blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 blaðið MENNING menning@bladid.net Ég fæ að leggja einkabíl beint við Hag- kaup og þar verður dreift landakortum af Norðurpólnum, af því að hann er að hverfa og einkabíllinn á þar hlut að máli. Torfi í Tukt Torfi Fannar Gunnarsson opnar sýningu á málverkum, skúlptúrum og ljósmyndum sínum í galleríi Hins Hússins, Gallerí Tukt við Pósthús- stræti, á milli klukkan 16 og 18 í dag. Torfi útskrifaðist af myndlistarbraut Fjölbrauta- skólans í Breiðholti síðast- liðið vor og er lokaverkefnið hans meðal verka á sýning- unni. Verkin eru af ýmsum toga og má þar nefna skúlp- túrinn „arin“ sem er úrlausn listamannsins á hrifningu mannsins af eldinum. Torfi vinnur mikið með ljós og tengir þannig saman ljós- myndir og skúlptúra. Sýningin verður opin frá 9 til 17 alla daga og er öllum heimill aðgangur, sér að kostnaðarlausu. Djass í Reykjavík Djasshátíð Reykjavíkur fer fram dagana 29. ágúst til 1. september en þeir íslenskir djasslistamenn sem hafa áhuga á að vera með í ár hafa enn tækifæri til þess að hafa samband við Pétur Grétarsson í síma 8613587 eða á netfangi PeGre@simnet.is. Dagskrá hátíðarinnar verður fljótlega fullgerð, en meðal þeirra sem þegar hafa boðað þátttöku sína eru píanistinn Uri Caine frá , Fíladelfíu, söngkonan Eivör Pálsdóttir, saxófónleikarinn Jerry Bergonzi og ýmsir fleiri. Nánari upplýsingar um dag- skrána má sjá á slóðinni jazz. is/festival.htm. Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeill sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta Samnorrænn listviðburður í fjölfömum verslunarkjömum Samtal milli ólíkra staöa Blaðið/ÞÖK Bjarki og Berglind I forsvari fyrir íslandshluta verkefnisins. Sýningin Miðbaugur og Kringla: Leisure, adm- inistration and control opnar í dag í Kringlunni og miðborg Reykjavíkur, en þar leiða saman hesta sína 11 ungir myndlistar- menn frá Norðurlöndun- um, sem hafa unnið að verkefninu í eitt ár. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Berglind Jóna Hlynsdóttir og Bjarki Bragason eru íslenskir myndlistarmenn og eru í forsvari fyrir íslenska hluta verksins, en áætlað er að sýningin verði einnig í hinum norrænu löndunum. „Við völdum Kringluna og mið- bæinn af því að þetta eru tveir fjöl- förnustu verslunarkjarnar borgar- innar. Verkin eru staðsett á víð og dreif á báðum stöðum og opnunin verður í raun í þremur hlutum. Fyrst klukkan þrjú í Kringlunni, svo klukkan hálfsex í Ráðhúsinu og loks klukkan átta um kvöldið í Gallerí Dverg á Grundarstíg," segir Berglind. „Margir stilla Kringlunni og miðbænum upp sem andstæðum en við reynum frekar að búa til samtal á milli staðanna og skoða hvað það er sem vantar á hvorum stað fyrir sig. Ófáir kvarta undan bílastæða- skorti í miðbænum sem er ekki vandamál í Kringlunni, og á móti þykir vanta dálítið nálægð við nátt- úruna í Kringlunni." fmynd óspilltrar náttúru Norrænu gestirnir hafa dval- ist hér á landi síðastliðnar tvær til þrjár vikur auk þess sem þeir komu í vikulanga rannsóknarferð síðasta vor. Að sögn Berglindar og Bjarka vinna þeir með þær hug- myndir sem þeir höfðu haft um ísland áður en þeir komu og upp- lifun sinni af landi og þjóð. „Það er margt sem þau ráku augun í. Til dæmis höfðu þau orðið vör við þessa ímynd af óspilltri náttúru sem íslendingar eru alltaf að selja út á við og eru svo stoltir af. Samt erum við alltaf að ganga nærri nátt- úrunni en höldum áfram að „selja“ þessa ímynd um hvað við erum stolt af íslenskri náttúru. Svo kom mörgum á óvart hversu miklar vegalengdir eru í þessari fámennu borg, enda þurfa margir