blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 23
blaóió
ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 2007
31
Jeff Who? mætir á Ingólfstorg
Hafa legið undir feldi
Stórir útitónleikar verða haldnir
á Ingólfstorgi á fimmtudaginn
klukkan 17 þar sem nokkrar af
vinsælustu og efnilegustu hljóm-
sveitum landsins koma fram. Þeirra
á meðal er hljómsveitin Jeff Who?
sem sló rækilega í gegn síðastliðið
sumar með rokksmellnum Barfly.
Bjarni Lárus Hall er söngvari sveit-
arinnar og segist hann hlakka
mikið til tónleikanna.
„Það er alltaf gaman að koma
saman og taka lagið. Við höfum ekki
verið að hittast nóg upp á síðkastið en
höfum hins vegar legið svolítið undir
feldi við lagasmíðar og því kærkomið
að rokka svolítið fyrir mannskapinn.
Þar að auki munum við kynna til sög-
unnar splunkunýjan hljómborðsleik-
ara, Valdimar Kristjónsson, en Valdi-
mar þessi gerði garðinn frægan með
Bang Gang og hefur einnig verið eft-
irsóttur session-spilari í hljóðverum
landsins."
Tónleikarnir á fimmtudaginn
eru samstarfsverkefni Jafningjaf-
ræðslunnar og Landsbankans.
Tónleikarnir eru miðaðir að yngri
kynslóðinni þótt auðvitað séu allir
velkomnir. Meðal annarra hljóm-
sveita eru Jan Mayen, Æla, Kimono,
Skátar og Beikon. Bjarni segir rök-
rétt fyrir hljómsveitina að taka þátt
í þessu verkefni.
„Þetta er auðvitað gott málefni og
það er alltaf gaman að geta tekið
þátt í slíku. Auk þess átti Lands-
bankinn smá greiða inni hjá okkur,
en þeir styrktu hljómsveitina um æf-
ingarhúsnæði og okkur fannst því
tilvalið að taka eina tónleika fyrir
þá í staðinn," segir Bjarni sem telur
erfitt að toppa vinsældir Barfly.
„Til hvers að reyna? Ég held að
við séum ekkert að rembast við
það. Það gerist bara ef það gerist.
Við höfðum ekki hugmynd um vin-
sældir lagsins fyrirfram, annars
myndum við líklega einungis semja
slík lög,“ sagði Bjarni kíminn að
lokum.
BLOGGARINN.
Sturluö lögga
„Löggan getur ekki gætt öryggis borgar-
anna. Á hverri helgarnótt verður fólk fyrir
barsmíðum vitfirringa, sem ganga lausir.
Einn vinur iöggunnar er svo sterkur, að
hann reif upp vegstólpa til að nota sem
barefli. Er kannski hægt að fá einkafyrir-
tæki til að halda uppi lögum og reglu í
miðbænum? I stað þess að sinna skyld-
um sínum, eyðirlöggan tímanum íeltinga-
leik við saklausa mótmælendur. Þeir gera
auðvitað grín að henni og löggan sturiast.
Síðan hvenær mega menn ekki ganga
um götur án lögguleyfis? Heldur löggan,
að hún hafi löggjafan/aldið? Þarf ekki að
skipta útyfirmönnum hennar?"
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Handbendi
djöfulsins?
„Rio Tinto er eitt stærsta fyrirtæki heims
í námavinnslu og orkuiðnaði. Það fram-
leiðir og höndlar með ál, kopar, járn og
demanta og ergríðariega umsvifamikið
á heimsvísu. Þetta fyrirtæki hefur sætt
ámæli og harðri gagnrýni fyrir að misvirða
stéttbundin réttindi fólks auk þess sem
það hefur valdið gríðarlegum náttúruspjöll-
um t.d. ÍNýju-Gíneu. Þar var fyrirtækið
raunar sakað um að eiga þátt í borgara-
styrjöld sem braust út ílandinu. [...] Ég
tek undir með Össuri Skarphéðinssyni að
þessi tíöindi auki ekki vonir manna um að
sátt náist um umhverfismáI og nýtingu
náttúruauðlinda á Islandi.“
Ólína Þorvarðardóttir
blogg.visir.is/olina
Bíll við bíl
„Ég var einn afþeim sem festust íþessum
,umferðarþunga' sem var iraun umferðar-
teppa imeira en klukkutima igærkvöldi.
Ég var aö koma að norðan þar sem ég
eyddi hetginni og var varla kominn út úr
göngunum þá var komin þilalest alla leið i
Mosfellsbæinn. Þetta sýnir að ekkert má
útaf bera til þess að umferöin veröi svona,
ég vil fá Sundabraut helst bara ígær!!“
Guðsteinn Haukur Barkarson
zeriaph.blog.is
t
jroise *s mkom'
b„iðlr®>8
boriðfram
nieð
j
»‘"d* t , e,oiW
Engj^^^’ ” ,líjc|culaðistjðrnwm
tneðperam’karamellUm08
■„ukryddað tneð íuKK
Va vkni crémedelacre^ e
með hnetu-, **
bonðfram
^SL