blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 20
32
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
blaðiö
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
fslenska liðið hefur komið mér veru-
lega á óvart, ótrúlegar framfarir
orðið á stuttum tíma og ég yrði ekki
hissa þótt liðið komi á óvart í keppninni.
SKEYTIN INN
Carlo
Ancelotti,
þjálfariAC
Milan,hefurgefið
Silvio Berlus-
coni eiganda
þær upplýsingar
að það sé Samuel Eto 'o en ekki
Ronaldinho sem hann kjósi í fram-
línu liðsins en Berlusconi sjálfur
hefur margoft lýst yfir ást sinni á
Ronaldinho og vill fátt meira en að
ráða kappann. Telur Ancelotti að
Eto 'o sé betri kostur enda vantar
aðeins bona fide skorara til að taka
mót sendingum Kaká á kantinum.
Fabio Canna-
varo ætlar
ekki að hika
við að snúa aftur
til Juventus missi
hann fast sæti sitt
í Madrid. Canna-
varo er þjóðhetja í Juve-landi og
lcæmist þar í lið án þess að vera
fimm minútur á atvinnuleysisbót-
um ef allt færi á versta veg. Hins
vegar er ekkert sem bendir til
annars en að hann verði máttar-
stólpi í vörn Real Madrid í vetur.
Portúgölsku
kantstjömurn-
ar Simao og
Ricardo Quaresma
getabáðirverið
á leið til Atletico
Madrid. Þarábæ
em til seðlar eftir söluna á Fern-
ando Torres og þeim á að eyða og
ekki vanþörf á ætli félagið að gera
atlögu að nokkrum hlut í vetur.
David Beck-
ham fór sér
hægt á sinni
fyrstu æfingu með
Galaxy í Kaliforníu.
Erhann meiddurá
ökkla og gerði lítið
annað en að skokka létt og brosa
til þeirra þúsund áhorfenda sem
fylgdust með hans fyrstu æfingu.
Didier
Drogba er
viðkvæm
sáloghefuráný
ýjað að í viðtali við
breska miðla að
hann gæti vel hugs-
að sér að fara frá Chelsea sé honum
ekld sinnt eins og hann telur sig
eiga skilið. Bætti hann einnig við að
gott boð frá meginlandi Evrópu yrði
líka vel skoðað og ljóst að tryggðar-
böndum hefur Drogba ekki náð við
félaga sína eða aðdáendur liðsins.
að er einmitt Drogba ásamt
félögum sem er fyrsta liðið
sem mætir LA Galaxy-liðinu
með Beckham innanborðs um
næstu helgi. Talið er pottþétt að
Beckham spili þó meiddur sé.
Sendibílar
til leigu
Veislan að byrja ...
og öllum boðið
Islenska U19 kvennalandsliðið keppir gegn stórþjóðum á Evrópu-
móti Fjórir leikir spilaðir í dag ■ Skyldumæting á völlinn
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
„íslenska liðið hefur komið mér
verulega á óvart, ótrúlegar fram-
farir orðið á stuttum tíma og ég yrði
ekki hissa þótt liðið komi á óvart í
keppninni,“ segir Maren Meinert,
þjálfari þýska U19 kvennalandsliðs-
ins en hennar lið á titil að verja á
Evrópumóti U19 kvennaliða.
Það er stór dagur fyrir knatt-
spyrnu á íslandi þegar leikar hefjast
í úrslitakeppni Evrópumótsins í dag
kl. 16 hjá U19 landsliðum kvenna
en þar etja okkar stúlkur kappi við
helstu þjóðir heims í kvennabolt-
anum. Fjórir leikir verða spilaðir
í dag og ber þar hæst leik íslands
gegn Noregi á Laugardalsvellinum
kl. 19.15. Frítt er inn á alla leiki og
fátt betra í blíðviðrinu en fara á völl-
inn og hvetja stelpurnar til dáða.
