blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 blaðiö FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net Það eru þess dæmi að hermenn sem hafa fengið gervilimi frá okkur hafi farið aftur í herinn. SPRON verður hlutafélag Stjórn SPRON samþykkti í gær að undirbúa breytingu sparisjóðsins í hlutafélag og óska eftir skrán- ingu félagsins í OMX Norrænu kauphöllina íslandi. Samkvæmt lögum um fjármála- fyrirtæki er breyting sparisjóðs- ins í hlutafélag háð samþykki stofnfjáreigenda og Fjármálaeftir- litsins en boðað verður til fundar stofnfjáreigenda seinnihluta ágúst. Við breytingu sparisjóðsins í hlutafélag skal, samkvæmt ofangreindum lögum um fjár- málafyrirtæki, óháður aðiíi meta markaðsvirði hans og gagngjald fyrir stofnfjárhluti. Samkvæmt lögunum mun það hlutafé sem ekki rennur til stofnfjáreigenda verða eign sjálfseignarstofn- unar sem setja skal á stofn við breytinguna. Stefnt er að því að óska eftir því við OMX Norrænu kauphöllina íslandi að SPRON verði skráð í september næstkomandi. Murdoch vill Dow Jones News Corporation, fjölmiðla- veldið í eigu auðkýfingsins Ru- perts Murdochs, hefur náð bráða- birgðasamkomulagi um kaup á Dow Jones & Co., útgáfufyrir- tækinu sem meðal annars gefur út hið virta Wall Street Journal. Murdoch lagði fram 5 milljarða dollara tilboð i Dow Jones, sem jafngildir 320 milljörðum ís- lenskra króna. Kaupin eru því ekki frágengin því Bancroft-fjöl- skyldan, sem á ráðandi hlut í Dow Jones, þarf að samþykkja tilboðið. Fregnir herma að skiptar skoð- anir séu innan fjölskyldunnar vegna sölunnar. Obreyttir stýri- vextir í Japan Seðlabankinn í Japan ákvað í fyrradag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. í kjölfarið veiktist gengi jensins gagnvart helstu myntum á gjald- eyrismarkaði. Tólf prósent af heildarlánum íslenskra heimila er í erlendri mynt, þar af stór hluti i jenum. Dow Jones aldrei hærri Bandaríska hlutabréfavísitalan fór yfir fjórtán þúsund stig fljótlega eftir opnun markaða á Wall Street í New York í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem vísitalan nær að rjúfa 14 þúsund stiga múrinn en hún hefur hækkað jafnt ogþétt undanfarna viðskiptadaga. Áhrifa af sölu Actavis farið að gæta Verðmæti þeirra hluta Actavis sem voru ekki í eigu félaga tengdum Novator nemur samtals um 180 milljörðum króna. Yfir 90% hluthafa Actavis hafa sam- þykkt yfirtökutilboð Novator í félagið. Stór hluti fjármunanna mun falla tæplega 4.000 ís- lenskum hluthöfum í skaut þann 23. júlí nk. þegar uppgjör viðskipt- anna fer fram, eftir því sem fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Þar kemur fram að áhrifa af sölunni sé þegar farið að gæta á íslenskt hagkerfi og má að einhverju leyti skýra hækkun á gengi hlutabréfa og styrkingu krónunnar undanfarið með flæði þessa fjármagns inn á markaðinn. mbl.is • • Ossuri gengur vel í Bandaríkjunum ■ Langflestir hermenn sem missa fætur í írak fá gervilimi frá fyrir- tækinu ■ Endurhæfing vegna stríðsins vekur athygli í fjölmiðlum Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Islenski stoðtækjaframleiðandinn Össur hefur á undanförnum árum aukið umsvif sín í Bandaríkjunum og á meðal annars í góðu samstarfi við bandaríska herinn. Sú samvinna felur í sér að Össur sér þeim her- mönnum sem snúa til baka frá átaka- svæðum án útlima fyrir gervilimum. „Við höfum aukið mjög umsvif okkar í Bandaríkjunum og höfum meðal annars mjög mikla samvinnu við heilbrigðisstofnanir hersins,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Öss- urar, og bætir við: „Við höfum verið að auka samvinnu okkar við þessar stofnanir mjög mikið. Við erum einn af langstærstu aðilunum sem selur þessar lausnir.“ Jón tekur sem dæmi að hann telji að langflestir Íieirra hermanna sem missa útlimi í rak fái gervilimi frá Össuri. Vörurnar hjálpa fólki „Það eru að koma þarna á færibandi ungir menn sem hafa misst útlimi og það er hræðilegra en tárum taki að horfa upp á þetta,“ segir Jón og kveðst glaður að sú vara sem Össur býður upp á geti hjálpað þeim út í lífið aftur. „Það eruþess dæmi að her- menn sem hafa fengið gervilimi frá okkur hafi farið aftur i herinn," segir Jón og nefnir í því samhengi einn talsmanna fyrirtækisins í Bandaríkj- unum. „Hann hætti ekki í hernum þrátt fyrir að hafa misst fót,“ segir Jón. Hann segir það skipta herinn miklu máli að geta haldið mönnum í herþjónustu þrátt fyrir slys enda liggi mikill kostnaður í þjálfun hvers hermanns. Jón segir aðspurður hvort að stríð eins og Íraksstríðið hraði þróun gervilima að svo sé ekki. „Við hefðum þróað þessar vörur eftir sem áður. En auðvitað hjálpar þessi athygli, sem er vegna stríðsins, iðn- aðinum,“ segir Jón og bætir við: „Óbeint hafa allar endurhæfingar- greinar fengið aukna athygli. Þetta hefur fengið aukið pólitískt vægi í kjölfar stríðsins.