blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 25

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 25
blaöið LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 25 LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ bladid@bladid.net Þetta er ein besta fiík sem ég á, sér- staklega eftir að reykingar voru bann- aðar innanhúss. Ég nota hana mikið, þá aðallega þegar ég fer út að reykja. Það hefur verið sagt að fötin skapi mann- inn. Þegar Blaðið innti fimm einstaklinga eftir því hver væri besta flík sem þeir hefðu átt urðu svörin fjölbreytt og áhugaverð. Margir hafa átt flíkur sem hafa fylgt þeim í mörg ár og eiga sér langa sögu. Á meðan aðrir eru nýbúnir að fá flík sem er þó í miklu uppáhaldi. Flíkurnar eiga það sameiginlegt að vera í miklu uppá- haldi, þó af misjöfnum ástæðum. Arnar Tómasson hárgreíðslumeistari Á sérsaumaða loðskinnskápu „Ég lét sauma á mig þykka og mikla gæru í New York sem ég á enn þá og nota mikið. Þetta er stór og mikil loðskinnskápa úr Toscanalambi. Kápan er hönnuð af Alanzo í New York. Þetta er ein besta flík sem ég á, sérstaklega eftir að reykingar voru bann- aðar innanhúss. Ég nota hana mikið, þá aðallega þegar ég fer út að reykja. Þetta var mjög góð fjárfesting því hún ver mig gegn lungnabólgu. Aðspurður hvort að hann kaupi dýr föt segist Arnar eyða skynsam- lega í föt. „Ég eyði kannski meira í fylgihlutina, eins og belti, og svo er hægt að nota hitt ódýrara með. En mér finnst um að gera að blanda þessu nógu mikið saman. Föt þurfa ekki endilega að vera dýr til að vera góð. Mér finnst mjög gott að versla í H&M en einnig eru Gstar, Armani og Gautier í uppáhaldi. Ég held mikið upp á skó, maður getur aldrei átt of mikið af skóm. Ég kaupi yfirleitt frekar dýra skó þar sem ég er skóböðull. Mér finnst vel pússaðir skór vera mjög mikil- vægir og það er synd hvað íslend- ingar pússa skóna sína lítið.“ Besta flíkin mín Kjóll við öll tækifæri Hugrún Dögg Árnadóttir, eigandi Kron, segir að það sé mjög breytilegt hver sé hennar uppáhaldsflík því það fari bara eftir hvernig það liggi á henni. En þessa dagana á hún þó kjól sem hún heldur mjög mikið upp á. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að gera upp á milli fatanna sem hún á. „Uppáhaldsflíkin mín í dag er silkikjóll frá Eley Kiskimoto. Þetta er alveg æðis- legur silkikjóll og hann er því mjög fínn fyrir sumarið. Ég er mjög mikil kjólakona og því hentar þessi silkikjóll mér mjög vel. Það er ofboðslega fallegt mynstur á honum. En það er svart, blátt og ljóst og ég hef átt þennan kjól i um hálft ár. Hugrún segir að kjóllinn hafi nýst henni vel í góða veðrinu sem er búið að vera síð- ustu vikur. „Af því að hann er úr yndislegu silki þá er hann er ótrúlega mjúkur og léttur í sumarhitanum. Ég er því búin að nota hann mjög mikið í sumar. Það er þægi- legt að skella sér í hann á daginn. Hann er rosalega sparilegur en ég get þó líka notað hann snemma á mánudagsmorgni,“ bætir Hugrún við að lokum. Finnst gaman að gera fötin að sínum Þegar Svava Johansen var spurð hver væri hennar uppáhaldsflík komu tvær upp í hug- ann. Fyrst nefndi hún skinnjakka sem hún segir vera mjög hentugan á Islandi. „Hann er búinn að vera