blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
blaóiö
Kópavogshöfn
Vörubíll í sjóinn
Malarflutningabíll fór í sjóinn
við Kópavogshöfn um hádegisbil
í gær. Að sögn lögreglu var verið
að sturta af palli bílsins þegar jarð-
vegurinn gaf sig þannig að bíllinn
rann afturábak og ofan í sjóinn.
Ökumaður bílsins var einn í bílnum
þegar óhappið varð en honum tókst
að stökkva úr bílnum áður en hann
fór í sjóinn.
Starfsmönnum slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins tókst að ná bílnum
upp úr sjónum skömmu síðar og
virtist bíllinn lítið skemmdur, nema
hugsanlega af sjó. aí
Milljarðasamningurvið
Anheuser-Busch
Fyrirtækið Icelandic Glacial, sem
er í eigu Jóns Ólafssonar og Krist-
jáns sonar hans, hefur samið við
Anheuser-Busch um dreifingu á
íslensku vatni í Bandaríkjunum. An-
heuser-Busch er einn stærsti dreif-
ingaraðili á drykkjarvörum í Banda-
ríkjunum og er talið að andvirði
samningsins hlaupi á milljörðum.
Stöð 2 greindi frá.
Afkastageta nýrrar átöppunar-
verksmiðju nærri Þorlákshöfn, sem
verið er að reisa, verður þannig full-
nýtt og fer varan í flestar verslanir
Bandaríkjanna.
Verksmiðjan mun geta framleitt
um íoo - 200 milljónir lítra af vatni
á ári og er samningurinn líklega sá
stærsti sem gerður hefur verið um
vatnssölu á íslandi. mbi.is
Bifhjólamaður lést við Akrafjall
Bifhjólamaður á fertugsaldri lést
eftir árekstur við strætisvagn
á gatnamótum Akrafjallsvegar
og Innnesvegar um kvöldmatar-
leytið í gær. Hann hét Aðalsteinn
Davíð Jóhannsson, 35 ára,
búsettur á Akranesi. Aðalsteinn
Davíð lætur eftir sig eiginkonu
og tvö ung börn.
Hinn látni var á leið frá Akranesi
til vinnu, ásamt tveimur félögum
sínum, er hann lenti framan á
strætisvagninum sem var á leið
til bæjarins. Talið er að maðurinn
hafi látist samstundis. Annar
samferðamaður hins látna missti
einnig stjórn á'hjóli sínu og féll í
götuna, en slasaðist ekki. Málið er
til rannsóknar hjá lögreglunni á
Akranesi, en hefur hún þegar úti-
lokað að um hraða- eða ofsaakstur
hafi verið að ræða.
STUTT
• Sundslys Drengurinn sem
fannst á botni Kópavogslaugar í
apríl liggur enn meðvitundarlaus
á Barnaspítala Hringsins. Hann
er þó laus úr öndunarvél. Dreng-
urinn var að þreyta kafsundspróf
í skólasundi, en hann er í 10. bekk
Snælandsskóla.
• Kræklingar Umhverfisstofnun
varar við tínslu kræklings í
Hvalfirði um þessar mundir. Á
heimasíðu stofnunarinnar segir
að nýjustu mælingar á fjölda
svifþörunga í sjósýnum úr firð-
inum bendi til hættu á eitrun
í skelfiski. Ef magn eitraðra
svifþörunga er yfir viðmiðunar-
mörkum er veruleg hætta á að
kræklingur og annar skelfiskur
sé óhæfur til neyslu og geti
valdið veikindum.
Fjarskiptafyrirtæki fylgjast með sölu á Gagnaveitu Reykjavíkur
Spennandi tækifæri
Bæði Míla og Vodafone munu
fylgjast vel með söluferlinu á
Gagnaveitu Reykjavíkur sem nú
er hafið en forsvarsmenn beggja
félaga telja að um spennandi tæki-
færi sé að ræða.
Páll Á. Jónsson framkvæmda-
stjóri Mílu, dótturfyrirtækis
Símans, segir að enn hafi ekk-
ert verið rætt við fyrirtækið um
kaupin og í raun hafi hann fyrst
lesið um að þau stæðu til í Blaðinu
í gær. „Vissulega er þetta eitthvað
sem við höfum áhuga á,“ segir Páll
og bætir við: „Við munum auð-
vitað fylgjast vel með þessu.“
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, segir, eins og
Páll, að þetta séu nýjar fréttir og
að svo stöddu viti þau ekki nægj-
anlega mikið til þess að geta tjáð
sig um málið en segir það vissu-
lega vera áhugavert. „Við eigum
í talsverðum viðskiptum við
þetta ágæta fyrirtæki og þetta er
auðvitað mál sem snertir okkur.“
Hrannar segir að það verði for-
vitnilegt að fylgjast með framvind-
unni og bætir við: „Við fylgjumst
vel með, ekki spurning." ejg
Réttindalaus
eftir dvöl erlendis
■ Tekur hálft til eitt ár að ávinna sér full réttindi til orlofs og bóta
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
„Það liggur við að ferðamenn hafi
meiri réttindi en ég,“ segir Hildur
Heimisdóttir 27 ára tveggja barna
móðir sem er nýflutt aftur til Is-
lands eftir 5 ára búsetu í Danmörku.
