blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 21. JULI 2007
ÍÞRÓTTIR
ithroltir@bladid.net
íslendingar eru engir aukvisar og nýjasta æðið innan bifhjóla-
geirans er svokallað súpermoto, þar sem þeyst er um á torfæru-
hjólum á götuhjóladekkjum. Á nokkrum mánuðum hefur þeim
fjölgað sem slík hjól eiga og nota úr sex í hátt í sextíu.
SKEYTIN INN
Ai
rsene Wen-
ger, stjóri
rsenal,
skorar á leikmenn
sina að sýna meiri
hörkuíleiksínum
á næstu leiktíð
en liðið tapaði sem kunnugt er
flestum stigum sínum gegn minni
spámönnum. Er það athyglisverð
staðreynd að séu aðeins leikir efstu
liðanna á siðustu leiktíð skoðaðir
er Arsenal efst. Þeir enduðu hins
vegar 21 stigi eftir Manchester
United sökum þess að minni liðin
náðu stigi eða stigum gegn þeim.
Vika er þangað
til kynnt-
ar verða
hugmyndir um
nýjan knattspyrnu-
völl Liverpool en
þegar hafa ýmsar
upplýsingar lekið út. Mun nýr völlur
taka 60 þúsund áhorfendur með
stækkunarmöguleika í 80 þúsund og
verður völlurinn sjálfur vel niðurgraf-
inn þannig að stúkur lúta enn frekar
yfir hann. Risavaxið merki liðsins
úr gleri gnæfir síðan yfir völlinn.
Framkvæmdir eiga að heíjast 2008.
Alex Ferguson
áfúllavoná
að Carlos Te-
vez verði orðinn leik-
maður United áður
en leikmannamark-
aðurinn í Evrópu
lokast á ný i lok ágúst. Stendur styr
milli United og West Ham en það
er samkvæmt enskum miðlum smá-
atriði. Vill Tevez fara og nokk sama
hvað Eggert okkar Magnússon legg-
ur á sig, þá snýst honum vart hugur.
G
ylfiEin- llir-ILJ-
arsson og ------
I félagar hans
hjá Leeds United
hafa engin laun
fengið fyrir síðasta
mánuð að því
er fram kemur á BBC. Er liðið og
fjármál þess í skoðun en umdeild
er sú ákvörðun skiptastjóra að selja
Ken Bates liðið. Bates er betur
þekktur fyrir að eiga Chelsea áður
en Abramovich kom til skjalanna.
áer Arsenal
að líkind-
um næsta
liðið semverður
eign bandarískra
auðmanna. Fast-
eignajöfurinn
Stan Kroenke sem þegar á rúm
12 prósent í liðinu ætlar að auka
hlut sinn og gera yfirtökutilboð.
Vill hann fyrst hitta stjóm liðsins
til að ná lendingu áður en til
fjandsamlegrar yfirtöku kemur.
Iván Helguera
er orðinn leik-
maðurValencia
en samningur hans
við Real Madrid
var ekki endumýj-
aður í vor. Fækkar
ört í þeim hóp Real er kenndur
var um tíma við stjörnuþoku
þegar hver risastjarnan lék með
liðinu. Helguera var reyndar aldrei
í þeim hópi en var engu að síður
mikilvægur hlekkur þess liðs.
Aðeins Raúl
er eftir að
þeim hópi
er innihélt þegar
best lét Luis
Figo, Zinedine
Zidane, Ronaldo,
Claude Makelele, David Beck-
ham, Fernando Morientes,
Roberto Carlos auk fleiri.
EftiriTLÍrmilegustu atvik íþróttasögunnar
Johnson gegn Lewis rís hátt
Spretthlaupseinvígið á Ólympíuleikunum í Seoul
1988 milli Kanadamannsins Bens Johnsons og Banda-
ríkjamannsins Carls Lewis er einn þeirra viðburða sem
kemst á lista blaðamanna tímaritsins Sports Illustrated
yfir eftirminnilegustu íþróttaviðburði sögunnar.
Af ýmsu er að taka í umfjöllun blaðsins en mest er þó
frá viðburðum bandarískum sem við frónbúar höfum
lítinn áhuga á eins og hafnabolta og fótbolta að banda-
rískum hætti.
Af þeim íþróttum sem okkur eru nærtækari nefnir
einn hið árlega Palio-hestahlaup á Ítalíu. Tveir tala
um sigra Tiger Woods á golfvellinum. Annars vegar
fyrsta sigur Tigers á PGA-mótaröðinni og hins vegar
einvígi hans og Bob May árið 2000 sem fór í bráða-
bana. Stórleikur Manchester United gegn Real Madrid
í apríl 2003 fer í bækur eins blaðamannsins og Mi-
chael Jordan fær eina tilnefningu. Þá þykir ógleyman-
legt fyrsta tap Mikes Tysons f hringnum gegn Buster
nokkrum Douglas sem fyrirfram átti ekki að endast
tíu sekúndur með Tyson.
Johnson vinnur 100 metra hlaupið á nýju heimsmeti
1988 Johnson (159) glotti að Carl Lewis (1102) þegar hann
steig yfir sigurlínuna.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hvaða atvik úr íþróttasögunni stendur þér Ijósast
fyrir sjónum. Sendu okkur póst.
