blaðið - 25.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 25.07.2007, Blaðsíða 1
1 KOLLA» 137. tölublað 3. árgangur Miðvikudagur 25. júlí 2007 FRJÁLST, ÓHÁr FYPIS! Grátið yfir Harry Potter Dagbjört Kjartansdóttir er búin að lesa Harry Potter og segist hafa verið grát- klökk þegar Harry gekk inn í skóginn og íhugaði hvort hann væri tilbú- inn að deyja. Borgarganga llmur Stefánsdóttir myndlistarkona er með kvöldgöngu um miðbæ Reykjavíkur og hjálpar fólki að skoða og skynja borgina á nýjan og framandi hátt. MENNING í stað íþróttaálfsins Dýri Kristjánsson er hagf ræðingur á daginn en staðgengill Magn- úsar Scheving sem íþróttaálfurinn um helgar og skemmtir börnum í Bretlandi. FÓLK»38 Byggðakvótanum enn ekki úthlutað ■ Mánuður eftir af fiskveiðiárinu ■ Kvótinn brennur ekki inni, segir sjávarútvegsráðherra Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráð- herra segir að óveiddur byggðakvóti þessa fisk- veiðiárs muni ekki brenna inni heldur koma til viðbótar byggðakvóta næsta árs. Þegar rétt rúmur mánuður er eftir af fiskveiðiárinu er ekki enn búið að úthluta kvóta til útgerðar í þeim sveit- arfélögum sem eiga rétt á byggðakvóta. „Við gerum okkur grein fyrir þeim vanda sem getur komið upp í einstökum tilvikum og við munum bregðast við því þannig að byggðakvóti þeirra sem ekki ná að veiða hann mun ekki falla niður heldur gefst mönnum færi á því að geyma byggðakvótann fram yfir næstu kvótaáramót BYGGÐAKVÓTI ► Fiskveiðiárið stendurfrá 1. september til 30. ágúst. ► Alls er byggðakvótinn fyrir þetta fisk- veiðiár 4.385 tonn. Byggðakvótanum er úthlutað til sveitar- ^ félaga en Fiskistofa sér um að úthluta kvóta til útgerða. alveg eins og menn hafa möguleika varðandi annan kvóta,“ segir Einar Kristinn. Fulltrúar sveitarstjórna víðs vegar um landið hafa lýst yfir miklum áhyggjum sínum yfir því að byggðakvót- inn myndi falla niður óveiddur þetta fiskveiðiár vegna óhóflegrar tafar við úthlutun. Mun ekki endurtaka sig „Ástæða tafarinnar er að í vor var samþykkt ný löggjöf sem kallaði á talsverðar breytingar á reglu- gerðum," segir Einar og bætir við: Nýju lögin gera að verkum að úthlutunin tekur lengri tíma af því að opnað hefur verið á kærumeðferðir auk þess sem öllum er tryggður aðgangur að þeim upplýs- ingum sem liggja fyrir um úthlutun kvótans." Einar Kristinn segir að þessi töf muni ekki endurtaka sig. „Ég á von á því að þetta verði mun fyrr á ferðinni á næsta fiskveiðiári og við munum leggja kapp á að klára þetta sem allra fyrst.“ Efast um keppni lyfjakeðja Hvergi eru færri íbúar á hverja lyfjaverslun en á höfuðborgarsvæð- inu, þéttbýlasta svæði landsins. Formaður Lyfjagreiðslunefndar segir lyfjasölukeðjur skipta með sér landinu og vill breyta ^ lyfsölukerfinu. Eyjagöng kosta tugi milljarða Jarðgöng til Eyja kosta 50 til 80 milljarða samkvæmt úttekt VST. Árni Johnsen þingmaður segir tölurnar getgátur. Hann vill að staðið verði við stóru orðin og að lokið verði við nauðsyn- legar rannsóknir. Allt í rusli á Vatnsendahæð „Sjáum alltaf fullt af rusli þegar við förum í göngutúra Sorp hefur safnast upp á Vatnsendahæð þar sem fólk sem kemur með rusl á endurvinnslustöð SORPU bs. í Jafna- seli, fleygir því á víðavangi ef stöðin er lokuð. „Við sjáum alltaf fullt af rusli þegar við förum í göngutúra fyrir ofan húsið okkar,“ segir íbúi í Seljahverfi. Framkvæmdastjóri Sorpu bs. segir þekkt vandamál að fólk skilji rusl eftir fyrir utan lokaðar endurvinnslustöðvar. NOTA VATNSENDAHÆÐ»4 Nautahakk 998 kr. kílóið Opið alia daga frá kl. 10.-20 SPT R Bæjarlind 1 - Simi S44 4510 í tengslum við engla Marta Noregsprinsessa hefur stofnað skóla þar sem fólki er m.a. kennt hvernig eigi að kom- ast í tengsl við engla. Á heima- síðu skólans segist Marta hafa verið skyggn frá unga aldri. „Ég lærði kerfisbundið að lesa hugsanir annarra og í gegnum hestamennsku lærði ég að eiga samskipti við fleiri dýr. Ég komst svo í tengsl við englana þegar ég stundaði hestamennskuna. Síðustu ár hef ég uppgötvað hvert gildi þessa hæfileika er og vil nú deila honum með öðrum.“ Norska hirðin vill ekki tjá sig um skóla prinsessunnar. aí NEYTEIMDAVAKTIN Verð á BKI kaffi 500 g Verslun Krónur Krónan 288 Kaskó 289 Hagkaup 375 Samkaup-Úrval 394 11-11 479 10-11 515 Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % jfe USD 59,51 -0,03 ▼ Ss GBP 122,68 0,13 ▲ SS 0KK 11,06 -0,01 ▼ • JPY 0,49 0,51 ▲ ■ EUR 82,30 0,00 ♦ GENGISVÍSITALA 111,16 0,00 4 ÚRVALSVÍSITALA 8.903,00 -0,69 ▼ COUPE Nýskr: 2007, 3246cc, 6 cyl, 342 hestöfl, ekinn 8000 þús. Verð: 8.300.000 biloland.is 575 1230 Á BMW M5 mmgBgmmm \flg|ArL| i Nýskr: 12/2005, 5000cc, 10 cyl, 507 hestöfl, r ekinn 14.000 þús. ÉlljlS Verð: 10.900.000 e HP

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.