blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLHEIMILI
heimili@bladid.net
Ef vökvað er með ísköldu vatni þá
fær plantan hitasjokk og getur tekið
mikinn afturkipp.
Fataherbergi
Ríka og fræga fólkið hefur
löngum þurft heilu herbergin
undir fötin sín og skóbúnað. Það
hefur færst mjög í vöxt hérlendis
að fólk geri ráð fyrir fataher-
bergjum í nýbyggingum. Þá er
meira pláss í svefnherberginu og
fataherbergið kemur svo yfirleitt
inn afþví.
Ekki langtíma
áhrif
Þó að heitt sé í veðri þessar vik-
urnar hefur það ekki langtíma
áhrif á tré og runna að mati
Bjarnheiðar Erlendsdóttur skrúð-
garðyrkjumeistara. „Það þarf
mjög mikið til þess að þurrkur-
inn hafi áhrif á tré og runna sem
hafa verið lengi í jörðu. Það er
mjög rakur jarðvegurinn djúpt
niðri og þetta veðurfar er ein-
stakt. Hins vegar geta þau tré sem
eru nýlega gróðursett farið illa út
úr þessum þurrki ásamt sumar-
blómunum. Því verður að passa
að halda að þeim vatni.“
í veðurblíðunni er mikilvægt að huga vel að gróðrinum
íslendingar vökva of lítið
Valborg Einarsdóttir,
starfsmaður Garðyrkju-
félags íslands, segir að
íslendingum hætti til
að vökva of lítið, og
verði að taka sig á í þeim
efnum. Að mati hennar
er ástandið einstaklega
slæmt núna.
Eftir Lovisu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Veðrið hefur leikið við íbúa Suð-
vesturhornsins síðustu daga og
vikur. Þegar ekki hefur rignt lengi
verður að passa vel upp á allan
gróður svo hann skrælni ekki.
Valborg Einarsdóttir segir að ís-
lendingar verði að vökva garðana
sína.„Vatn er eitt aðalnæringarefni
plantna. íslendingum hættir til að
vökva of lítið, það er alveg merkilegt
miðað við allt vatnið sem við höfum
aðgang að. Jafnvel þegar það er
venjulegt sumar og ekki svona veð-
urblíða þá er vindþurrkur, viðkvæm-
ari plöntur og nýgræðlinga þola það
illa. Fólk á það til að vanmeta hversu
mikið vatn plöntur þurfa. Snemma
á vorin þegar það eru kaldir vindar
þá er enginn að vökva en þá er það
einmitt mjög nauðsynlegt,“ segir
Valborg.
Slæmt ástand
Að sögn Valborgar er ástandið
einstaklega slæmt núna. „Veðráttan
undanfarið er eitthvað sem við
eigum ekki að venjast og því er mjög
mikilvægt að við vökvum. Þegar
verið er að vökva er gott að gera það
lengur og sjaldnar. Það gerir tak-
markað gagn að rétt bleyta garðinn
sinn á hverjum degi. Það þarf að sjá
til þess að sjö efstu sentímetrarnir í
jarðveginum blotni annars er ekkert
gagn í því að vökva,“ segir Valborg.
Ekki kalt vatn
Samkvæmt Valborgu á ekki að
nota ískalt vatn þegar verið er að
vökva plöntur og garða. „Ef vökvað
er með ísköldu vatni þá fær plantan
hitasjokk og getur tekið mikinn
afturkipp. Þegar fólk er að vökva í
sól þá er best að nota ylvolgt vatn,
það er hins vegar ekki gott að
vökva í sól því þá er plantan að ná
mestum hita og vexti. Ef fólk hefur
eingöngu aðgang að ísköldu vatni
þá er best að vökva seint á kvöldin
eða eldsnemma á morgnana," segir
Valborg.
Gott að nota áburð
Valborg segir að einnig sé gott að
nota áburð á sumarblómin. „Ég set
áburð á sumarblómin annað slagið,
það er gott að setja áburð í fjórða
hvert skipti sem blómin eru vökvuð.
Ef þetta er gert verður blómgunin
miklu meiri. Þegar blóm eru
vökvuð skiptir máli að hafa góðan
sturtuhaus á slöngunni. Ef slangan
GARÐYRKJUFÉLAGIÐ
Garðyrkjufélag íslands var
stofnað 26. maí 1885.
Fyrsti formaður félagsins
var Georg Hans Schierbeck
landlaeknir.
Þetta er félag áhugamanna
um garðyrkju, án tillits til
menntunar eða starfa.
er notuð ein og sér þá fer moldin út
um allt og gerir garðinn sóðalegan,“
segir Valborg
Góð lausn
Að sögn Valborgar eru vatnskrist-
allar góð lausn þegar það er mikill
þurrkur. „Vatnskristallar draga til
sín vatn og þenjast út hvert skipti
sem plantan er vökvuð. Þegar
moldin verður þurr þá ganga ræt-
urnar á vökvann sem hefur safn-
ast fyrir í vatnskristöllunum. Það
verður að passa að nota ekki of
mikið af þeim því ef það kemur rign-
ing þá drukkna plönturnar. Mér per-
sónulega finnst þetta alveg frábært
og nota þetta mikið.“
VIÐ HEIMTUM ÓDÝRA FARSÍMA
agerinn.is
ars
Vatnskristallar, nýjung á þurrkatímum
Halda raka á plöntunum
Bjarnheiður Erlendsdóttir skrúð-
garðyrkjumeistari flytur inn svo-
kallaða vatnskristalla. Hún notaði
þá mikið þegar hún sá um gróður-
inn í Reykjanesbæ og gáfu þeir góða
raun. Þessir kristallar koma sér vel
núna, því þurrkurinn hefur verið
mikill.
Að sögn Bjarnheiðar eru kristall-
arnir frábærir fyrir allan gróður.
,Þetta er notað á blóm, runna, tré
og einnig er þetta mjög sniðugt
undir þökur. Kristallarnir soga i sig
vatnið þegar rignir eða þegar það er
vökvað og við það margfaldast um-
mál þeirra. Þegar moldin þornar
draga ræturnar í sig vatnið frá krist-
öllunum. Ég legg mikla áherslu að
nota kristalla mettaða með vatni,
setja þá blauta niður í holuna með
rótum plantnanna og þá koma þeir
strax að notum og byrja að miðla
vatninu til plöntunnar. Næst þegar
vökvað er eða rignir þá mettast
þeir aftur. Undir grasþökur er best
að strá þeim þurrum og vökva svo
vel á eftir. Þetta kemur ekki í veg
fyrir vökvun en minnkar hana
umtalsvert," segir Bjarnheiður.
Aðspurð segir Bjarnheiður kristall-
ana ekki einnota. „Kristallarnir
eru virkir í fimm ár og draga í sig
vatn aftur og aftur. Ég gerði tilraun
með það núna í vor að setja Maxi
crop-lífrænan áburð út í vatnið og
lét síðan kristallana mettast með
þessari blöndu, þá skammta krist-
allarnir áburðinn til plöntunnar
um leið og þeir gefa frá sér vatnið,"
segir Bjarnheiður og bætir við
að það sé alltaf að spyrjast meira
út hvað kristallarnir reynast vel.
Bjarnheiður Erlendsdóttir Hún flytur
inn vatnskristalla sem koma sér vel f
garðrækt.