blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 6
BOCKMANN fyrir atvinnumenn Ymsar stærðir og gerðir S: 414-8600 FLUTNINGSKERRUR MEÐ SLISKJUM EÐA HALLANLEGUM RAMPI Burðargeta frá 2.000 - 2.S70 kg KERRA MEÐ RYK- OG VATNSHELDU LOKI Burðargeta 1.500 kg EIGUM EINNIG TIL A LAGER FÚLKSBÍLA- OG JEPPAKERRUR (\/AUUnnn Hringdu í 414 8600 og kynntu þér málið strax í dag lVlBlaLJLJU FLUTNINGSKERRUR MEÐ EÐA ÁN UPPÁKEYRSLUHLERA Burðargeta frá 2.000 - 2.900 kg Jeppadelckin Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444 Ford dekkin 33x13,5R18 Verð ffrá 19,900,- Bílkranar Lyftigeta 2,5- 85 tm Getum afgreitt strax eftirfarinn krana: 3,5 tm. PM3522LC r JIB 20° yfirtialli. 'GÁLGI 12° yfirhalli SKEIFAN 3E-F • SÍMI 581-2333 • FAX 568-0215 • WWW.RAFVER.IS Amerískt heilsuátak Feitir og svefnvana vöru- bílstiórar teknir í gegn Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil heilsufars- bylting. Hverstéttin á fætur annarri fer í gegnum allsherjar heilsu- átaken hvergi í heiminum er meiri þörf á heilsuátaki en hjá bandarískum vöruflutningabílstjórum. Eftir Viggó Ingimar Jónasson viggo@bladid.net Það er ekkert grín að vera vöru- flutningabílstjóri í Ameríku en 15 prósent allra dauðsfalla í atvinnu- lífinu þar ytra eru einmitt í þeirri tilteknu starfsgrein og þá eru bara talin umferðarslysin en ekki þau fjölmörgu heilsufarsvandamál sem herja á stéttina. Offita er al- geng meðal bílstjóranna og margir þeirra nota ekki bílbelti þar sem þau þykja þrengja of mikið að þrýstnum kviðnum. Fjórði hver bílstjóri þjáist af einhvers konar svefntruflunum og um helmingur þeirra reykir. Það er því ekki furða að bandarísk yfir- völd og flutningafyrirtæki séu að reyna eftir mesta megni að bæta heilsufar bílstjóranna. Læknisskoðun á tveggja ára fresti Alríkisdeild umferðaröryggis- mála (Federal Motor Carrier Safety Administration) íhugar um þessar mundir að herða á reglum sínum varðandi heilsufar ökumanna og mörg fyrirtæki í bransanum eru að hugleiða að gera slíkt hið sama. „Það tekur dágóðan tíma að leiðrétta mörg ár af óheilbrigðu líferni en ég held að fyrirtæki séu farin að hug- leiða einhverjar aðgerðir vegna auk- ins kostnaðar við heilsugæslu starfs- manna,“ sagði Christie Cullinan hjá sambandi amerískra vörubílstjóra. Vörubílstjórar ytra þurfa að gangast undir læknisskoðun á tveggja ára fresti til að endurnýja atvinnuleyfi sín. Vörubílstjórar sem eiga við hjartakvilla eða of háan blóðþrýst- ing að stríða fá ekki leyfi sitt endur- nýjað en ekkert er fylgst með reyk- ingum eða þyngd bílstjóranna. Slæm staða bílstjóra Heilsufarslega séð eru amerískir vörubílstjórar mun verra staddir heldur en landar þeirra. Eins og fyrr segir reykir um helmingur þeirra en ef reykingar eru skoðaðar yfir allt landið þá eru reykingamenn um 20 prósent. Um 28 prósent bílstjóranna þjást af kæfisvefni en það vandamál herjar á um 4 prósent Bandaríkja- manna. Vörubílstjórar tilkynna fleiri smávægilega heilsukvilla, svo sem tognanir, heldur en nokkur önnur stétt í Bandaríkjunum og þar að auki eru margir þeirra bakveikir sökum þess að þeir ferma bílana sína sjálfir. Ekki hægt að skipa fólki í megrun Áætlað er að það séu um 1,3 millj- ónir vörubílstjóra í Bandaríkjunum sem keyra langar vegalengdir með farminn sinn. Það er því hægara sagt en gert að stuðla að bættu heilsufari svo fjölmennrar stéttar. „Það er ekki hægt að segja að fólk megi ekki vera feitt og það er ekki hægt að skipa fólki að hætta að reykja, það geta yfirvöld ekki gert. En við höfum verið að reyna að fræða fólk um tenginguna á milli þess að vera heilbrigð manneskja og traustur bílstjórisegir sálfræðing- urinn Gerald P. Krueger sem hefur hjálpað yfirvöldum ytra að beina vörubílstjórum til heilbrigðari lífs- stíls. Hann segir að flutningafyrir- tæki verði að huga betur að heilsu starfsmanna sinna, hvort sem það er til að draga úr kostnaði við heilsu- gæslu eða til að halda starfsmönnum lengur hjá fyrirtækinu. Aðgerðir lækka útgjöld Mörg fyrirtæki vestanhafs eru farin að grlpa til ýmissa leiða til að huga betur að heilsu starfsmanna sinna. Celadon Group Inc., sem er með rúmlega þrjú þúsund bílstjóra á launaskrá, hefur til dæmis gripið HEILSUFAR ► Kæfisvefn er algengur fylgi- fiskur offitu en herjar einnig á kornabörn. ► Kæfisvefn veldur því að fólk hvílist ekki eins vel. ► Surnir bílstjórar hafa gripið til þess ráðs að ganga í kringum bílana sína sér til heilsubótar. 32 hringir f kringum stóran vöruflutn- ingabíl er um ein míla. til þess ráðs að hafa hjúkrunarfræð- inga að störfum í bækistöðvum sínum í Indianapolis. Þar er blóð- þrýstingur og kólesteról ökumann- anna mælt og er hægt að kalla út lækni þangað ef þess þarf. Celadon greiðir allan kostnað við þetta eft- irlit fyrir starfsmenn sína en samt segir fyrirtækið að þessi aðgerð hafi gert fyrirtækinu kleift að lækka kostnað sinn vegna heilsugæslu um 10 milljónir dollara á ári hverju. Melton Truck Lines Inc. skipti út öllum sykruðum drykkjum í sjálf- sölum í bækistöðvum fyrirtækisins, fyrir grænt te, vatn og sykurlausa gosdrykki. Ásamt því bauð fyrir- tækið upp á 12 vikna megrunarnám- skeið fyrir starfsmenn sína og allt þetta féll í góðan jarðveg hjá bílstjór- unum. Con-way Freight í Ann Arbor í Michigan prófaði fyrir tveimur árum að koma af stað velferðarátaki. Árangurinn lét ekki á sér standa því veikindadögum starfsmanna fækkaði um 75 prósent og kostnaður vegna endurgreiðsla til bílstjóranna minnkaði um 80 prósent.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.