“ Jón tekur þó fram að þessi samvinna við herinn sé aðeins lítill hluti af umsvifum fyrirtækisins í Bandaríkjunum. „I gegnum samstarf okkar við her- inn höfum við útvegað tæplega 700 manns gervilimi en alls um 200 þúsund manns í Bandaríkjunum, þannig að þetta er bara örlítill hluti,“ segir Jón. Vekurvon Jón segir að suðurafríski sprett- hlauparinn Oscar Pistorius hafi vakið gríðarlega athygli í Banda- ríkjunum en hann segir Pistorius gefa fólki sem hefur misst útlimi mikla von. „Þess vegna vekur þetta svo gríðarlega mikla athygli,“ segir Jón. Hann segir Pistorius hafa verið umsetinn fjölmiðlum þar vestra þegar hann var þar og hafi komið fram í mörgum stórum sjónvarpsþáttum. ÖSSUR ► Varð til snemma á áttunda áratug 20. aldar. ► Er leiðandi í hönnun stoð- tækja. ► Er annar stærsti stoðtækja- framleiðandinn í heiminum. ► Hefur 1600 starfsmenn á 14 starfsstöðvum víðs vegar um heim. Sérverslun með kvensilfur / ♦ & A e-í Margar gerðir af búningasilfri. Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn, settið frá 90.530, kr. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veíttar á staðnum. Gullkistan - Frakkastíg 10 - Simi: 551-3160. MARKAÐURINN í GÆR Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 17. júlf 2007 • Mest viðskipti í kauphöll OMX voru með bréf Kaupþings, fyrir tæpa 4 milljarða króna. • Mesta hækkunin var á bréfum Landsbankans, 2,25%. Bréf Glitnis hækkuðu um 1,53% og bréf Kaupþings um 1,46%. • Mesta lækkunin í gær var á Vióskipti í krónum ATH. = Athugunarlisti Félög í úrvalsvísitölu ♦ Actavis Group hf. a Atorka Group hf. Bakkavör Group hf. A Existahf. * FLGrouphf. Viöskipta- verð 86,20 9,22 71,50 39,75 30,20 Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi breyting viðsk.verðs viðskipta 0,00% 17.7.2007 6 0,99% 17.7.2007 13 0,42% 17.7.2007 15 1,02% 17.7.2007 48 0,83% 17.7.2007 52 Heildar- viðskipti dagsins 3.495.138 39.891.594 206.451.069 1.759.471.358 1.087.210.344 Tilboö í lok dags: Kaup Sala 85.50 86,20 9,18 9,26 71.50 72,00 39,55 39,75 30,10 30,20 a Glitnir banki hf. ▼ Hf. Eimskipafélag Islands a lcelandair Group hf. A Kaupþing banki hf. 29,85 39,50 31,00 1255,00 1,53% -0,50% 0,81% 1,46% 17.7.2007 17.7.2007 17.7.2007 17.7.2007 55 6 10 95 1.970.712.059 22.506.668 263.508.632 3.967.036.445 29,85 39,40 30,90 1249,00 29,90 39,80 30,95 1255,00 Landsbanki íslands hf. 40,90 2,25% 17.7.2007 69 2.230.904.694 40,80 40,90 bréfum Atlantic Petroleum, eða ♦ Mosaic Fashions hf. 17,00 0,00% 12.7.2007 - - 16,00 0,83%. a Straumur-Burðarás Fjárf.b. ht. 22,95 1,32% 17.7.2007 106 2.201.543.786 22,90 22,95 Teymihf. 5,73 0,17% 17.7.2007 9 8.745.133 5,68 5,73 A Össurhf. 108,00 1,41% 17.7.2007 6 111.856.574 106,50 108,00 • Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,28% í gær. f lok dags stóð hún í Önnur bréf á Aðallista * 365 hf. 3,40 0,59% 17.7.2007 3 164.906 3,36 3,40 a Atfesca hf. ▼ Atlantic Petroleum P/F 5,95 1081,00 0,51% -0,83% 17.7.2007 17.7.2007 6 2 26.733.680 240.609 5,92 1081,00 5,99 1095,00 8.875 stigum og hefur aldrei verið * EikBanki 717,00 0,99% 17.7.2007 16 60.580.188 708,00 722,00 hærri. ♦ Flaga Group hf. 1,86 0,00% 16.7.2007 - - 1,86 1,87 a Foroya Bank 238,00 2,59% 17.7.2007 14 72.747.357 234,00 238,00 • (slenska krónan styrktist um ♦ lcelandic Group hf. 6,35 0,00% 16.7.2007 - - 6,32 6,40 * Marel hf. 94,00 0,53% 17.7.2007 9 10.500.228 93,60 94,00 0,85% prósent í gær. ♦ Nýherjihf. 19,50 0,00% 16.7.2007 - - 19,50 23,00 * Tryggingamiðstöðin hf. 39,35 0,00% 16.7.2007 - - 39,25 39,40 • Samnorræna OMX40-vísitalan ♦ Vinnslustöðin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - - First North á islandi ▼ Century Aluminium Co. 3895,00 ■0,05% 17.7.2007 7 70.654.570 3888,00 3923,00 og þýska DAX-vísitalan lækkuðu báðar um 0,80% í gær. Breska ♦ HBGrandihf. 12,00 0,00% 2.7.2007 - - 11,00 ♦ Hampiðjanhf. 6,80 0,00% 20.6.2007 - 6,80 FTSE-vísitalan lækkaði um 0,6%.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.