Reykvík- ingar að keyra um 30 kílómetra í vinnuna á hverjum degi, líkt og tíðkast í mörgum stórborgum. Svo hafa Danirnir til dæmis talað um þá ímynd sem þeir höfðu til að byrja með af Islendingum, Eðalefni í miðborginni Blað að nafni Reykvískt Eðal- efni hefur verið gefið út í fjórum tölublöðum undanfarnar vikur og dreift á ýmis kaffihús í miðborg- inni. Um er að ræða einstaklings- framtak ungrar konu sem kallar sig Brissó B. Johannsson. Reykvískt eðalefni lætur lítið yfir sér, enda ein- ungis heimatilbúið ljósrit, en hefur engu að síður vakið mikla athygli kaffihúsagesta. Meðal fastra liða í blaðinu eru bloggfærslur fræga fólksins, ljóða- horn, spurning dagsins og fréttir af viðskiptalífinu og margt fleira. í öðru tölublaði birtist til dæmis eftirfarandi frétt úr viðskiptalífinu: ,Það voru hækkanir og lækkanir á hlutabréfamarkaðnum í dag. Dow Jones er hástökkvari vikunnar en hann stökk 1 metra og 85 sentímetra. Þó nokkrar væntingar voru gerðar til Keníumannsins Nasdaq en hann felldi í öllum tilraunum, mikil von- enda höfðu þeir ímyndað sér að hér væru flestallir nýríkir eins og þessir viðskiptamenn sem eru í útrás. Svo komu þeir hingað og áttuðu sig á að svo var ekki raunin og að miðbærinn til dæmis væri fátæklegri og á einhvern hátt auð- mýkri en þeir höfðu ímyndað sér,“ segja þau. Landakort af hverfandi ís Eins og fyrr segir eru verkin á víð og dreif á báðum stöðum og í al- menningsrými þannig að þau eru aðgengileg alls konar fólki. Berg- lind og Bjarki telja það sérstakan kost enda nái myndlistin þá að fanga athygli fólks sem ef til vill fer sjaldan eða aldrei á listagallerí. En hvernig verk skyldu þetta vera? „Það eru náttúrlega 11 manns með verk á sýningunni og sumir eru með mörg verk og aðrir kannski bara eitt. Við Berglind erum bæði með mörg sem byggja öll á sömu hugmynd. Ég er til dæmis með innsetningu við Hag- kaup sem samanstendur af bíl, ís- björnum og landakortum. Ég fæ að leggja einkabíl beint við Hagkaup og þar verður dreift landakortum af Norðurpólnum, af þvi að hann er að hverfa og einkabíllinn á þar hlut að máli,“ segir Bjarki. „Ég fékk leyfi hjá borginni til að brigði fyrir Afríkumenn.“ 1 þriðja tölublaði var sérstakt fem- ínistahorn með lesendabréfi sem hljóðaði svo: „Konur kunna ekki að keyra, fegurðardrottningar eru málið, kvenmannsnekt selur, Séð og Heyrt-stúlkan, þessi er drusla og limafögur útvalin módel með anó auglýsa rakfroðu fyrir kvenmanns- leggi. Djíses, hvað er að femínistum? Hér má krota ljótt um þá.“ LISTAMENNIRNIR ► Berglind og Bjarki útskrif- uðust úr myndlistardeild Listaháskóla íslands á síðasta ári. Bæði eru í fullu starfi sem listamenn. ► Bjarki var um tíma skipti- stúdent í listaháskóla í Berlín. taka yfir þrjú bílastæði, eitt í Trað- arkoti, annað hjá Rammagerðinni og þriðja fyrir framan Ráðhúsið. Ég bý til græn svæði með því að leggja blómabeð í þessi bílastæði og stór tré og plöntur. Svo fékk ég plöntur hjá Umhverfissviði borgar- innar til þess að gera ræktunarverk- efni í Kringlunni. Ég verð með hóp af ungu fólki í pollagöllum eins og í unglingavinnunni. Þau verða að gróðursetja litla garða upp við súlur, eins og þeir væru bara að vinna í görðum borgarinnar. Svo reyta þau upp plastblóm og gróður- setja sumarblóm í staðinn. Þetta er svona hugmynd um hvernig er hægt að skapa meiri miðborgar- stemningu og meiri náttúru í Kringlunni," segir Berglind. Sýningin stendur til n.ágúst. RtVKVÍskT Lsfrstfl&s&ttnWenR Ok£lPl5 puiGcAT fíf tí-S&ók. *•**§*«* lltín: simu) tik Káko K»l»: Simul UJ Sjtmí

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.