjar svona um þrjú- leytið og svo er þetta alveg stanslaust til hálftólf á kvöldin. Það er fullt út úr dyrum og gífurlegt magn selst á hverjum degi, allavega hundruð ísa á dag. íslendingar eru greinilega mikil ísþjóð," bætir Guðrún við, en að hennar sögn eru starfsmennirnir allavega þrisvar sinnum fleiri en þeir eru á veturna. Tóm hamingja í vinnunni Frímann Ólafsson í ísbúð Vestur- bæjar tekur í sama streng og Guðrún og segir brjálað að gera í búðinni. „Það er bara tóm hamingja í vinn- unni. Alltaf nóg að gera og það er bara mætt í vinnuna og unnið allan daginn án þess að setjast niður,“ segir hann og bætir við að ekki sé loku fyrir það skotið að besta sumar í langan tíma sé að líta dagsins ljós. „Maður getur kannski ekki fullyrt um það akkúrat núna, enda gæti svo sem farið að rigna hvað úr hverju, en þetta lítur rosalega vel út. Það er stöðugt allan daginn, frá morgni til kvölds og troðið út úr dyrum. Ann- ars er þetta nú alltaf svona hjá okkur hérna, líka á veturna. íslendingar virðast duglegir við að fá sér ís og það er ekki bara bundið við góðviðr- isdaga. Við erum til dæmis allt öðru- vísi en önnur Norðurlönd þar sem ísbúðirnar loka oft á veturna. En hér förum við út í ísbúð þrátt fyrir frost og fimbulkulda. En þetta gæðaveður sem við höfum fengið núna hefur óneitanlega jákvæð og góð áhrif á allt mannlíf. Allt fer af stað.“ Endanleg dagskrá tilbúin Bætist við hópinn Tónlistarmaðurinn Dagskrá þjóðhátíðar í Eyjum árið 2007 er nú fullbúin og búið að ganga frá þeim tónlistarmönnum sem koma munu fram í dalnum um Verslunarmannahelgina. Nú síðast bættist Hreimur Örn Heimisson við dagskránna en fyrir höfðu hljómsveitirnar Á móti sól, Lay Low, Sprengjuhöllin, 1 svörtum fötum og fleiri boðað komu sína. Þá munu þeir Bubbi Morthens, Árni Johnsen og Stefán Hilmarsson ljá eyjunni rödd sína auk þess sem hinir ýmsu tónlistarmenn munu troða upp. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni dalurinn.is Franskt frat og ferlegheit Taxa-myndirnar sem Luc Besson hefur skrifað hafa oftar en ekki verið hin fínasta afþreying. Þar eru bílaeltingarleikir jafnan í fyrir- rúmi í bland við léttan húmor og farsakenndan söguþráð sem aðeins virkar hjá Fransmönnum. Nýjasta myndin sker sig þó úr hvað framan- verða upptalningu varðar, nema að einu leyti, farsakenndum söguþræði, sem í þessu tilviki virkar jafn vel og plástur við holdsveiki. Þetta er klárlega slakasta myndin í röðinni og sennilega slakasta kvikmynd sem Luc Besson hefur lagt nafn sitt við. Engir bílaeltingarleikir, slappir brandarar og leiðinlegur sögu- þráður einkenna myndina. Jafnvel franski knattspyrnumaðurinn Dji- bril Cissé, sem gerði garðinn ... ja, líflegan með Liverpool og leikur sjálfan sig í upphafi myndarinnar, getur ekki bjargað myndinni frá TAXI4 Leikstjóri: Gérard Krawczyk " Aðalhlutverk: Samy Nacery, Frédéric Diefenthal, Bernard , Farcy, Emma Sjöberg JWJ' Sýnd: Háskólabíó, Regnboganum. K - Eftlr Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net KVIKMYNDIR glötun, frekar en Liverpool forðum. Myndin minnir frekar á blöndu af slöppum Benny Hill-þætti og endurgerð Scarface, en lokaatriði myndarinnar er greinilega til- einkað A1 Pacino og Brian DePalma þar sem hann plaffar úr hríðskota- byssum á allt sem fyrir verður í höll sinni. Myndin er arfaslöpp og verður að teljast forkastanlegt hliðarspor þessarar annars ágætu kvikmyndaseríu. Látlausir hveiti- brauðsdagar Aðþrengda eiginkonan Eva Long- oria og körfuboltakappinn Tony Parker létu sér nægja látlausa brúðkaupsferð eftir margrómað brúðkaup þeirra þann7. júlísíð- astliðinn. Brúð- kaupið sjálft sló allt út í glæsileika og íburði en eitthvað annað var uppi á teningnum í brúð- kaupsferðinni í Karíbaeyjunum. Hjónin sáust eingöngu borða saman yfir kertaljósi, flatmaga á ströndinni og láta vel hvort að öðru í mestu rólegheitum. Byrjuð aftur með Olivier Söngkonan Kylie Minogue hefur sést með fyrrverandi kærast- anum, Olivier Martinez, síðustu vikur og halda nú erlendir fjöl- miðlar því fram að þau séu byriuð aftur saman. Á dögunum sátu þau að róman- tískum kvöldverði í París og til þeirra sást í kossaflensi og innilegum faðmlögum fyrir utan kaffihús í borginni. Talsmaður Kylie segir að þótt söngkonan sé ekki byrjuð aftur með fyrrver- andi séu þau vissulega að hittast og því óhætt að gera því skóna að Amor hafi knúið dyra á ný. Komin úr meðferð Partýljónið Lindsay Lohan hefur lokið sex vikna meðferð á Promises-meðferð arheimilinu og hyggst nú stunda reglulega eftir- meðferð til þess að halda sér edrú. Fjölmiðlafulltrúi lcikkonunnar segir að hún muni ganga með ökklaband sem nemur áfengi og fíkniefni í blóðinu þegar hún heldur á skemmtistaði, en þetta hyggst hún gera til þess að koma í veg fyrir vangaveltur almennings um mögulega neyslu. Við skulum vona að ökklabandið hafi verið kyrfilega límt um helgina því leikkonan var varla komin úr meðferðinni þegar hún mætti galvösk til leiks á einum skemmtistaðnum... Sleppir sér í skyndibitann Jennifer Lopcz segist ósjaldan borða skyndibitamat þegar hún þarf ekki að passa línurnar. Hún seg- ist njóta þess að borða og leyfir sér oft að leggja súkku- laðibitakökur eða hamborgara sér til munns. „Ef ég þarf að vera flott vegna nýrrar plötu eða myndar þá held ég mér í formi í nokkra mánuði í kringum það. En ég borða McDonalds þess á milli og tek tímabil þar sem ég hreyfi mig ekkert,“ sagði söngkonan í viðtali við Cosmopolitan.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.