blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 5

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 5
Bíræfinn ökumaður Fangelsaður fyrir spagettíát Það eru ótrúlegustu hlutir sem ökumenn bifreiða taka upp á en fátt er jafn heimskulegt og að borða undir stýri. Hollending- urinn Martin Veens lenti heldur betur í kröppum dansi á dögunum þegar hann var handtekinn í Bret- landi fyrir glæfralegan akstur en hann var að gæða sér á spagettíi um leið og hann stýrði sínum 40 tonna flutningabíl á A55-veginum í Flintshire. Stýrði með hnjánum Veens, sem var að fly tja kjúklinga- hræ til Nottingham, hafði hitað sér þennan dýrindis málsverð á meðan verið var að ferma bílinn en hafði ekki tíma til að fá sér í svanginn fyrr en hann var lagður af stað. Lögreglan í Wales fékk ábendingu um flutningabíl sem ók mjög skryk- kjótt eftir þjóðveginum og þegar nánar var að gáð kom í ljós að Ve- ens var önnum kafinn við að borða. Önnur höndin hélt á diski fullum af spagettíi, hin hélt á gafflinum og þar sem fleiri hendur voru ekki í bílnum notaði hann hnén til að stýra. Átta vikur í steininum Veens játaði fyrir rétti að aksturs- lag sitt hafi verið glæfralegt og var hann dæmdur í átta vikna fangelsi og var sviptur ökuréttindum í eitt ár. Þar að auki þarf hann að taka meiraprófið upp á nýtt að árinu liðnu. Geraint Anwyl, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni í Norður-Wa- les, fagnaði þessum dómi. „Þetta er enn eitt dæmi um óviðunandi og hættulega hegðun vörubílstjóra sem ferðast á vegunum okkar. Það sem er óhugnanlegast er að þetta er ekki einstakt tilfelli." Bragðgóður réttur en þó ekki svo góður að hann sé fangelsisvistarinnar virði. iMHMIIM Of kynþokka- full í strætó Það virðast allir hafa skoðun á því hvað sé kynþokka- fullt og hvað ekki. Það sem einum finnst vera mjög kyn- þokkafullt getur öðrum þótt það alls ekki. Margir ganga þó svo langt að segja að kynþokkafullt fólk geti haft truflandi áhrif á vinnandi fólk. Það kom heldur betur í Ijós í Þýskalandi á dögunum því þýskur strætisvagnstjóri sem starfar í bænum Lindau hótaði að henda tvítugri konu út úr vagninum sem var þar farþegi. Konan sem varð fyrir þessu heitir Debora C. Hún sagði við fjölmiðla eftir atvikið að bílstjórinn hafi mjög skyndi- lega stöðvað vagninn. Þá hafi hann opnað dyrnar og öskrað á sig: „Brjóstaskoran þín hefur mjög truflandi áhrif á mig. Því í hvert skipti sem ég lít í baksýnisspegil- inn þá get ég ekki einbeitt mér að akstrinum og umferð- inni. Ef þú sest ekki annars staðar í vagninn neyðist ég til þess að vísa þér út úr vagninum.“ Konan sagðist hafa eftir þessi miklu hróp og köll mannsins staðið upp og sest í annað sæti í vagninum. En henni hafi þó liðið mjög illa vegna framferðis mannsins og fannst henni að hún hafi orðið fyrir mjög mikilli nið- urlægingu vegna hans. Haft var samband við tals- mann stætisvagnafyrirtækis- ins eftir þetta atvik og sagð- ist hann verja vagnstjórann. „Vagnstjórinn hefur skýra heimild til að gera þetta og ég tel að hann hafi gert það sem var rétt í stöðunni. Vagnstjórar mega ekki verða fyrir truflun á meðan á akstri stendur því það getur skapað mjög mikla hættu fyrir alla farþegana,“ bætti hann við að Iokum. ÚRVAL VINNUVÉLA OG TÆKJA Þegar fjárfesta á í vinnuvélum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskipta- vinum okkar alla leið og veitum honum alhliða fagþjónustu og tækniráðgjöf varðandi vinnuvélarnar okkar. Hjá MEST fæst mikið úrval véla og tækja, þar á meðal Bomag, Liebherr og Yanmar vinnuvélar. Láttu þaulreynt fagfólk aðstoða þig. Hafðu samband við söludeild véla & tækja á Malarhöfða 10 í síma 4 400 540 og aflaðu þér upplýsinga - allt til bygginga 111 mesT Malarhöfða 10,110 RVK

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.