blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 4
Gúmmíbelti undir allar vélar Bens Atego 12.28 • Árgerð 2001 vara - gott verð; Sími 534 5300 • impex@impex.is • www.impex.is Bannað að leggja Arkansas setur ný áningarlög Hér á landi er það algild regla að ef sími fólks hringir á meðan það ekur bíl og handfrjáls búnaður er ekki við höndina þá skuli bílnum lagt í vegarkanti á meðan á sím- talinu stendur. Með þessum hætti mun það verða tryggt að símtalið dreifi ekki athygli ökumanna og minnki því slysahættu. Þetta hátt- erni mun þó líklega duga skammt í Arkansas í Bandaríkjunum þar sem ný lög hafa verið sett sem banna bílstjórum að leggja bíl sínum í vegarkanti þjóðvega og hraðbrauta. Það eru þó veittar und- anþágur þegar um neyðartilvik er að ræða eða þegar bílarnir bila. Mikil slysagildra Fram til þessa gátu bílstjórar lagt bílum sínum úti í vegarkanti svo lengi sem engin skilti væru sjá- anleg sem bönnuðu þetta háttalag en með hinum nýju lögum, sem nefnast HB2431, er það ekki lengur hægt. Þeir sem leggja bílnum sínum í vegarkantinum geta átt von á dágóðri sekt og skömmum frá lögreglunni. Þeir sem styðja þessi nýju lög segja að með þeim muni slysatíðni snarlækka en sam- kvæmt þeim þá er ein stærsta slysa- gildran á bandarískum vegum þegar stórum vöruflutningabílum er lagt úti í vegarkanti. Hvergi hægt að hvíla sig Andstæðingar laganna, sem flestir eru úr hópi vöruflutninga- bílstjóra, segja að með þessum lögum sé verið að útrýma þeim fáu valkostum sem atvinnubílstjórar hafa til þess að hvíla sig. Þeir segja enn fremur að aukin umferð vöru- flutningabíla hafi orðið þess vald- andi að enn erfiðara sé að finna áningar- eða hvíidarstaði og því þurfi bílstjórar að geta lagt úti í vegarkanti. Frá árinu 1995 hafa yf- irvöld í Arkansas lokað þremur af 24 hvíldarstöðum fylkisins. Það er þvi ljóst að ekki eru allir sáttir við þessa lagagerð en vonandi verða þessi lög ekki til þess að þjóðvegir Arkansas verða þéttsetnir af syfj- uðum vöruflutningabilstjórum. vfij Hægt að prófa vélar og tæki VW LT35 - Árgerð 2004 MAN 9150 - Árgerð 1991 Byggingavöruverslunin Mest tók í notkun nýja og glæsilega aðstöðu véla- ogþjónustusvið að Malarhöfða 10 i mars síðastliðnum. „Við erum flutt en opnunarhátíðin verður hins vegar ekki fyrr en í haust,“ segir Kári Steinar Lúthersson, framkvæmda- stjóri véla- og þjónustusviðs Mest. í þessari nýju aðstöðu Mest að Mal- arhöfða geta viðskiptavinir Mest nálgast alla þjónustu véla- og þjón- ustusviðs á einum stað. „Við vildum koma upp aðstöðu þar sem menn geta gengið að þjónustu okkar á einum stað.“ Að Malarhöfða er vélasala Mest staðsett en þar er hægt að festa kaup á vinnuvélum ásamt öðrum tækjum og tólum sem fylgja bransanum svo sem steypumótum og gámahúsum. Þá er einnig atvinnutækjaleiga fyr- irtækisins þarna til staðar og þar er hægt að leigja flest þau tæki sem Mest hefur upp á að bjóða. „Véla- og þjónustusviðið eru núna allt á einum stað með atvinnutækjaleiguna, þjón- ustuverið og varahlutaverslunina á einum og sama staðnum og allt mið- svæðis. Hérna er gott aðgengi fyrir viðskiptavini að vörum og þjónustu okkar.“ Að Malarhöfða hefur Mest komið sér vel fyrir og hefur nægt rými til að starfsemi fyrirtækisins nái að blómstra. „Nú höfum við komið okkur fyrir á þessu stóra svæði, við erum með rúmlega 6000 fermetra svæði, bæði utanhúss og svo sýn- ingarsal inni. Hérna höfum við tækifæri, í fyrsta skipti, til að sýna VW LT46 - Árgerð 2003 Volvo FM7 ■ Árgerð 2001 Bíldshöfði 14, Sími 553 1244 • Ljosboginnehf@simnet.is GBSIkqjípQtpð 03GX3BM3Q tl^o 2^00» OgágogDfrDcOcn? ð röSDoMlQ osGXÍHfcðki Kári Steinar Siorbætt aostaða Mest að Malarhöfða mun skipta sköpum fyrir viöskiptavini fyrirtækisins. Biaðið/Asdfs almennilega þær vélar og tæki sem við erum með. Það er hlutur sem við ætlum að auka því við viljum að menn geti komið og skoðað, snert á og tekið í ef því er að skipta.“ Kári segir að viðskiptavinir Mest hafi tekið mjög vel í þessar breyt- ingar. „Það er eiginlega ótrúlegt því við erum ekkert búnir að vera að auglýsa þetta að neinu marki. Við höfum sent markpóst á viðskipta- vini okkar og viðbrögðin hafa verið mjög góð. Mönnum finnst það já- kvætt að geta komið og skoðað hlut- ina, snert á þeim, fengið að setjast upp í vélarnar og prófa þegar það á við. Með'því að sameina starfsemi Véla- og þjónustusviðs Mest á Mal- arhöfðanum geta viðskiptavinir nú gengið að allri okkar þjónustu á einum stað sem er til mikilla hags- bóta fyrir þá.“ Véla- og þjónustusvið Mest hefur samfara flutningnum á Malarhöfða ío aukið vöruúrval sitt umtalsvert. „Við höfum verið að bæta við vöru- flokkum sem viðskiptavinir okkar hafa verið að óska eftir t.d. skot- bómulyfturum frá Faresin, vinnu- lyftum frá Nifty-lift ásamt ýmiss konar aukabúnaði fyrir vinnuvélar. Allt er þetta liður í stefnu okkar hjá Mest að bjóða verktökum heild- arlausnir. Við leggjum áherslu á að bjóða vandaðar vörur frá birgjum sem eru leiðandi á heimsmarkaði og með nýja húsnæðinu gefst okkur tækifæri til að bæta við vöruúrvalið og þjónustuna.“ En hér gildir hið fornkveðna; sjón er sögu ríkari, og er því ekki verra fyrir áhugasama að bregða sér í Malarhöfða og kynna sér glæsilegt úrval Mest. Menn geta þá komið og fengið tækifæri til að prufukeyra herlegheitin. VÉIAVERf Sími 588 2600 www.velaver.is MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLf 2007 blaöiö og biónustusvið Mest að Malarhöfða 10

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.