blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 22
30 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 blaðió FÓLK folk@bladid.net Já, sérstaklega nú þegar ald- urinn færist yfir og ungliðarn- ir koma svona sterkir inn. Þeir þurfa að fara að spýta í lófana. Eru söngvarar Sniglabandsins farnir að óttast um stöðu sína? Pálmi Sigurhjartarson er hljómborðsleikari Sniglabandsins sem tók lagið að venju á sunnudaginn í blíðskaparveðri við Austurvöll. Að jjessu sinni nutu þeir þó aðstoðar Egils Elvars Stolzenwalds við flutn- inginn en Egill, sem er aðeins 5 ára gamall, sló rækilega í gegn. HEYRST HEFUR Annar bræðranna sem kenndur er við Bakkavör, Lýður Guðmundsson, hélt upp á fertugsafmæli sitt á laugardag- inn á heimili sína við Starhaga. Mikið var um dýrðir en veislan var að sjálfsögðu haldin úti við í góða veðrinu þar sem hvergi var til sparað. Að vísu fer engum sögum af erlendum listamönnum á borð við 50 Cent, Elton John eða Jamiroquai, en þess skal þó getið að Lýður verður ekki formlega fertugur fyrr en í dag, þann 17. júlí... Kristín Ástgeirsdóttir, fyrr- verandi alþingismaður, er greinilega í atvinnuleit. Hún er meðal umsækjanda fram- kvæmdastjóra Jafnréttisstofu en einnig sótti hún um stöðu skrifstofustjóra nýrrar skrif- stofu barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu sem Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, auglýsti en Jóhanna Sigurðar hætti síðan við að stofna. Alþingismenn hafa hingað til ekki verið í vandræðum með að fá hjálp flokka sinna þegar þá vantar atvinnu en Kristín endaði auðvitað sinn þingferil utan flokka og vildi ekki sjá Samfylkinguna þegar Kvennalist- inn rann inn í hana... Bloggarinn Anna Pála Sverrisdóttir stakk upp á því á síðunni sinni á laugardag að ísland eignaðist fyrsta samkyn- hneigða forsetann. í gær bætti Ragnhildur Sverrisdóttir, blaða- maður og annar ofurbloggari, athugasemd við færslu Önnu Pálu, þar sem hún sagðist til í slaginn. „Tæki með mér frú og tvíburasystur, rétt eins og ORG, svo fólk þyrfti ekki að venjast öllu frá grunni," segir Ragn- hildur. Anna Pála lýsti umsvifa- laust yfir stuðningi við forsetafram- boð Ragnhildar. Er hér kominn snjóbolti sem á eftir að bæta utan á sig? Sigurður Harðarson Er mikið náttúrubarn, enda úr sveit. Hefur ekki áhuga á völdum Sigurður Harðarson er einn af meðlimum Saving lceland-samtakanna, sem mikið hafa verið í fréttum upp á síðkastið, ekki síst fyrir uppákomu á Snorra- brautinni sem leiddi til handtöku nokkurra með- lima. Sigurður er anarkisti og segist ekki hafa áhuga á völdum. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net „Stjórnmál, líkt og viðskipti, snú- ast um framapot og að ota sínum tota. Ég myndi eflaust gera slíkt hið sama í sömu aðstöðu og hef því engan áhuga á völdum,“ segir Sigurður sem vill völdin í hendur fólksins. „ Það er ekki til neitt draumasam- félag. Anarkistar vilja bara að völdin séu í höndum almennings í landinu og að valdaskipulagið sé sem flatast, því það er engum hollt að láta taka allar ákvarðanir fyrir sig.