blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 2
2 FRETTIR FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 blaðið Mikill fjöldi við minningarathöfn Margmenni var samankomið 14:00. Einar Oddur var fyrst kjörinn við kveðju- og minningarathöfn á þing árið 1995 og var þingmaður um Einar Odd Kristjánsson, alþing- Vestfjarða og síðar NV-kjördæmis ismann, í Hallgrímskirkju í gær. allttildauðadags.Hannvarsæmdur Einar Oddur varð bráðkvaddur, heiðursmerki Fálkaorðunnar árið 64 ára gamall, 14. júlí síðastliðinn 1992 fyrir störf að félagsmálum og og verður útför hans frá Flateyr- var einn aðalhöfundur hinnar svo- arkirkju laugardaginn 28. júlí kl. nefndu þjóðarsáttar. mbl.is Búið að kæra Alcan hefur kært alla þrettán mót- mælendurna sem voru handteknir vegna mótmæla samtakanna Saving Iceland við álverið í fyrradag. Alcan lagði fram formlega skaðabóta- og refsikröfu á hendur fólkinu í gær. Mótmælendur hlekkjuðu sig með keðjum við aðalhlið álversins og lokuðu umferð inn og út af svæðinu. Þurfti að saga þá af hliðinu. Einnig fóru nokkrir inn á lokað athafna- svæði Alcan. Sigurður Þór Ásgeirs- son, fjármálastjóri Alcan á Islandi, segir einhverjar tafir hafa orðið á 300 milljarða velta í kauphöll Velta með hlutabréf nam rúmum 302 milljörðum króna í Kauphöll OMX á Islandi í gær. Þar af voru viðskipti með bréf Actavis fyrir tæplega 290,9 milljarða króna en Novator gekk frá kaupum á félag- inu í gær. STUTT • Innköllun Kjarnafæði hefur innkallað vöru sína Gamal- dags sveitakæfa í 250 gramma dósum vegna framleiðslugalla. Pökkunardagsetning vörunnar er 06.07.07 og var varan meðal annars í sölu í Bónusversluninni í Grafarvogi í Reykjavík þar sem hún hefur nú verið tekin úr sölu. • Slys Barn á reiðhjóli hlaut minniháttar meiðsl þegar það hjólaði á bíl á ísafirði skömmu eftir hádegi í gær. Stúlkan hjólaði á talsverðri ferð inn í hlið bílsins, en hún var með reiðhjólahjálm og er ekki alvar- lega slösuð. mótmælendur starfsemi fyrirtækisins vegna mót- mælanna en framleiðslan hafi ekki stöðvast. hbv Galtalækjar- skógur seldur Óvíst er hvort almenningur muni hafa aðgang að útivistar- svæðinu í Galtalækjarskógi eftir að svæðið verður afhent nýjum eigendum í september. Svæðið hefur verið í eigu bindindishreyf- ingarinnar Stúkunnar en það hefur nú neyðst til að selja svæðið vegna uppsafnaðra skulda vegna tapreksturs á Bindindismótinu í Galtalæk á undanförnum árum. Hugmyndir munu vera uppi um að reisa sumarhúsabyggð á svæðinu en það hefur ekki fengist Staðfest. mbl.is Bílvelta á Álftanesvegi Engin slys urðu á fólki þegar bíll fór út af Álftanesvegi og valt um klukkan tvö í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er bíllinn ónýtur og þurfti kranabifreið til að fjarlægja hana af vettvangi. m -V' ‘*.í it - • Ólafur Adolfsson, lyfsali ■ Apóteki Vesturlands Telur Lyf og heilsu stunda óeðlilega viðskiptahætti og hefur kvartað til samkeppnisyfirvalda. Segir sama verð um allt land ■ Forsvarsmenn lyfsölukeðjanna gefa lítið fyrir gagnrýni Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Guðni Guðnason, framkvæmda- stjóri Lyfja og heilsu, segir spurður um verðsamanburð Ólafs Adolfs- sonar í Apóteki Vesturlands að sama verð sé í öllum apótekum Lyfja og heilsu um allt land. „Við erum með alveg nákvæmlega sömu verðlagningu á Akranesi og annars staðar. Sum apótekin gefa kannski viðskiptavinum sem eru að versla mikið eða eru komnir í föst viðskipti afslætti," segir Guðni og bendir á að stundum séu sértilboð í einstaka apótekum. Vísa orðum Páls á bug Páll Pétursson, formaður Lyfja- greiðslunefndar, gagnrýndi lyf- sölukeðjurnar tvær, Lyfju og Lyf og heilsu, harðlega í Blaðinu í gær. Hann sagði meðal annars að það væri tóm steypa hjá forsvars- mönnum keðjanna