blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 8
VINNUVÉLAR
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
blaöiö
www.alorka.is
AL0RKA
Höfum til leigu & sölu
allar gerðir af:
vinnulyftum
gröfum
• smágröfum
• jarðvegsþjöppum
• o.fl.
VINNULYFTUR EHF
Smiðsbúð 12 - Garðabæ - Sfmi 544 8444 - Fax 544 8440
www.vinnulyftur.is vinnulyftur@vinnulyftur.is
Tengja vökvalagnir um leið og tengið læsist
Rv
|f DATEK & 1 SLAND
fL 1 www.datek.is
Sími 520 3100 Smiðjuvegur 50 datek@datek.is
Fáðu tilboð í lyftara sem hentar þér. VagnhÖfðð 6 • Sími 577 3080
DALIAN dísel-lyftarar - mjög hagstætt verð.
kr. 1.890.000
án vsk.
Lyftari á mynd:
2,5 tonn, snúningsbúnaður, gámagengur,
upphitað ökumannshús, ISUZU díselvél.
22 I
Er með viimuvéladellu
Ætlaði alltaf að
verða vörubílstjóri
Hjálmar Þór Ingibergsson
hefur alltaf haft mikinn
áhuga á vinnuvélum,
hann vinnur hjá íslenska
járnblendifélaginu og
keyrir vörubíl samhliða
því. Hjálmar var fyrir
stuttu valinn rauðhærð-
asti íslendingurinn.
Eftir Lovísu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Hjálmar Þór er 28 ára Skagamaður
sem hefur mikinn áhuga á vinnu-
vélum.Hann vinnur hjá íslenska
járnblendifélaginu og keyrir vöru-
bíl þegar hann á vaktarfrí. Hann er
búsettur á Akranesi en þar er hann
fæddur og uppalinn. Að sögn Hjálm-
ars hefur hann alltaf haft mikinn
áhuga á vörubílum og vinnuvélum.
„Ég er búinn að vera með vinnuvél-
adellu frá blautu barnsbeini, man
ekki eftir mér öðruvísi en að leika
mér með vörubíla og traktora. Þegar
ég var orðinn 18 ára dreif ég mig í
meiraprófið því ég ætlaði mér alltaf
að verða vörubílstjóri. Það markmið
hefur náðst svona að mestu leyti
þótt bílstjórastarfið sé ekki mitt að-
alstarf núna þá veit enginn hvað ger-
ist í framtíðinni," segir Hjálmar.
Mikið af vinnuvélafyrirtækjum
Aðspurður hvers vegna hann hafi
svona mikinn áhuga á vinnuvélum
segist hann hafa alist upp með þær
allt í kringum sig. „Það er mjög
mikið af vinnuvélafyrirtækjum
hérna á Akranesi, þannig að ég ólst
upp við þetta,“ segir Hjálmar.
Scania bestir
Að sögn Hjálmars hefur hann
ekki gert það upp við sig hvort hann
fari að vinna sjálfstætt. „Ég hef ekki
tekið ákvörðun um hvort ég ætla að
kaupa mér vörubil. Maður á sína
drauma, kannski fylgi ég þeim eftir
seinna meir. Ef ég myndi kaupa mér
vörubíl yrði hann af gerðinni Scania,
það eru langbestu vörubílarnir að
mínu mati,“ segir Hjálmar.
Ég hef ekki tekið
ákvörðun um hvort
ég ætla að kaupa mér
vörubíl. Maður á sína
drauma, kannski fylgi ég
þeim eftir seinna meir.
Ekki erfið vinna
Að sögn Hjálmars er vinnan hjá
íslenska járnblendifélaginu ekki
erfið. „Þetta er ekkert erfið vinna,
þetta eru ellefu störf sem færast
á milli manna á vöktunum. Við
skörum í ofnunum, töppum úr
þeim og steypum svo málminn út.
Við þessa vinnu notum við mikið af
vinnuvélum. Það eru notaðar hjóla-
skóflur og lyftarar, þar á meðal
einn 10 tonna,“ segir Hjálmar.
Dóttirin ekki rauðhærð
Hjálmar var á dögunum val-
inn rauðhærðasti Islendingurinn
í keppni sem fer fram á írskum
dögum á Akranesi. „Ég er víst
rauðhærðasti vörubílstjóri lands-
ins í dag. Einkadóttirin erfði ekki
þennan fagurrauða háralit frá
pabba sínum,“ segir Hjálmar.
Að sögn Hjálmars á hann mörg
áhugamál sem hann sinnir í frí-
stundum. „Ég er mikið í hesta-
mennsku og á tvo hesta. Þetta er
tímafrekt áhugamál en ég sinni því
af kappi. Einnig á ég fjórhjól, ég hef
alltaf verið mikill áhugamaður um
vélhjól. Fjórhjólið nota ég ekki inn-
anbæjar, ég keyri það aðallega í fjöll-
unum hér í kring.“
Ert þú leid(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐUUÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST.
ÁBYRGÐ PASSA
FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABtLA
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDAST OG ENDAST
Klettagarðar 11,104 Reykjavík
Sími 568 1580 • Fax 568 0844
Dekkið fullt af kókaíni
Ungur maður í Mexíkó var ný-
búinn að stofna fyrirtæki sem sér
um vegaframkvæmdir. Hann sá
fram á að þurfa bæta við sig vinnu-
vélum og sá hag sinn í því að nýta
sér kosti hnattvæðingarinnar og
pantaði sér gröfu í gegnum Netið.
Hann pantaði 15 tonna hjólagröfu
með tönn og 62omm tvíbura-
dekkjum. Þegar maðurinn hafði
fengið gröfuna afhenta fór hann
strax með hana á vinnusvæðið
þar sem hún var prófuð. Þá kom
í ljós að annað dekkið var ekki
eins og það átti að vera og því var
nánast ógerlegt að keyra gröfuna.
Hann ákvað að fá vélsmið og bif-
vélavirkja til að yfirfara gröfuna.
Þeir voru allir sammála því að það
þyrfti að skipta um dekk. Ungi
maðurinn lét taka dekkið undan
og setti annað í staðinn. Þegar
hann ætlaði að henda gallaða dekk-
inu kom í ljós að eitthvað var inni
í slöngunni en við nánari athugun
sást glitta í poka fullan af hvítu
efni. Dekkið var hlaðið mörgum
kílóum af kókaíni sem átti að
smygla til landsins, einhvers
staðar hafði gröfum verið ruglað
saman og smyglararnir fengið
gröfudekk fullt af lofti. Ungi mað-
urinn var því búinn að keyra um
á gröfu með dekki sem var virði
heillar gröfuverksmiðju.