mörg ár í skápnum mínum og ég tek hann alltaf fram þegar það fer að kólna. Ég fékk hann í Evu fyrir fimm eða sex árum. Mér finnst hann alltaf jafn fallegur og hann er alltaf æðislegur og hlýr. Ég nota hann eins oft og ég get því mér finnst svo gott að vera í honum. Jakkinn hentar við öll tilefni því hann er bæði fínn og sportlegur." Aðspurð hvort að það séu fleiri flíkur sem koma til greina segir Svava að svo sé. „Ég á einn mjög fallegan svartan klassískan kjól inni í skáp hjá mér. Þrátt fyrir að ég skipti mjög ört um föt í skápnum þá hangir svarti kjóllinn alltaf áfram. Ég tek hann stundum fram og það er misjafnt hvað ég set á hann og hann breytist alltaf. Þarna geri ég kjólinn að mínum á mismunandi hátt. Þó að ég sé mjög nýjungagjörn og vilji yfirleitt vera að fá mér eitthvað nýtt þá finnst mér líka mjög gaman að eiga eina og eina svona sígilda flík.“ Svava Johansen eigandi NTC Enskur ullarfrakki í uppáhaldi Skjöldur Sigurjónsson segir að það séu margar flíkur sem komi til greina sem besta flíkin sem hann hefur átt. Sú flík sem stendur þó upp úr fékk Skjöldur þegar hann og Kormákur Geirharðsson ráku Herrafata- verslun Kormáks og Skjaldar á Hverfisgötu. „Þetta var grár, enskur ullarfrakki, mikill og góður með svörtu ullarfóðri. Það var líklega einhver búinn að eiga hann í einhverja áratugi á undan mér. Frakkinn hefur hlýjað okkur nokkrum í gegnum tíðina. Ég notaði hann í átta eða níu ár og hann hefur svo nýst einhverjum kynslóðum þar á undan. Hann var þó alltaf eins og glænýr.“ Skildi finnst mjög gaman að ganga í fötum sem eiga sér langa sögu. „Mér finnst alltaf mjög gaman að ganga í handsaumuðum fötum, þá aðallega tweed-fötum. Það er alltaf svo rnikill karakter í alvöru ullarfötum.“ „Ég hef átt svo mikið af skemmtilegum fötum í gegnum tíðina. Það eru því önnur föt sem koma líka til greina. Það eru tweed- jakkaföt sem voru saumuð 1937 og þau hafa alltaf verið í mjög miklu uppáhaldi hjá mér og hafa verið mikið notuð. Það er aðeins farið að sjá á þeim núna þannig að ég nota þau minna," segir Skjöldur að lokum. Úlpa sem hefur farið víða Katrín Júlíusdóttir átti ekki í miklum erfið- leikum með að velja sína bestu flík. Hennar uppáhaldsflík er úlpa sem hún eignaðist í fyrra. „Þetta er svört Columbia-útivistarúlpa. ‘ Þannig var mál með vexti að ég var á leiðinni til Úkraínu í kosningaeftirlit í mars 2006. Ég bjóst við að það yrði svo kalt þannig að ég fór á stúfana áður en ég fór út og keypti mér flíspeysu, úlpu og vettlinga. En svo þegar ég kom út var ekkert svo kalt þannig að ég þurfti ekki að nota flíspeysuna en ég var alltaf í úlpunni.“ „Ég hef notað hana gríðarlega mikið síðan ég keypti hana. Núna er hún aðallega notuð á fótboltaleikjum. En ég nota hana líka þegar ég fer út að hjóla eða ganga. Svo kom hún sér líka mjög vel þegar ég gekk Laugaveginn, frá Landmannalaugum niður í Þórsmörk. Þannig að þessi úlpa hefur komið mjög víða með mér, bæði í stuttar og lengri ferðir. Allt frá ferð í búðina og alla leið til Úkraínu. Ég er vongóð um það að hún eigi eftir að fylgja ' mér nokkuð lengi. Það sér ekki á henni þrátt fyrir mjög mikla notkun," segir Katrín.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.