blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 7
blaöió
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
VINNUVÉLAR [ 21
Vinnulyftur ehf
Nýir eigendur
teknir við
Nýir eigendur hafa keypt allan
rekstur og fasteignir fyrirtækis-
ins Vinnulyftur ehf. í Garðabæ
af Eyvindi Jóhannssyni,
stofnanda og eiganda félagsins
frá upphafi. Vinnulyftur ehf.
eru ein elsta leiga landsins
með vinnulyftur og tengdan
búnað. Félagið hefur verið
með gæðatæki frá þekktum
framleiðendum svo sem Skyj-
ack, NiftyLift, JCB svo fátt eitt
sé nefnt.
Kaupendur eru þeir Eiður Ingi
Sigurðsson, Gestur Már Þráins-
son og Elías ívarsson.
Elías hefur starfar hjá Vinnu-
lyftum í 7 ár og mun gera það
áfram ásamt því starfsfólki
sem hefur starfað hjá fyrirtæk-
inu á undanförnum árum, en
Elías verður jafnframt fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Nýir eigendur sjá mikla
möguleika í rekstri félagsins
sem hefur byggt um traustan
viðskiptamannahóp á undan-
förnum árum. Félagið hóf að
færa út kvíarnar í starfsemi
sinni síðasta sumar og og
byrjaði þá að bjóða upp á smá-
gröfur, vélbörur, staurabora,
valtara og fleiri slík jarðvegs-
tæki sem henta almenningi
og verktökum í minni verkum.
Til staðar er mikil þekking á
þessum geira og leggur félagið
sig fram um að finna hentug-
asta tækið fyrir hvert einstakt
verk. Einnig hafa Vinnulyftur
verið að flytja inn hin ýmsu
tæki til nota fyrir viðskipta-
vini félagsins hvort sem það er
til leigu eða kaups.
„Við ætlum að auka og víkka
út starfsemi félagsins, koma
upp fleiri útistöðvum og færa
þannig tækin nær kúnnanum,“
segir Elías ívarsson, einn
nýrra eigenda.
Vönduð vara
Nýjungar í Bomag-jarðvegsþjöppum
Bomag kynnti á Bauma 2007 nýja
línu í jarðvegsþjöppum. Þar er um
að ræða jarðvegsþjöppur sem eru
alveg lokaðar af í sterku húsi. Bo-
mag hefur reiknað það út að helstu
vandamál og viðgerðir sem upp
koma í jarðvegþjöppum eru vegna
skemmda eftir að þjöppurnar hafa
verið hífðar. Til að tryggja það að
allt sé eins og það á að vera þá hífðu
þeir fjöldann allan af þjöppum og
slepptu þeim niður úr ákveðinni
hæð. Þeir hættu ekki þessum próf-
unum fyrr en þeir voru búnir að
smíða þjöppu sem þoldi þetta og
gat unnið á eftir.
Bomag hafa breitt nokkuð vöru-
linu sinni og endurbætt þó nokkrar
þjöppur til að ná hámarksafköstum
og má þar nefna nýja þjöppu sem er
í kringum 200 kg. Þar eru Bomag
að bjóða núna þjöppur í þremur
mismunandi verðflokkum, bensín,
dísill og dísill með rafstarti. Þessar
þjöppur er síðan hægt að fá lokaðar
eða í grind eins og áður.
Bomag kynnti líka nýja þjöppu
sem er um 750 kg og eru þar að
bjóða nýjung sem er þjöppumæl-
ir. Hægt er að fylgjast þar með því
hversu mikið búið er að þjappa og
hvort að allt sé samkvæmt stöðlum
um þjöppun.
Bomag hafa verið leiðandi á
heimsmarkaði og bjóða upp á
þjöppur frá 50 kg upp í 750 kg og
einnig líka hoppara sem eru létt
leið til að þjappa í lagnaskurðum
og sambærilegu.
Vönduð vél Bomag sætti sig við
ekkert minna en fullkomnun.
Krókhálsi I6, Reykjavík - Gleráreyrar 2, Akureyri - Sími 588 2600 - www.velaver.is
lyÉLAVERrJ
nYTT
Islandi^?
Nikið úrval smávéla fyrir verktaka, bæjarfélög og fleiri.
Einnig fjölbreyttur aukabúnaður t.d. sláttutæki, gröfuarmar og ámoksturstæki
I-
Partner K1250 / ÞyngdT4,fi / Skurðd. 14.5 cm.
DIMAS
hringsagarblöd
DIMAS ELD 20/ELD
45/B.D 70/HJD 90
ÞuirSNaut
steinsögunaitlöð
Partner HP 40 bansínvökvadæja fyrir.
Psrtner K2500 S Partner K3BÚ0 >
ÞyngdBBkg/Ifi bii B&S f /
Partner K2500 /Pvnud B.3 kg / Skurðd. 14,5’criT
Skurðarvagn
Partner K3600 / Þýngd 7.9 kg / Skurðd. 26.
EXPEHTS OF
Akralind 4 201 Kópavogur
Sími 544 4656 Fax 544 4657 mhq@rafig
fe