Bullandi
adrenalínstuð
Súpermoto nýjasta æðið hérlendis Torfæruhjól á götudekkjum
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Algjör sprenging hefur orðið hér
á landi hvað áhuga á mótor- og
torfæruhjólum varðar undanfarin
ár og telja fróðir til að mynda að
heildarfjöldi þeirra sem eiga og
nota torfæruhjól hérlendis nálgist
nú sex þúsund manns. íslendingar
eru engir aukvisar þegar kemur að
nýjungum og nýjasta æðið innan
bifhjólageirans er svokallað súp-
ermoto, þar sem þeyst er um á tor-
færuhjólum á götuhjóladekkjum. Á
nokkrum mánuðum hefur þeim
fjölgað sem slík hjól eiga og nota úr
sex í hátt í sextíu. Fyrsta súpermoto
keppnin er framundan.
Nýtt æði
Þó æðið sé nýtt hér á landi erum
við merkilegt nokk nokkuð sein
til í alþjóðlegum samanburði. Súp-
ermoto er til að mynda sú íþrótt í
Frakklandi sem hraðast hefur vaxið
síðustu ár 'og í Bandaríkjunum
er einnig að verða sprengja; svo
mjög reyndar að hafnar eru beinar
sjónvarpsútsendingar frá stærri
keppnum.
Hjólin eru tvenns konar. Annars
vegar sérstök súpermoto-hjól frá
framleiðanda en þau er einnig heim-
ilt að nota í umferðinni og hins vegar
breytt hjól en þeim má aðeins aka
á sértilbúnum brautum. Flest hjól
hér á landi eru breytt á þann veg að
götudekk og felgur eru settar undir
torfæruhjól enda ódýrari kostur en
að kaupa sérstakt hjól til þess
arna.
SnarQölgar í hópnum
Að sögn Arons Franks
Leopoldssonar, eins
þeirra sem vill sjá veg
fþróttarinnar vaxa
segir fjölgun iðkenda
sfna sögu. „Það er ekki
langt síðan við vorum
innan við tuginn að leika okkur hver
í sínu horni en eftir að leyfi fékkst
til æfinga á gömlu rallíkrossbraut-
inni hefur snarfjölgað í hópnum og
allt að 50 til 60 manns að leika sér
þegar við hittumst á fimmtudags-
kvöldum. Það er nokkur hundruð
prósenta aukning á einu ári.“
Á íslensku brautinni er ekið á
malbiki en erlendis fara keppnir
fram á tilbúnum malar- eða
moldarbrautum. Aron
viðurkennir að aðstæður
gætu verið betri
en menn sjái fyrir
sér að aðstaða öll
batni í framtíðinni.
www.supermoto.is
www.icemoto.com
SÚPERMOTO Á NETINU
Sýna fordæmi
Hjólreiðakappinn danski Mi-
chael Rasmussen, sem leiðir
Tour de France hjólreiðamótið,
hefur verið rekinn úr danska
landsliðinu vegna deilna um
lyfjapróf. Er því ekki haldið
fram að Rasmussen hafi tekið
lyf en hann gat ekki gert grein
fyrir fjarveru sinni þegar lyfja-
próf hafa farið fram. Hefur
hann áður verið aðvaraður
vegna þessa. Mun þetta engin
áhrif hafa á stöðu hans í Frakk-
landshjólrciðunum nú.
Mongólía rokkar
Þó ekki sé það einsdæmi
er afar sjaldgæft að sjá eða
heyra af afrekum Mongóla
í íþróttum en vafalítið eru
þeir framarlega í einhverjum
greinum. Það vekur því
athygli að Mongólía er annar
tveggja hástökkvara á heims-
lista FIFA yfir knattspyrnu-
landslið. Hoppar liðið upp um
heil 20 sæti í það 173. úr 193. en
199 þjóðir eiga landslið á list-
anum. Hitt liðið er Bólivía sem
fer upp um 24 sæti í það 68.
Herbragð
heppnast
Sú áætlun Beckham-hjónanna
að mynda sem mestar gárur
í Bandaríkjunum með komu
sinni virðist vera að takast,
allavega í tilfelli Beckhams
sjálfs. Toppar hann lista sem
Kaninn heldur saman um þá
íþróttamenn sem mest eru í
sviðsljósinu í landinu. Næstir
honum koma körfuboltakapp-
arnir Tony Parker, sem giftist
Evu Longoriu og vann NBA-
meistaratitilinn, og LeBron
James, sem gerði fátt annað en
vera LeBron James.
Allt að gerast
Lokahönd er nú lögð á fram-
kvæmdir vegna Unglingalands-
móts Ungmennafélags Islands
sem fram fer á Hornafirði
um Verslunarmannahelgina.
Ný íþróttamannvirki hafa
verið reist vegna leikanna og
aðstæður flestar orðnar afar
góðar fyrir íþróttafólk. Á
mótinu stendur til að keppa
í nýjum greinum og auka
þannig fjölbreytni mótsins.