blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 8
8
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
blaðió
Árásin í Glasgow
Þóttist vera á
fslandi
Nýjar upplýsingar hafa komið
fram um að Indverjinn
Sabeel Ahmed hafi vitað um
aðild og undirbúning bróður
síns Kafeel að misheppnaðri
hryðjuverkaárás á Glasgow-
flugvöll. Á fréttavef indversku
sjónvarpsstöðvarinnar NDTV
segir að Kafeel, sem liggur nú
illa brunninn á sjúkrahúsi
eftir að hafa ekið bíl á flug-
stöðvarbygginguna, hafi fyrir
árásina sent Sabeel sms-boð
með lykilorði að tölvupósthólfi.
Þar hafi fundist bréf til Sabeel
þar sem honum var skipað að
segja öllum sem spurðust fyrir
að Kafeel væri að vinna að
verkefni um hlýnun jarðar og
staddur í fríi á íslandi.
Sabeel hefur þegar verið
ákærður fyrir að veita lögreglu
ekki upplýsingar um árásina,
en hann neitar sjálfur sök.
BARNA VÍT
Néttúruksg vitamín og steinefni
fyrir bðrn til að tyggja eða sjúga
120 töfiur
Bragðgóðar vítamíntöflur
fyrir börn og unglinga
heilsa
-haföu þaö gott
Hóta brottvísun
áttatíu Breta
■ Deila Breta og Rússa ógnar samstarfi ríkjanna í baráttu gegn
hryðjuverkum ■ Segja aðgerðir Breta ósiðlegar og ögrandi
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Rússnesk stjórnvöld hafa hótað
að vísa allt að áttatíu breskum er-
indrekum úr landi vegna ákvörð-
unar breskra stjórnvalda að reka
fjóra erindreka á vegum Rússlands-
stjórnar úr Bretlandi. Alexander
Grushko, aðstoðarutanríkisráð-
herra Rússlands, sagði jafnframt
að deila ríkjanna kynni að spilla
fyrir samstarfi ríkjanna í barátt-
unni gegn hryðjuverkum. „Það er
verið að refsa okkur fyrir það eitt
að framfylgja okkar eigin stjórn-
arskrá." Búist var við að rússnesk
stjórnvöld myndu tilkynna um
mótvægisaðgerðir sínar gegn
Bretum í gær, en ákveðið var að
fresta því.
Rússnesku erindrekarnir voru
reknir úr Bretlandi vegna ákvörð-
unar Rússa að neita að framselja
fyrrum KGB-njósnarann Andrei
Lugovoi, grunaðan morðingja Alex-
anders Litvinenkos, til Bretlands
þannig að hægt væri að ákæra
hann í málinu. Lugovoi hefur
sjálfur neitað sök í málinu og segir
ásakanir á hendur sér séu af pólit-
ískum rótum sprottnar.
Ósanngjörn refsing
í yfirlýsingu frá Rússlandsstjórn
segir að Bretar séu að refsa Rússum
með mjög ósanngjörnum hætti.
Grushko benti á að Bretar hafa
sjálfir áður hafnað því að framselja
2i Rússa sem stjórnvöld í Moskvu
hafa krafis t framsals á. Bretar
mættu því eiga von á því að um átta-
tíu breskir erindrekar yrðu reknir
úr Rússlandi, úr því Bretar hefðu
rekið fjóra úr landi eftir að framsals-
beiðni eins manns var hafnað.
Rússar höfðu áður varað við að
vísun rússnesku erindrekanna úr
Bretlandi kynnu að hafa „alvarlegar
afleiðingar“ í för með sér. Erind-
rekarnir hafa enn ekki verið nafn-
greindir, en fréttastofa BBC hefur
heimildir fyrir því að þeir séu starfs-
menn rússnesku leyniþjónustunnar.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Breta, segir Breta ekki munu biðjast
afsökunar á brottvísuninni. „Við
viljum hafa góð samskipti við Rússa,
en vegna samvinnuskorts var nauð-
synlegt að grípa til aðgerða.“
Ósiðlegt og ögrandi
David Miliband, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði þegar hann
tilkynnti um brottvísun Rússanna
fjögurra að verið væri að gefa
stjórnvöldum í Moskvu skýr og við-
eigandi skilaboð. í yfirlýsingu til
breska þingsins sagðist Miliband
vera að endurskoða samstarf ríkj-
anna tveggja og viðræður þeirra um
að rýmka reglur um vegabréfsárit-
anir hafi verið hætt. Talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins sagði
hins vegar að aðgerðir Breta væru
ósiðlegar og ögrandi.
