blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 6
6 FRETTIR MIOVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 blaðið Sniglarnir Bílar og hjól í samlyndi Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, efna til keyrslu í kvöld klukkan 18.30 frá bílaplani KFC í Mosfellsbæ. Bæði bílar og hjól eru velkomin og verður ekið inn að Gljúfrasteini í Mosfellsdal, þar sem verður snúið við og ekið aftur inn í Mosfellsbæ. {tilkynningu frá Sniglunum segir að tilgangur keyrslunnar sé að sýna fram á að bifhjól og bifreiðar eiga samleið í umferð- inni og minna á að tillitsemi þeirra á milli er lykill að ör- uggari umferð. Bifhjólamenn eru sérstaklega hvattir til að vera með hvítan borða þvert yfir bringuna tii að minna á notkun bílbelta. aí Kom í veg fyrir stórslys Við stórslysi lá á Bíldudal í gær þegar stór krani féil á hliðina og var það snarræði kranamanns sem varð til þess að ekki varð slys á fólki. Hann náði að snúa bómunni til áður en kranninn valt þannig að hann féll ekki á nærliggjandi hús. Kranamaðurinn slapp ómeiddur en kraninn er mikið skemmdur og jafnvel ónýtur. Þá féllu björg á veginn um Óshlíð í gærmorgun og fór í gegnum öryggisnet sem þar er. Engir bílar voru nærri þegar steinarnir fjórir, sem voru nokkuð stórir að sögn lögreglu, féllu. Að öðru leyti hefur allt verið með ró og spekt í um- dæmi lögreglunnar á ísafirði að undanförnu. bb.ls Vilja láta rífa Valhöll H Slökkviliðsstjórinn og Össur Skarphéðinsson segja að rífa eigi Hótel Valhöll ■ Margra ára barátta að koma brunavörnum á hótelinu í lag ■ Vantar vatn í vatnsúðakerfið Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Það er ekki nægilega mikið vatn í vatnsúðakerfinu á Hótel Valhöll. Ot- göngur og neyðarljós eru hins vegar í lagi og þess vegna tel ég að fólk eigi möguleika á að komast út ef eldur kemur upp. Húsið sjálft er klætt að innan með trétexi sem var að hluta olíusoðið og er því feiknarlegur elds- matur. Það er í raun handónýtur hjallur sem þarf að rífa,“ segir Krist- ján Einarsson, slökkviliðsstjóri á Selfossi. Fyrir fáeinum árum iét slökkvi- liðsstjórinn loka starfsmannaað- stöðu uppi á lofti hótelsins á Þing- völlum vegna ónógra útgönguleiða fyrir starfsfólk. „Fólk svaf þar stundum og það hefði ekki átt neina möguleika á að bjargast. Við teljum að eldur muni breiðast mjög hratt út miðað við byggingarlag hússins.“ HÓTEL VALHÖLL ► Hótel Valhöll var fyrst reist á Völlunum nærri Köstulum árið 1898. Veturinn 1928 til 1929 var húsið hlutað sundur og dregið á sleðum vestur yfir Öxará á núver- andi stað. í áranna rás hefur húsið verið aukið og endurbætt. ► í stefnumótun Þingvalia- nefndar til 2024, sem sam- þykkt var 2004, segir að Val- höll muni því aðeins standa til frambúðar að ráðist sé í róttækar og kostnaðarsam- ar viðgerðir. Margra ára barátta Kristján segir það hafa verið margra ára baráttu að koma bruna- vörnum á hótelinu í þokkalegt ástand. „Eftir að ríkið keypti hús- næðið var að vísu lokið við að setja upp vatnsúðakerfi í gistiálmu en ekki í veitingasal og eldhúsi eins og við höfðum farið fram á. Við höfum verið að berjast fyrir því að lokið verði við vatnsúðakerfið og að nægj- anlegt vatn verði á því en við höfum ekki fengið neina skýrslu sem sýnir að þetta sé í lagi. Þegar við höfum verið að ýta á eftir mönnum vegna þessa hafa þeir sagt að ekki sé vitað hvað eigi að gera við húsnæðið og það er reyndar alveg rétt hjá þeim.“ Af og f rá að endurbyggja Össur Skarphéðinsson, iðnað- arráðherra og varaformaður Þing- vallanefndar, er einnig þeirrar skoð- unar að rífa eigi Hótel Valhöll. „Ég tel það jafnframt af og frá að endur- byggja Valhöll eins og hún er núna. Þarna er kraðak húsa sem hefur verið klastrað saman aftan við upprunalega byggingu. Kostnaður- inn við endurbyggingu yrði einnig gríðarlegur." Rætt hefur verið um byggingu húss til afnota fyrir ríkið og Alþingi á Þingvöllum í stað þess að endur- byggja Valhöll. Össur kveðst reiðu- búinn að skoða þá hugmynd. „1 þeirri byggingu væri hægt að halda þingsetningarfund í upphafi hvers þings og heiðra með því uppruna Al- þingis við Öxará. Ríkisstjórnin gæti jafnframt átt þar aðild að smærri ráðstefnum sem tengjast menningu og náttúru." Það er skoðun Össurar að byggja megi hótel eða veitingastað á svæð- inu áður en komið er inn í þjóðgarð- inn telji menn þörf á slíkum rekstri. „Það væri hægt að gera það á þeim jörðum sem hugsanlega má kalla áhrifasvæði þjóðgarðsins. Þjóð- garðurinn er gríðarlega fjölsóttur. Það þarf að gera allt til að áníðsla verði meiri en hún er orðin, ekki síst vegna þess að lífríki Þingvalla- vatns er gríðarlega viðkvæmt fyrir mengun.“ Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur - fyrir sumarbústaðinn og veiðihúsið Bjarni Ómar Ragnarsson - verslunarstjóri hjá RV 25 Rekstrarvörur 'ára 1982-2007 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2*110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Grindvíkingar uggandi vegna aflaskerðingar Kemur verst niður á Grindavík af öllum bæjum Bæjarráð Grindavíkur lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra um 63 þúsund tonna skerðingu á aflamarki þorsks á næsta fiskveiðiári. I bókun bæj- arráðs segir að af öllum sveitarfé- lögum landsins, þá komi Grindavík verst út úr skerðingunni. Því sé nauðsynlegt að hefja viðræður við stjórnvöld þegar í stað og hefur bæj- arstjóri þegar óskað eftir fundi með forsætisráðherra um málið. Kristján Möller samgönguráð- herra kynnti í síðustu viku tillögur ríkisstjórnarinnar um flýtingu vegaframkvæmda sem hluta af mótvægisaðgerðum gegn skerðing- unni. Þar á meðal var flýting á Suð- urstrandarvegi milli Grindavíkur og Þorlákshafnar. Bæjarráð bendir á að sú framkvæmd geti vart talist mótvægisaðgerð þar sem loforð um uppbyggingu vegarins hafi margoft verið svikið. í bókuninni eru jafnframt týnd til verkefni sem tiltækar eru sem mót- vægisaðgerðir í bæjarfélaginu. Má þar nefna eflingu þorskeldis, skuld- breytingar lána hafnarsjóðs, efl- ingu framhaldsnáms og flutningur opinberra starfa til Grindavíkur. Þá er lagt til að tekjur ríkisins vegna Grindavík Bæjarráð Grindavíkur harmar Hitaveitu Suðurnesja verði notaðar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um niður- til uppbyggingar á Suðurnesjum. s^ur^ s aflamarki þorsks. magnus@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.