blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
blaöid
ALLT Á SAMA STAÐ FYRIR
GRJÓTMULNING OG EFNISFLOKKUN.
Reimar í færibönd,
sléttar og rifflaðar.
Einnig skúffubönd
Rúllur, rúllustólar,
gírar.mótorar
og endakefli.
Minet færíbandasamsetningar
og viðgerðarefni, sem minnka
vinnutap og viðgerðarkostnað
Enginn biðtími, viðgerð getur
hafist strax og bilun verður
BMBKAXJP
Smiðjuveg 4 A
200 Kópavogur
Sími: 564-3220
Farsímar: 894-3836
894-3933
Fáið óháða ráðgjöf
við val á mulnings og
flokkunarvélum.
Við þekkjum hvað
þarf á íslenskt grjót
-li
AE vélaleiga
Leigi út smágröfur
á sanngjörnu verði
með eða án
manns.
Einnig höfum við
leigukerrur.
AE vélaleiga
sími 696 9825
Bíldshöfði 14, Sími 553 1244 • ijosboginnehf@simnet.is
VERKTAKAR • IÐNAÐARMENN • BÆNDUR • FERÐAMENN
RAFSTÖÐVAR OG VATNSDÆLUR
Rafstöðvar 1-3ja fasa, 1-10 kwa Ultra silent.
Ath, höfum einnig mjög handhægar rafstöðvar 1kwa
aðeins 14kg og 2kwa 22kg , tilvaldar fyrir
ferðamenn, verktaka og iðnaðarmenn.
Höfum einnig mjög meðfærilegar og liprar
vatnsdælur 3” 30-52 kg dísel og bensín.
Forbrjótar Eftirbrjótar Hverfilbrjótar
Seljum nýjar og notaðar mulningsvélar ásamt
varahlutum og slithlutum í allar tegundir
Seljum færanlegar malarhörpur, allar stærðir
Einnig hörpunet fyrir allar gerðir af hörpum
Höfum fengið hinar frábæru Rafstöðvar
og vatnsdælur frá Kípor
Ný færibönd allar breiddir og lengdir
Marinó Fannar vinnur á skotbómulyftara
Heldur uppi stuðinu
sem Elvis-eftirherma
Marinó Fannar Garðars-
son er 28 ára og starfar
á skotbómulyftara á
vegum ÞG verktaka. Hann
er jafnframt mjög mikill
aðdáandi Elvis Presley.
► Var fæddur þann 8. janúar
1935 og hann lést 16. ágúst
1977.
Elvis átti tvíburabróður sem
fæddist andvana
Eftir Sigrúnu Maríu Einarsdóttur
sigrun@bladid.net
„Starf mitt felst í því að þjónusta
þá sem eru á vinnusvæðinu. Ég færi
til efni og jarðveg. Þannig að þetta
er í rauninni alhliða þjónustustarf.
Ég er búinn að vera að flakka á
milli vinnuvéla síðan ég var ungur.
Ég kem úr sveit og því hef ég keyrt
dráttarvélar í langan tíma. Ég hef
prófað að vinna á ýmsum vinnu-
vélum, meðal annars skipakrana.“
Marinó er þó líka mjög mikill El-
vis Presley-aðdáandi. Þó að hann
sé ekki á þessum hefðbundna El-
vis-aðdáendaaldri þá hefur hann
gríðarlega mikinn áhuga á honum
og hann segir að Elvis eigi sér eng-
inn aldurstakmörk og sé tímalaus.
Á meðan margir aðdáendur Elvis
láta sér nægja að hlusta á gömul
lög hans þá gengur Marinó skrefi
lengra. Því hann á Elvis-galla sem
hann klæðist nokkrum sinnum á
ári og tekur þá gjarnan lagið.
Syngur á jólahlaðborðum
„Elvis-áhuginn kviknaði þegar
ég var pjakkur og hann hefur þró-
W, Elvis hefur verið einn tekju-
hæsti látni listamaðurinn að
mati tímaritsins Forbes.
ast mikið. Móðir mín rekur Hótel
Freyju í Gnúpverjahreppi og þar
hefur verið boðið upp á amerísk
jólahlaðborð undanfarin ár. Okkur
langaði að gera eitthvað amerískt
og skemmtilegt fyrir jólahlað-
borðið og við vorum lengi að velta
því fyrir okkur hvað væri hægt
að gera. Það endaði með því að ég
keypti mér tvo Elvis-galla á netinu,
fékk þá senda, æfði nokkur Elvis-
lög og síðan hefur þetta verið fastur
liður á þessum jólahlaðborðum. Ég
er einnig kokkur og því elda ég á
jólahlaðborðunum og treð síðan
upp eftir matinn og held uppi stuð-
inu með nokkrum vel völdum Elvis-
lögum og sveifla mjöðmum með.“
Stefnir á Las Vegas
„Ég kom eitt sinn fram á árshátíð
ÞG verktaka sem var haldin í Sló-
veníu. Ég söng þar Elvis-lög í karók-
íkeppni starfsfólksins og ég vann
þá keppni með miklum glæsibrag.
„Einnig fór ég einu sinni í helgar-
ferð til Kaupmannahafnar og þegar
ég var að taka upp úr töskunni
reyndist Elvis-gallinn vera þar fyrir
algjöra tilviljun. Ég var einn í Kaup-
mannahöfn og mér datt því í hug
að skella mér í gallann og fara út.
Ég álpaðist á næsta karíókíbar og
var þar í fjóra klukktíma og söng
fjöldamörg lög. Eigandi staðarins
var svo ánægður með mig að hann
leyfði engum öðrum að komast að.
Það var mjög mikil stemning og
ég söng bara eins og vitleysingur.
Ég hef því komið fram í Slóveníu,
Kaupmannahöfn og á íslandi. Ég
stefni á að fara einhvern tíma til
Las Vegas í Elvis-gallanum og taka
nokkur lög og draumur minn er að
fá að koma fram í auglýsingum í
Elvis-búningnum.“
Aðspurður hvort hann þyki vera
líkur sjálfum Elvis segir hann að
svo sé ekki beint en þó sé hann með
barta eins og Presley var með.
„Ég hækka alltaf þegar ég heyri
Elvis-lög í útvarpinu en í vinnunni
má ég ekki vera með heyrnartól
í eyrunum þar sem menn þurfa
mikið að tala við mig. En þegar
ég heyri Elvis-lag í vinnunni loka
ég öllum gluggum í vélinni og svo
syng ég bara með. Félagar mínir og
vinir hafa mjög gaman af þessum
mikla Elvis-áhuga mínum og þeir
fjölmenntu á síðasta jólahlaðborð
og hlustuðu á mig,“ segir Marinó
hinn mikli aðdáandi Elvis Presley
að lokum.