blaðið - 19.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 19.07.2007, Blaðsíða 1
133. tölubl.nl 3. círgangur Fimmtudagur 19. itilí 2007 FRJALST, OHAÐ Indverskt á íslandi !//i Stærra Þjóðleikhús Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri segir að nauðsynlegt sé að byggja við leikhúsið sem allra fyrst en nú standa yfir miklar endur- bæturá húsinu. KOLLA»16 George Holmes er ind- verskur meistarakokkur hjá Indian Mango en hann segir að fslendingar séu afar áhugasamir um ind- verskan mat en jafn- framt kröfuharðir. MATUR»22 Leiðir gleðigöngu Katrín Jónsdóttir er í stjórn Hinsegin daga og er jafnframt göngustjóri gleði göngunnar sem verður farin í f immta sinn í Reykjavík laugardag- inn ll.ágúst. KONAN>: 20 „Breytir minni sýn" ■ Utanríkisráðherra heimsótti ísraelsk hjón sem urðu fyrir sprengjuárás fyrr í vikunni ■ Tíu hafa fallið og hundruð særst í stöðugu sprengjuregni í bænum Sderot Eftir Pórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Jerúsalem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra heimsótti í gær bæinn Sderot í ísrael, þar sem tíu manns hafa látist og hundruð særst undanfarin ár vegna eldflaugaárása palestínskra skæruliða frá Gaza-svæðinu. Ingibjörg Sólrún heimsótti heimili Marcel og Felix Matmon, sem varð fyrir sprengju síðastliðinn mánudag. Hjónunum tókst að komast með börn sín í lítið loftvarnabyrgi í kjallara hússins, en stór hluti þaksins var sprengdur af. Marcel, sem er heimavinnandi húsmóðir, sagði ráðherranum hvað hefði gerst og hvernig sér liði eftir á. Hún var enn í áfalli og sagðist hafa sent börn sín í burtu. Saga hennar vakti upp sterk viðbrögð hjá Ingibjörgu Sólrúnu, sem táraðist þegar hún kvaddi Marcel Matmon með innilegu faðmlagi. Sprengjuregn Sprungnum Kassam-eldflaugum er staflað upp í kjallara lögreglustöðvar bæjarins. „Það er auðvitað skelfing að sjá þetta og átta sig á því hvað það er algengt að sprengjur falli hér á þessu svæði. Að sjá þá stöðugu ógn sem fólk hérna lifir við,“ sagði Ingibjörg Sólrún í samtali við Blaðið. Hún segir að ferðin til Miðausturlanda hafi breytt sýn sinni á ástandið þar, en minnir á að enn eigi hún eftir að fá hina hliðina. „Ég á enn eftir að fara og ræða við fulltrúa Palestínumanna og sjá aðstæður á Vesturbakkanum. Ég er ekki komin með heildarmyndina heldur einungis hluta af henni. En ég er sannfærð um að þetta muni breyta minni sýn.“ Shalom Halevi, fyrrum bæjarstjóri í Sderot, segir að síðan sprengjuregnið frá Gaza-svæðinu hófst árið 2001 hafi meira en 2.800 Kassam-eld- flaugum verið skotið á bæinn. „Það er ekkert svæði innan bæjarmarkanna sem hefur ekki fengið flaug á sig. Þegar aðvörunarflauturnar byrja að væla þá hafa íbúarnir fimmtán til sautján sekúndur til að komast í öruggt skjól." TVÆR SPRENGJUR A DAG8 Hefur áfengisverð áhrif á neyslu? Mönnum ber ekki saman um sam band áfengisverðs og neyslu. Frarr Iru'Bm/l'icfinri QA Á cnírir v/irAin naia anrii en iramKvæma FlS segir hátt verð ýta unc smygl og heimabrugg. Álver er ekki áhyggjuefni Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holding, hefur ekki áhyggjur af byggingu álvers í Þorlákshöfn. Vatnstöpp- unarverksmiðja hans hyggst dreif vatni í „hverja smábúllu <| • í Bandaríkjunum“. I« Sextán hæðir af tuttugu risnar Verslanirnar í hæsta húsi landsins opnaðar í október „Við erum á 16. hæð en gert er ráð fyrir að uppsteypu og frágangi utanhúss verði lokið í októberlok," segir Júlíus Finnsson, staðarstjóri við byggingu 20 hæða háhýsis við Smáratorg. Byggingin verður alls rúmlega 78 metrar og hæsta hús landsins. Opna á leikfangaverslunina Toys “R“ Us og húsgagnaverslunina Pier á fyrstu hæð þegar í okt- óber. í húsinu verða m.a. Kaupþing banki og World Class, en á 19. og 20. hæð verða veitingastaðir. Dregur úr snús-sölu Talsvert hefur dregið úr sölu í Svíþjóð á sænsku munntób- aki, eða snúsi. Fyrri helming ársins dróst salan saman um átta prósent milli ára. Orsökin er rakin til þess að skattur á snús hækkaði um helming um síðustu áramót sem hafði í för með sér um 250 króna verð- hækkun á hverja dós. Verslunareigendur tóku eftir að neytendur hömstruðu margir snús fyrir síðustu áramót, en rannsóknir sýna að fjölmargir hafi einfaldlega hætt neyslu vörunnar. Tekjur Swedish Match, stærsta fram- leiðanda snúss í Svíþjóð, dróg- ust sömuleiðis saman. NEYTENDAVAKTIN r Pylsubrauö Verslun Krónur Bónus 69 Krónan 70 Kaskó 75 Fjarðarkaup 79 10-11 159 11-11 159 Verð á pylsubrauði frá Myllunni (5 stk. ipoka). Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % jfeg USD 59,74 -0,38 ▼ SS GBP 122,41 -0,25 ▼ SS DKK 11,06 -0,46 ▼ • JPY 0,49 -0,21 ▼ Bi EUR 82,33 -0,47 ▼ GENGISVÍSITALA 111,26 -0,45 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 9.016,00 1,58 A VEÐRIÐ í DAG L bilolondJs J Milcið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.