Skattaleg lögheimilisfesta hennar
hefur alltaf verið hérlendis og árin
í Danmörku var hún í fjarnámi við
Fjölbrautaskólann við Ármúla og
Kennaraháskólann. „Þegar ég flutti
aftur til Islands i vor rak ég mig á
það að ég á hvorki rétt á atvinnuleys-
isbótum né fæðingarorlofi. Ég hef
nákvæmlega jafnmikil réttindi og
útlendingur sem tekur sér búsetu
hér.“
„Til þess að eiga rétt á greiðslu úr
fæðingarorlofssjóði þarf foreldri að
hafa greitt tryggingagjald í 6 mán-
uði fyrir barnsburð. Til þess að eiga
rétt á fæðingarstyrk þarf foreldri að
eiga lögheimili á Islandi við fæðingu
barns og 12 mánuði á undan,“ segir
Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður
Fæðingarorlofssjóðs. Þó er hægt að
gera undantekningu ef foreldri
hefur flutt lögheimili tímabundið
vegna náms í erlendum skóla.
I Danmörku er málum öðruvísi
háttað, en þar fékk Hildur fæðing-
arstyrk í kringum 120.000 krónur
mánaðarlega frá danska ríkinu án
þess að hafa borgað í nokkra sjóði.
„Þar er það talinn réttur barnsins að
hafa foreldri hjá sér 112 mánuði eftir
fæðingu.“
Fleiri réttindi fyrnast við flutning
af landi brott. Þóra Pétursdóttir, af-
Hildur Heimisdóttir Átti ekki rétt
til fæðingarorlofs er hún flutti heim.
greiðslustjóri Vinnumálastofnunar,
segir atvinnuleysisbætur einstak-
linga fyrnast við tiltekna dvöl er-
lendis, þó að bótaréttur geti geymst
í allt að þrjú ár. „Bótaréttur einstak-
lings, sem fer til vinnu erlendis,
fyrnist á tveimur árum meðan
réttur einstaklings, sem fer í nám
erlendis, fyrnist á þremur árum.“ Ef
hins vegar einstaklingur er lengur
en þann tíma í burtu tekur það ár í
fullu starfi hér á landi að vinna sér
inn rétt til atvinnuleysisbóta.
„Það kom ansi flatt upp á mig
hversu hratt réttindi mín fyrndust
þar sem ég hef alltaf verið í fjar-
námi á Islandi og borgað skólagjöld
þangað, er fædd og uppalin á íslandi
og hef verið hérna á sumrin síðustu
ár. Ég hélt að það væri nóg til þess að
halda í réttindi mín,“ segir Hildur.
FLUTNINGUR MILLI LANDA
► Einstaklingur sem flyst til
landsins eftir 36 mánaða
dvöl eða lengri erlendis þarf
að hafa með sér E-104-vott-
orð, annars er sá ekki
sjúkratryggður í 6 mánuði.
► Ef atvinnulaus einstakling-
ur ætlar í atvinnuleit til
EES-lands getur hann að
uppfylltum skilyrðum fengið
heimild til að halda atvinnu-
leysisbótum í allt að þrjá
mánuði meðan á atvinnuleit-
inni stendur.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
r
White-Westinghouse
ÞVOTTAVEL
• Topphlaðin
• 11 kg af þurrum þvotti.
- Vindurvel.
• Fljót að þvo.
■ Sparneytin.
• Tekur heitt og kalt vatn.
RAFVORUR
DALVEGI 16c • 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 • WWW.RAFVORUR.IS
VEÐRIÐ í DAG
Skýjað suðaustanlands
Hæg suövestlæg eða breytileg átt, víða
bjartviðri, en skýjað að mestu suðaustan-
lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast inn til lands-
ins, en heldur svalara úti við norður- og
austurströndina.
AMORGUN
Allt að 20 stig á Austurlandi
Sunnan 5-8 m/s vestan til, skýjað og súld
úti við ströndina, en annars hægari og
víða bjartviðri. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á
Austurlandi.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 25
Amsterdam 21
Ankara 31
Barcelona 27
Berlín 28
Chicago 28
Dublln 15
Frankfurt 25
Glasgow 15
Halifax 23
Hamborg 22
Helslnkl 25
Kaupmannahöfn 23
London 19
Madrid 28
Mflanó 33
Montreal 18
Miinchen 29
New York 23
Nuuk 9
Orlando 26
Osló 17
Palma 28
París 24
Prag 28
Stokkhólmur 22
Þórshöfn 10
Minnsta úr-
koma í 68 ár
Miklir þurrkar hafa verið í Borg-
arfirði undanfarinn mánuð. 1
Stafholtsey hefur aðeins mælst
9 mm úrkoma síðan n. júní.Þar
hefur ekki mælst meiri þurrkur
á þessu tímabili síðan mælingar
hófust. Það sama á við um
Síðumúla þar sem veðurstöð
var áður en Stafholtsey tók við,
en þar hefur ekki mælst minni
úrkoma síðan 1939.1 viðtali við
Skessuhorn segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur að hitatölur séu
þó ekki í hámarki vegna kaldra
nátta. Hins vegar séu sólskins-
stundir ábyggilega yfir meðaltali,
þótt ómögulegt sé að staðfesta
það án mælinga.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaösins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.