blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 17
blaöió
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
29
Ódýrar
endurbætur
Það eru til margar sniðugar
lausnir þegar kemur að því að irin-
rétta húsið sitt. Ef fólk er nýbúið
að kaupa sér hús er oft Lítið fjár-
magn til þess að uppfæra húsið
eftir nýjustu tísku. Það þarf hins
vegar ekki alltaf að kosta mikið
að gera húsið fallegt.
Innréttingar, fataskápar og
gluggakistur er eitt af því sem
hefur breyst mikið í gegnum árin
og eru til marga lausnir til að
gera þá fallegri.
Innréttingar og skápar
Það er hægt að gera eldhúsinn-
réttingar og skápa fallega á
skömmum tíma með litlum til-
kostnaði með því einfaldlega að
mála þá. Fólk þarf að byrja á því
að ráðfæra sig í næstu málningar-
búð til þess að fá málningu sem
hentar viðnum í innréttingunni
eða skápunum, svo er bara að
velja lit. Áður en fólk byrjar að
mála þarf að taka allar skúffur og
skápahurðir af. Gott er að pússa
yfir viðinn með sandpappír, þó
ekki nauðsynlegt. Fjarlægja þarf
allar höldur áður en hurðir og
skúffur eru málaðar. Höldurnar
eru misfallegar, ef fólki líst vel
á þær er yfirleitt nóg að pússa
þær upp og þær eru eins og nýjar.
Ef liturinn er ljótur þá er hægt
að úða þær. Einnig getur verið
fallegt að kaupa nýtísku höldur á
gamlar innréttingar og skápa.
Gluggakistur
Það er mjög fallegt að setja mósa-
íkflísar á gamlar gluggakistur.
Fólk velur bara flísar eftir smekk
og setur þær á gluggakistuna
og lakkar svo
yfir. Þetta
setur mjög
mikinn svip á
herbergið og
gluggakistan
verður eins
og ný. Ef fólk
nennir ekki að skera flísarnar
svo þær passi á endana er líka fal-
legt að mála þá og hafa flísarnar
ofan á.
Astarpottar
Heitir pottar eru sífellt að verða
vinsælli í Þýskalandi. Fólk er
farið að setja þá í auknum mæli
í garðinn hjá sér. Lögreglan fær
mikið af kvörtunum vegna ósið-
legra athæfa í heimahúsum þar
sem fólk lætur vel hvort að öðru
og nágranninn sér það út um
eldhúsgluggann. Þjóðverjarnir
eru lítið fyrir að nota sundföt, og
finnst í Iagi að njóta ásta í eigin
garði, burtséð frá því hversu hátt
grindverkið er.
VATNAJÓKULL
Tvir
ISAFJÖRÐUR
REYKJAVIK
Aldrei eins margir að mála húsin sín
Grátt er í tísku
I góðviðrinu undanfarnar vikur
hefur mátt sjá marga framkvæmda-
glaða Islendinga vera að mála
húsin sín. Gífurleg breyting hefur
orðið á litavali fólks og eru skæru
litirnir alveg dottnir út og hafa
mildari litir tekið við. Kristján Sig-
urðsson sölustjóri hjá Málningu
hefur starfað í málningarbrans-
anum í 26 ár, hann segir að grátt
sé tískuliturinn í ár. „Hvítu litirnir
eru enn þá vinsælastir, marmara-
hvítt, silkigrátt, og ljósgrátt. Grátt
er notað með þessum ljósu litum
og eru að koma mjög sterkt inn
núna. Fólk er hætt í þessum sterku
litum sem hafa verið viðloðandi
undanfarin ár. Grátt kemur í tísku
með ákveðnu millibili, þó ekki í
þeirri mynd sem er núna. Þetta
hefur verið að þróast í þessa átt síð-
astliðin ár,“ segir Kristján.
Að sögn Kristjáns er málningar-
tíska eins og önnur tíska, hún fer
í hringi. „Það er ákveðin hringur í
gangi þegar kemur að litavali bæði
innan- og utanhúss, þetta byrjar í
hvítu síðan fer fólk yfir í pastellit-
ina og svo fer það í sterkari liti og
þetta endar svo í einhverju rosal-
egu. Þetta tekur svona 10-15 ár að
fara hringinn,“ segir Kristján.
Aðspurður hvort hann finni fyrir
aukningu í sölu á útimálningu
Málað í góðviðrinu
Gífurleg breyting hefur
orðið á litavali fólks.
vegna góðviðrisins segist Kristján lega mikið að gera. Þessi 26 ár sem
ekki muna eftir öðru eins. „Ég hef ég hef starfað við þetta þá hef ég
aldrei orðið var við svona mikla aldrei upplifað annað eins.“
törn eins og núna, það er gríðar-
l 1
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
flugfelag.is
Njóttu dagsins
- taktu flugið
GRIMSEY •
ÞORSHOFN•
VOPN AFJORÐUR •
AKUREYRI •
EGILSSTAÐIR ■
VESTMANNAEYJAR
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is