blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 24

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 blaóió -Hr blaöi Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Auglýsingasíminn er 510 3744 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Hlkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar áföstudögum Galdurinn hennar J.K. Rowling Fyrir tíu árum síðan hefði ég viljað reka bókaútgáfu. Þá hitti ég á förnum vegi einn af helstu starfs- mönnum hjá stóru bókaforlagi á íslandi, þann starfsmann sem var yfir barnabókunum hjá viðkom- andi forlagi. Og ég spurði hvað væri á döfinni og fékk nokkur nöfn á bókum sem forlagið ætlaði að gefa út um næstu jól. „En þessi Harry Potter?“ spurði ég. „Eruði ekkert að pæla í honum?“ Þá var fyrsta bókin um Harry Potter tiltölulega nýkomin út í Bretlandi. Ég hafði rekist hér og hvar í breskum blöðum á fregnir af bókinni og þótt það væri enn langt í að þetta sköpunarverk J.K. Row- ling legði undir sig heiminn, þá var einhver tónn í því sem skrifað var um bókina sem benti til þess að þarna gæti verið eitthvað óvenju- legt á ferðinni. „Harry Potter?“ sagði starfsmaður bókaútgáfunnar. „Hver er það?“ Ég sagði undan og ofan af Harry Potter en tókst ekki að kveikja mik- inn áhuga á fyrirbærinu. „Hljómar nú ekkert mjög skemmtilega," sagði umsjónar- maður barnabóka á þessu stóra íslenska forlagi og fór að tala um eitthvað annað. Harry Potter og Da Vinci-lykillinn Það er altso þá sem ég hefði viljað reka bókaforlag. Því þá hefði ég fylgt nefinu á mér og fengið mér réttinn á Harry Potter og mokað inn peningum á því að gefa hann út á Islandi. En auðvitað gerði ég ekkert þvílíkt og nokkru síðar kviknaði á perunni hjá Snæbirni Arngrímssyni sem hafði rekið smáforlagið Bjart meira af vilja en mætti í nokkur ár. Snæbjörn hafði araffla HarryPotter? Hljómar nú ekkert mjög skemmtilega," sagði umsjónarmaður barnabóka á þessu stóra íslenska forlagi og fór að tala um eitthvað annað. fram að þessu fyrst og fremst gefið út vandaðan íslenskan skáldskap og var ekkert á leiðinni að verða ríkur af því. En svo fattaði hann á undan stóru forlögunum hérlendis að það var eitthvað sérstakt við Harry Potter. Og með því að gefa hann út hér á landi renndi Snæ- björn mun styrkari stoðum undir lllugi Jökulsson skrifar um Harry Potter litla forlagið sitt og gat óhikað haldið áfram að gefa út skáldskap- inn. Þegar Snæbjörn áttaði sig svo líka fyrstur íslenskra útgefenda á því að frekar stirðbusalegur amer- ískur reyfari að nafni Da Vinci-lyk- illinn hefði óvænta möguleika, þá var orðið ótvírætt að Snæbjörn vissi lengra nefx sínu. Enda kominn í útrás til Dan- merkur þegar síðast fréttist. Persónulega hef ég ekki náð neinu sambandi við Harry Potter. Það er sagt að bækurnar um hann séu ekki síður fyrir fullorðna en börn og unglinga, svo ég settist niður með fyrstu bókina og hugði gott til glóðarinnar. En nennti nú ekki lengi að lesa - ekki frekar en ég nennti að klára Da Vinci-lykil- inn! En bækur J.K. Rowling eru nú samt sem áður allrar virðingar verðar og nú þegar síðasta bókin um Harry Potter kemur út þá er augljóst hvað þær hafa haft mikil áhrif. Ef einhver hefði reynt að ljúga því að okkur fyrir bara tíu árum að út ætti eftir að koma bók sem milljónir manna biðu eftir með öndina í hálsinum og það þyrfti að gæta upplagsins með vopnuðum vörðum svo ekki fréttist út fyrirfram hvert plottið væri - þá hefðum við náttúrlega bara fussað og sveiað. Endemis rugl væri þetta! Ekki síður göldrótt en Harry En svona fór það nú samt. J.K. Rowling tókst með einhverjum furðulegum hætti að snúa gjör- samlega við hnignun bókarinnar sem virtist óhjákvæmileg. Og af því bækur hafa gildi í sjálfu sér og eiginleika sem ekki er að finna hjá neinu öðru formi lista, fjölmiðl- unar eða samskiptatækni manns- ins - þá er það verulega hrósvert afrek hjá konunni. Og sýnir að hún er ekki síður göldrótt en strákurinn Harry. Það verður að teljast ólíklegt að annað eins fyrirbæri og Harry Potter komi aftur fram á sjónar- sviðið á næstunni og nái viðlíka tökum á jafn mörgum. En galdra- strákurinn hefur þó sýnt fram á að það er hægt að kenna tölvukynslóð- unum að lesa. Og ég verð að segja að þótt ég sjálfur hafi ekki fallið fyrir töfrum Harrys Potter, þá öfunda ég svolítið þá sem einmitt nú eru sestir við með þykka bók í höndunum og eru þess albúnir að ganga inn í heim hennar. Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Gcir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir UTFARARSTOFA ISLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.