blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 11

blaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 11
Strandbærinn Mamaia Þarna ákvað hinn drukkni, handalausi Aurel Olteanu að aka bíl sínum. Handalaus stútur handtekinn Akstur er vandasamt verk. Allt frá fyrsta ökutímanum er fólki kennt að hafa báðar hendur á stýri og hafa alltaf fulla athygli á akstrinum. Akstur undir áhrifum áfengis er með því versta sem öku- menn geta látið sér detta í hug en þó berast sífellt fréttir af ökumönnum sem eru teknir fyrir ölvunarakstur. Líklega er enginn þeirra ökumanna sem teknir eru fyrir ölvunarakstur þó jafn kærulausir og hreint út sagt heimskir og hinn rúmlega tvítugi Rúmeni Aurel Olteanu. Lögreglan í Rúmeníu handtók á dögunum hinn 23 ára gamla Aurel fyrir ölvunaakstur nærri strand- bænum Mamaia. Það hefði í sjálfu sér ekki verið í frásögur færandi ef Aurel væri ekki handalaus og nakinn í þokkabót. Lögreglan fékk ábend- ingu um BMW-bifreið sem keyrði mjög skrykkjótt eftir fjölförnum vegi og þegar lögregluþjónar stöðv- uðu bifreiðina blasti við þeim hinn nakti, handalausi stútur. Marius Ghita, talsmaður lögregl- unnar á staðnum, var skiljanlega gáttaður á málsatvikum. „Hann hafði ekkert bílpróf en sagði okkur að hann hefði þróað upp sérstaka að- ferð til að stýra bílnum. Hann sagði að hann hefði verið í sólbaði á nekt- arnýlendu og að hann væri á heim- leið. Hann kaus að klæða sig ekki þar sem hann var á hraðferð.“ Olteanu hefur verið ákærður fyrir glæfralegan akstur en hann var vel yfir leyfilegum áfengismörkum. Lík- legt verður að teljast að kauði verði dæmdur til hárrar sektar og jafnvel er talið að hann þurfi að dúsa í stein- inum í einhvern tíma. En hvernig hinum handalausa og haugfulla Aurel datt í hug að keyra bíl í þessu ástandi er eitthvað sem enginn fær nokkurn tímann skilið. Aksturskeppni í Bandaríkjunum Senn líður að bandariska vöru- bílaakstursmótinu sem hefst þann 21. ágúst næstkomandi og mun standa til 25. ágúst. Þetta er einn stærsti og virtasti atburður sem haldinn er í þessari atvinnugrein. Nú í ár verður keppnin haldin í Minneapolis. En keppnin var einnig haldin í Minneapolis árið 2001. Undanfari þessarar keppni var sá að haldin voru mót í öllum fylkjum Bandaríkjanna og sigur- vegari þeirra vann sér rétt til að keppa á mótinu í Minneapolis. Alls er keppt í átta keppnisflokkum og því sendir hvert fylki átta kepp- endur. Það er því ljóst að margir keppendur munu taka þátt í ár. Mótið í Minneapolis stendur í fjóra daga og á þeim tíma þurfa ökumennirnir að leysa hinar ýmsu þautir. Mjög verður reynt á ökuhæfni þeirra og öryggiskunn- átta verður einnig könnuð. 1 þraut- unum verður reynt að líkja eftir akstri á þjóðvegunum, til dæmis < þurfa ökumenn að keyra milli þröngra gatna. Þeir verða að geta stöðvað bílinn á réttum tíma og prófuð verður færni ökumanna í því að taka hægri og vinstri beygjur án þess að rekast utan í nokkuð. Ökumenn þurfa að geta lagt í stæði án þess að snerta lín- urnar og keyra alveg beint á mjög þröngum vegum. Þegar keppninni lýkur, laugar- daginn 25. ágúst, verður krýndur meistari í öllum átta flokkunum og lið mótsins valið. Þessi keppni dregur að fjölda fólks og talið er að 2000 manns muni horfa á keppnina. Fjöldi ætt- ingja, vina og áhugafólks um bila koma árlega á þessa keppni og horfa á ökumennina gera sitt besta til að leysa þær þrautir sem eru lagðir fyrir þá. Vegna góörar verkefnastööu okkar og margra stórra verkefna framundan vantar okkur öflugan og góöan mannskap sem vill vinna hjá öflugu og traustu fyrirtæki á góðum launum. Óskum eftir að ráöa: BÍLSTJÓRA VÉLAMENN LAGNAMENN Greitt samkvæmt mælingu. Góðir tekjumöguleikar fyrir samhenta og kraftmikla menn. Umsóknir skulu fylltar út á heimasíðu félagsins www.hafell.is. Nánari upplýsingum má koma í tölvupósti hafell@hafell.is eöa á skrifstofu Háfells í Skeifunni 11. háfell Háfell getur tekist á við öll stór sem smá jarðvinnuverkefni og hefur leyst af hendi krefjandi tæknileg verkefni. Fyrirtækið býr yfir víðtækri reynslu í mannvirkjagerð og hefur á að skipa mikilli þekkingu, öflugum mannafla og nýlegum tækjakosti. Með stærstu vegagerðaverkefnum á íslandi sem Háfell hefur tekið að sér eru gerð Reykjanesbrautar, færsla Hringbrautar í Reykjavík og færsla Sæbrautar í Reykjavík auk ýmissa annarra stórra vegagerðarverkefna víða um land. Stærsta verkefni Háfells hingað til er án efa gerð Héðinsfjarðarganga í samvinnu við Metrostav fyrir Vegagerðina. Háfell hefur vaxið jafnt og þétt frá upphafi og með auknum umsvifum hefur starfsmönnum fjölgað. Háfell hefur yfir að ráða mjög hæfu starfsfólki á öllum sviðum sem býr yfir mikilli þekkingu ásamt áralangri reynslu til þess að mæta kröfum verkkaupa á öllum sviðum. Höfuðstöðvar Háfells eru í Skeifunni 11 og verkstæði er að Krókhálsi 12 í Reykjavík. Háfell - Skeifunni 11-108 Reykjavík - Sími 575 9500 - Fax: 575 9520

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.