“ Sigurður segir anarkisma ekki daðra við frjálshyggjuna, líkt og margir halda fram. „Ekki á íslandi að minnsta kosti. Hér á landi snýst frjálshyggja ein- ungis um viðskipti og að græða pen- inga. Ef allir væru frjálshyggjumenn, væri ekkert gert í því til dæmis, að hér kæmi eitt stærsta og ófrýnileg- asta fyrirtæki í heimi, Rio Tinto, sem er stærra en allt efnahagskerfi íslands. Afhverju ættuþessir forríku forstjórar úti í heimi að láta sig varða hvað örfáir eyjaskeggjar á Islandi halda um þá? Þetta fyrirtæki hefur verið gagnrýnt af kunnáttufólki, því þeir brjóta gegn ýmsum réttindum verkafólks og brjóta ítrekað umhverf- islög. 1 hnotskurn svífast þeir einskis til þess að græða peninga. Viljum við slíkt fyrirtæki hingað?" Sigurður segist snemma hafa haft áhyggjur af heimsmálunum. „Ahuginn kviknaði þegar ég var barn. Eg horfði á fréttir og sá fljót- lega að heimurinn var gjörsamlega á hvolfi. Seinna fór maður að lesa blöðin og fylgjast betur með. Núna er síðan verið að byggja endalaus álver í ríkasta landi heims, þar sem lægsta atvinnuleysistíðnin er við lýði! Ég ítreka að ég er enginn hag- MAÐURINN Sigurður er 39 ára Sigurður er hjúkrunarfræð- ingur á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi ^ Hann kemurfrá Holti í Stokkseyrarhreppi fræðingur né pólitíkus en þegar farið er í slíkar framkvæmdir án þess að íslendingar þurfi á þeim að halda og hvað þá öllu rafmagninu sem verið er að framleiða, þá fer ég að klóra mér í hausnum og hafa áhyggjur. Þá kviknar áhuginn og þessi tilfinning að þurfa að verja landið gegn tilbúnum lónum og annarri jarðröskun. Hins vegar skal athuga að ég væri ekki að rífa svona kjaft ef Islendingar þyrftu á þessu rafmagni og þessu áli að halda. Staðreyndin er bara sú að við erum rík þjóð og þurfum ekki að fórna náttúrunni fyrir einhverja þúsund- kalla,“ segir Sigurður sem er mikið náttúrubarn. „Ég ólst upp í sveit og hef alltaf verið nálægt náttúrunni. Ég hjóla til dæmis alltaf í vinnuna og reyni að nota bílinn sem minnst. Ég á hol- lenska unnustu og hef búið erlendis og kann því að meta hvað við höfum hérna á Islandi sem aðrar þjóðir öf- unda okkur af. “ Saving Iceland-samtökin hafa staðið fyrir beinum aðgerðum sem Sigurður segir nauðsynlegar. „Við erum að halda okkar þriðju sumarbúðir og erum alltaf að stækka við okkur. Okkar mótmæli eru öll friðsamleg en það virðast ekki allir átta sig á að okkar vinna snýst ekki einungis um mótmæli. Við höldum líka fræðslufundi og ibúafundi, en fólk virðist einblina á uppákomur eins og í Kringlunni og Snorrabraut, þar sem lögreglan stóð ein fýrir öllu ofbeldinu. Einnig virðast fjölmiðlar ekki hafa neinn áhuga á að kanna fyr- irtæki á borð við Rio Tinto, heldur þurfum við sjálf að fræða fjölmiðl- ana um það og margt annað.“ Spurður um næstu skref samtak- anna varð Sigurður fámáll. „He, he, ég gef lítið upp um það. Það verður að koma I Ijós. Annars bendi ég forvitnu fólki á heimasíð- una okkar ef það vill taka þátt í bár- áttunni. Slóðin er savingiceland.org,“ sagði Sigurður að lokum. þriöjudaga Auglýsingasíminn er 510 3744 Su doku 5 8 7 2 7 8 6 7 5 4 4 6 7 8 6 5 1 5 9 2 6 8 1 7 6 2 9 2 1 2 3 1 Su Doku þrautin snýst um aö raöa tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig aö hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 9-10 O LaughingSlocK Intðfnatlonal IncJUM. by Urtled Mðdto, 2004 HERMAN eftir Jim Unger Mér líður eins og það sé eitthvað að skríða á bakinu á mér.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.