blaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 1
ORÐLA Samsæri trúbadora Trúbadorinn Svavar Knútur Kristinsson heldur áleiðis til Ástralíu innan skamms til að syngja en hann er einn af stofnendum Hins alþjóðlega trúbadorsamsæris. ÓLK»38 Fjör í Galtalæk Ari Matthíasson, f ram- kvæmdastjóri SÁÁ, segir að það sé mikilvægt að geta skemmt sér í vímu- lausu umhverfi en það verður líf og fjör í Galtalæk umhelgina. í hnapphelduna Garðar Thor Cortes er í ítarlegu viðtali við breska blaðið OK þar sem hann segist ætla að ganga í hjóna- band í lok sumars með látlausu en innilegu brúðkaupi. Fólitísk samstaða um lækkun áfengisverðs ■ Forystumenn fjögurra flokka af fimm vilja endurskoða lög um opinber gjöld á áfengi Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Forystumenn fjögurra flokka á Alþingi segja tímabært að endurskoða opinber gjöld á áfengi. Varaformaður Samfylkingar, Ágúst Ólafur Ágústsson, hefur lýst því yfir í Blaðinu að lækka þurfi áfengisverð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og vara- formaður Sjálfstæðisflokksins, er sama sinnis: „Is- lendingar eru fullfærir um að taka ákvarðanir um áfengisneyslu sjálfir, án þess að stjórnvöld stýri neyslu með háum áfengisgjöldum. En það þarf að auka forvarnir í þessu máli eins og öðrum.“ Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, segir vel koma til greina að lækka opinber gjöld á áfengi. „Ég held að neyslustýringin sé ekki að ÁFENGISVERÐ Á ÍSLANDI ► Áfengisverð á íslandi er 126% hærra en að meðaltali í Evrópusambandinu. Opin- ber gjöld ráða mestu um verðmuninn. Fimmtungur þingmanna stjórnarliðsins hefur þegar lagt til að lög og reglur um áfengissölu verði endurskoðuð. ► Þingmenn Frjálslyndra sem rætt var við voru síst tilbúnir til endurskoðunar. virka, og held að gjöld á áfengi hafi ekki áhrif á það hvernig vínmenning þróast." Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar- flokksins, segir mikilvægt að halda að einhverju leyti áfram sömu stefnu í áfengismálum. „En ég styð það að gjöld á léttvín og bjór verði lækkuð, og ég held að stefna Framsóknarflokksins sé almennt í þessum anda.“ Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra er fylgjandi því að lækka opinber gjöld á áfengi, en vill að á móti verði forvarnir auknar. „Auðvitað á að stefna að því að verð á áfengi, eins og á öðru, sé í samræmi við það sem gengur og gerist í Evrópu. Það er stefna stjórnarinnar að lækka vörugöld og afnema sértæka skatta, og lækkað áfengisgjald er partur af því ferli.“ Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, var ekki tilbúinn að svara því hvort hann væri fylgjandi lækkun áfengisverðs. ÞVERPÓLITÍSKUR VIUI»10 ísland gæti haft hlutverki að gegna Israelskir stjórnmálamenn telja að ísland gæti gegnt hlutverki í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðar- hafs. Utanríkisráðherra heimsótti Ramallah, óopinbera höfuðborg Pal- estinu í gær og þingaði ' q q með Abbas forseta. ö“ír Tekist á um turna í miðbænum Ibúar í miðbæ Hafnarfjarðar eru ósáttir við áform um byggingu 9 hæða háhýsis. „Þessir turnar munu orsaka myrkur í nágrenninu frá september til mars,“ segir Ellert Gissurarson, íbúi í grennd við fyrirhugaða byggingu. aL Loksins kom gróðarskúr Gróður tekur kipp eftir mikla þurrka „Það var aðallega farið að sjá á grasinu hér,“ segir Ingunn Óskarsdóttir, yfirgarðyrkjufræðingur í Grasagarði Reykjavíkur vegna rigningarleysis sumarsins hingað til. „Undanfarið höfum við í Grasagarðinum verið með alla úðara í gangi sem við höfum komist yfir og vökvað garðinn vítt og breitt.“ Ingunn segist því fagna rigningunni sem spáð er á næstu dögum, þar sem garðurinn tekur kipp á stuttum tíma. „Þó má rigningin helst ekki standa lengur yfir en í þrjá daga.“ Stúlkurnar á myndinni starfa við umhirðu fjölærra plantna í garðinum. Trygging fyrir skilnaði Dönsk t ryggingafélög boða að í framtíðinni verði hægt að tryggja sig fyrir áföllum á borð við hjónabandserfiðleika; tryggingarnar greiði þá fyrir hjónabandsráðgjöf. í samtali við Berlingske Tidende segir Jorgen Thau, talsmaður tryggingafélagsins Codan, að fólk muni áfram tryggja hús og bíla, en að það séu ekki slíkir hlutir sem hafi raunverulega þýðingu í huga fólks. Þannig telur Thau ekki útilokað að verði hægt að tryggja sig fyrir námserf- iðleikum barna sinna, t.d. ef þeim gengur illa í prófum og þurfa á aukatímum að halda. NEYTENDAVAKTIN iSRl Verð á sykri Verslun Krónur Bónus 211 Nettó 215 Samkaup-Úrval 235 Spar Bæjarlind 243 Melabúðin 259 Nóatún 278 Verðásykri 2 kg. Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % wm usd 59,50 -0,39 ▼ mg GBP 121,93 -0,39 ▼ SS DKK 11,05 -0,05 ▼ • JPY 0,48 -0,43 ▼ HH EUR 82,29 -0,05 ▼ GENGISVÍSITALA 111,06 -0,18 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.989 -0,30 ▼ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR»2 m Ara Abyrqda FYRIR VEIÐIMANNINN Vatnsheld niður á 10 metra dýpi OLYMPUS Mju-770SW 7.1 Milljón pixlar Þolir fall úr 1.5 metra hæð Frostþolin (—10°C) Þolir 100 kg. þrýsting 3x aðdráttur (linsu Verð: 38.900 kr OLYMPUS YOUR VlSION, OUR FUTURE ORMSSON UM LAND ALLT • www.ormsson.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.