Betra tækifæri fá stúlkurnar
okkar vart til að láta ljós sitt skína
en þær eru af flestum taldar eiga
litla möguleika ef frá er talið mat
þýska þjálfarans. Stúlkurnar hafa
þó virkilega staðið sig í stykkinu í
undanförnum leikjum og með elju,
dug og stuðningi er allt hægt.
Getspakir setja flestir sína pen-
inga á Þjóðverja en þýski þjálfar-
inn fer varlega í yfirlýsingar sínar.
,Það er sennilega við mestu búist
af okkur en það hafa orðið miklar
breytingar hjá okkur á liðnu ári og
ég tel að þetta verði hörð keppni.“
Líklegustu liðin til að stríða Þjóð-
verjum eru Spánn og Frakkland en
óvænt úrslit eru ekki svo óalgeng í
knattspyrnu og alls ekki ólíklegt að
LEIKIR DAGSINS
RiðillA
18.júlí Víkingsvöllur
16.00 Danmörk - Þýskaland
18.júlí Laugardalsvöllur
19.15 Island - Noregur
Riðill B
18.júlí Fylkisvöllur
16.00 Pólland - England
18.júlí Kópavogsvöllur
16.00 Spánn - Frakkland
smærri spámenn breyti gangi mála.
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari
er varkár en segir að hver sem niður-
staðan verði þá verði keppnin mikil
reynsla fyrir stúlkurnar. „Við erum
afar sátt að taka þátt í mótinu og ég
er bjartsýnn þó vissulega eigi mögu-
leikar okkar ekki að vera miklir
gegn þessum stórþjóðum.“
Elínborg Fanndís
Ingvarsdóttir Friðriksdóttir
Guðný Björk
Óðinsdóttir
Hlín
Gunnlaugsdóttir
Guðrún Erla
Hilmarsdóttir
Hrafnhildur Hekla
Eiríksdóttir
Laufey
Björnsdóttir
Kristrún
Kristjánsdóttir
Linda Rós
Þorláksdóttir
Petra Lind
Sigurðardóttir
Rakel
Hönnudóttir
Rúna Sif
Stefánsdóttir
Sandra Sif
Magnúsdóttir
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Ballesteros
hættur
Hinn grískættaði Spánverji
Seve Ballesteros tilkynnti
um endalok atvinnukylfings-
ferils síns í vikunni mörgum
árum eftir að flestir héldu
hann hættan. Hefur kappinn
að mestu látið nægja að spila
góðgerðarmót síðustu ár en
nafn hans er kyrfilega merkt í
sögubókum sem eins fremsta
kylfings sem fram hefur
komið.
Frekari heiður
Ólafur Stefánsson handknatt-
leiksmaður er í liði ársins
á Spáni sem tilkynnt hefur
verið um. Er hann vel að því
kominn en Ólafur var einn
þeirra sem til greina komu
sem handknattleiksmaður árs-
ins í Evrópu. Þrír aðrir frá liði
hans Ciudad Real voru einnig
nefndir til sögunnar.
Góður
félagsskapur
Tiger Woods mun hefja leik á
Opna meistaramótinu á Carno-
ustie í Skotlandi á fimmtudag-
inn kemur í félagsskap við þá
Justin Rose og heimamanninn
Paul Lawrie. Tiger er að verja
titil sinn frá síðasta ári en
Lawrie er sá sem síðast sigraði
mótið þegar það var haldið
á Carnoustie. Spennandi
uppstilling.
Dýr er boltinn
Boltaáhugamenn verða að
punga duglega út hafi þeir
áhuga á að fylgjast með evr-
ópska boltanum í vetur. Lang-
flestir áhugaverðastir leik-
irnir verða sýndir á Sýn og Sýn
2 en tólf mánaða áskrift að
þeim stöðvum saman tæmir
veskið um rúmar 85 þúsund
krónur eða 7112 krónur á mán-
uði. Er þá miðað við skuldbind-
ingu til eins árs en fari það
fyrir brjóstið á einhverjum
kostar stakur mánuður tæpar
níu þúsund krónur.