að úskýra háa álagningu með því að landið væri dreifbýlt þar sem fæstir íbúar væru um hverja lyfjabúð á höfuð- borgarsvæðinu. Þá gaf hann það í skyn að keðjurnar tvær skiptu með sér markaðnum. Forsvars- menn Lyfju og Lyfja og heilsu vísa þessu á bug. „Þetta er ekki rétt. Hann tekur ekki útibúin og apótekin saman,“ segir Guðni. Hann tekur sem dæmi að á Suðurlandi reki Lyf og heilsa tvö apótek en þrjú útibú að auki ^^Lyf&hejlsa VLyf&heilsa J Akranesi AfO.KO.: 11 KASSI I NGtmSNM : j FL VtBSKITI m.: 24.7 260/ 181 11:10 HMH m SMÍHS tfQLNB.: 126 USSl 2 tfnEiDSUMea:; a vdMfiTi m .: 24.7.2007 Tttl 17:31 m voo vms VI rvilito tBflur SCð 1 334 3« VI lctitln tsvlur 10 li t «* IH VI Itufw títlur 402 Ið 1 (99 699 • Milittvr -2% VI Larftm tðtlir lfi « 1 614 614 VI frittfa töflr 500 - MiUttur 1 334 334 -115 mns 1.647 VI ltutan tttlir «t n i m frilngar 2.000 - tftUttar -m TIL WM: 353 S4KULS U4I Panlrgar 2.000 VI • 24.502 VSí. OF kr.l.M/ - kr.324 TIl IAU: 852 VPI ICOMTKI APTIID * f VI ‘ 24.501 WL lf tr.l.lll * kr.226 Svart á hvítu Greiöslukvittanir sem Ólafur Adolfsson aflaði sér í fyrradag. veukomin t LYFJAÚTIBÚ ► Enginn lyfjafræðingur starf- ar í lyfjaútibúi og því ber lyfjafræðingur í móðurapó- tekinu ábyrgð á því. ► Ekki má opna lyfjaútibú í byggðarlagi þar sem apótek er fyrir. þannig að það gefi ekki rétta mynd að taka einungis apótekin. Sigurbjörn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Lyfju, tekur í sama streng og Guðni. „Á Austurlandi erum við með tvö apótek en sam- tals sjö útsölustaði þegar útibúin eru tekin með.“ Þeir segja báðir umræður um álagningu vera á villigötum. „Er 7,9 prósenta munur á álagningu á milli Islands og Danmerkur óeðlilegur munur miðað við allt sem við búum við hér á íslandi?" spyr Guðni. Hvorugur þeirra gefur mikið fyrir ummæli Páls um að þeir skipti markaðnum með sér. „Það er ekki þannig að við séum að skipta með okkur markaði. Við rekum apótek í samkeppni við Lyfju, meðal annars á Suðurlandi og á Norðurlandi,“ segir Guðni. Hann segir að þeir sem eru með apótek á miðlægum stað eins og Selfossi hafi tækifæri til að opna útibú í smærri byggðarlögum á Suð- urlandi. „Það þarf ákveðinn fjölda á bakvið apótekið til að það beri sig.“ Báðir segja rekstrarlega ógerlegt að opna apótek á litlum stöðum ef annað er til staðar. ÞEKKIRÞÚTIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net VEÐRIÐ í DAG Síðdegisskúrir Austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum vestantil og síðdegisskúrir suð- vestanlands, en skýjað fyrir austan og dálítil súld við ströndina. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast vestantil, en fer heldur kólnandi norðvestanlands. ÁMORGUN Hlýjast sunnanlands Norðlæg átt, víða 3-8 m/s og rigning, en úrkomulítið suðvestan- og vestanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. Enginn smá- hvalur veiddur Súlan EA 300 hefur að undanförnu róið daglega frá Sand- gerðishöfn með fjölda erlendra vísindamanna sem stunda rann- sóknir á hvölum en enn hefur ekki tekist að fanga dýr. Lýkur rannsóknarleiðangrinum um næstu helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Víkur frétta. Vísindamennirnir stefna að því að veiða hval í nót og setja hann í rannsóknartæki. Verður hvalnum síðan sleppt. hbv Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiöréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. VÍÐA UM HEIM Algarve 24 Amsterdam 21 Ankara 39 Barcelona 28 Berlfn 21 Chicago 30 Dublin 19 Frankfurt 24 Glasgow 19 Halifax 34 Hamborg 21 Helsinki 20 Kaupmannahöfn 21 London 18 Madrld 34 Mílanó 31 Montreal 21 Munchen 25 New Vork 23 Nuuk 11 Orlando 24 Osló 23 Palma 25 Paris 21 Prag 29 Stokkhólmur 17 Þórshöfn 11

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.