í STÍL KALDA STRÍÐSINS
► Eitrað var fyrir Alexander
Litvinenko, fyrrum njósnara
KGB og andstæðingi Pútíns
Rússlandsforseta, með
geislavirka efninu póloníum-
210 í Lundúnum í nóvember
á síðasta ári.
►
Bresk stjórnvöld fóru fram
á framsal Lugovoi í lok
síðasta mánaðar, þegar sak-
sóknari sagðist hafa aflað
sér nægra sönnunargagna
til að ákæra hann. Rússar
höfnuðu beiðninni formlega
þann 9. júlí.
►
Samkvæmt Evrópusamn-
ingi um framsal sakamanna
frá 13. desember 1957 er
Rússum heimilt að hafna
framsalsbeiðni Breta.
VILTU VITA MEIRA?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
A RIÐILL
18. JÚLÍ : 16:00
18. JÚLl : 19:15
VlKINGSVÖLLUR
LAUGARDALSVÖLLUR
DANMÖRK - ÞÝSKALAND
ISLAND - NOREGUR
B RIÐILL
18. JÚLl : 16:00 : PÚLLAND - ENGLAND
18. JÚLl I 16:00 I SPÁNN - FRAKKLAND
FYLKISVÖLLUR
KÚPAVOGSVÖLLUR
OR STYRKIR
FRITT A LEIKINA TBOÐI OR
Argentína
Meö mútur
á klósettinu
Felisa Miceli, efnahagsmála-
ráðherra Argentínu, hefur
sagt af sér embætti eftir að
hafa hafa sætt ásökunum um
spillingu. Ríkissaksóknari
hefur ákært Miceli þar sem
seðlar að andvirði um fjögurra
milljóna króna fundust í skáp í
baðherbergi á skrifstofu Miceli
í síðasta mánuði.
Miceli segir sjálf að bróðir
hennar hafi lánað henni pen-
ingana og hún hafi ætlað að
nota þá til að kaupa sér hús.
Málið kemur sér afskaplega illa
fyrir ríkisstjórn landsins, þar
sem stjórnmálamenn í Argent-
ínu hafa oft verið sakaðir um
mútuþægni og spillingu.
Sádi-Arabía
Aftökum fjölgar
Tveir menn sem áður höfðu
hlotið dauðadóma voru háls-
höggnir með sverði í Medina
og Jiddah í Sádi-Arabíu í gær.
106 manns hafa verið teknir af
lífi það sem af er ári og hefur
aftökum fjölgað mikið sam-
anborið við síðustu ár. Annar
mannanna hafði verið dæmdur
fyrir fjölda kynferðisbrota og
hinn fyrir eiturlyfjasmygl.
Dauðadómur liggur við nauðg-
unum, morðum, ránum, eitur-
lyfjasmygli og fleiru í Sádi-Ar-
abíu og fara aftökur yfirleitt
fram á opinberum vettvangi.
STUTT
• Morð Tuncay Seyranlioglu,
óháður frambjóðandi í þingkosn-
ingunum í Tyrklandi sem fram
fara á sunnudaginn, var skotinn
til bana í Istanbúl í gærmorgun.
Hinn 42 ára gamli Seyranlioglu
var eigandi byggingafyrirtækis
og dagblaðs.
• Skotárás Byssumenn klæddir
búningum í rakshers drápu 29
manns þegar þeir réðust inn í
bæinn Duwailiya í Diyala-hér-
aði í norðurhluta fraks í gær. Að
sögn írakskra embættismanna
voru fórnarlömbin sjítar.
• Hjúskaparbrot Pius Ncube,
kaþólski erkibiskupinn í Simb-
abve og einn mesti andstæðingur
Roberts Mugabe forseta, hefur
verið ákærður fyrir hjúskapar-
brot. í ákæru segir að hann hafi
átt í tveggja ára ástarsambandi
við ritara á skrifstofu sinni.
• Jarðskjálfti Yfirvöld í Japan
hafa staðfest að níu manns hafi
látist og nærri þúsund manns
slasast í jarðskjálftunum
tveimur sem riðu yfir vestur-
strönd Japans á mánudaginn.
• Lfbfa Svo virðist sem samkomu-
lag hafi náðst um náðun búlg-
arskra hjúkrunarfræðinga og pal-
estfnsks læknis sem voru dæmd
til dauða fyrir að sýkja 440 börn
af HlV-veirunni. Byrjað var að
greiða skaðabætur til fjölskyldna
fórnarlambanna í gær.