blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 7
blaóiö FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 FRÉTTIR Hundruð manna látin í hitabylgju ■ Rafmagnsleysi og skógareldar hrjá íbúa suðausturhluta álfunnar ■ Niðurgrafnar sprengjur frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar springa í eldunum Eftir Atla ísleifsson atlli@bladid.net Hundruð manns hafa látist af völdum hitabylgjunnar í suðaustur- hluta Evrópu síðustu daga. Methiti hefur mælst í nokkrum löndum á Balkanskaga, þar sem hiti yfir fjöru- tíu gráður hefur verið daglegt brauð. Rafmagnsleysi hefur hrjáð íbúa í Rúmeníu, Búlgaríu, Albaniu, Serbíu og Grikklandi. Hætta er á enn frekara rafmagnsleysi þar sem eftirspurnin hefur aukist og ár sem virkjaðar eru til raforkuframleiðslu eru vatnslitlar vegna gríðarlegrar uppgufunar. Skóg- areldar hafa einnig breitt úr sér og ógna nú fjölda bæja. HITABYLGJA W. Grískir veðurfræðingar ^ segja að toppi hitabylgj- unnar hafi verið náð í gær, en hitinn náði 45 gráðum í höfuðborginni Aþenu. ► Flestir hinna látnu hafa verið yfir sjötugt og látist af völdum ofþornunar, hjarta- áfalls eða andnauðar. Fimm hundruð létust af r völdum hitabylgjunnar í Ung verjalandi í síðustu viku. Yfirvöld í Ungverjalandi hafa til- kynnt að um fimm hundruð manns hafi látist í landinu af völdum hit- ans í síðustu viku. Þrjátiu hafa látist í Rúmeníu og nokkrir til viðbótar í Makedóníu og Grikklandi. Lang- flestir hinna látnu hafa verið yfir sjö- tugt og látist af völdum ofþornunar, hjartaáfalls eða andnauðar. Rúm- enskyfirvöld hafa varað landsmenn við að vera úti í sólinni um miðjan dag. Þar í landi hefur liðið yfir um þúsund manns á götum úti síðustu daga og tugþúsundir þurft að leita sér læknisaðstoðar vegna hitans. Skógareldar Miklir skógareldar hafa einnig blossað upp í Bosníu, Króatíu, Serbíu, Svartfjallalandi, Makedóníu, Búlgaríu, Grikklandi og Italíu. Þús- undir manna hafa neyðst til að yfir- gefa heimili sín og ferðamenn hótel og tjaldstæði sín. I Serbíu hefur þrjá- tíu prósent landbúnaðaruppskeru eyðilagst í skógareldum og hita. I Grikklandi berjast þúsundir slökkvi- liðsmanna við eldana í norður- og vesturhluta landsins, auk þess að aðrir skógar eru undir stöðugu eftir- liti vegna eldhættu. Yfirvöld í Makedóníu hafa lýst yfir neyðarástandi og greint frá því að dæmi séu um að niðurgrafnar sprengjur frá tímum fyrri heims- styrjaldarinnar hafi sprungið af völdum hitans. 1 Belgrad, höfuðborg Serbíu, er öllum byggingarfram- kvæmdum hætt klukkan ellefu að morgni að skipun stjórnvalda, til að forða verkamönnum frá hitanum. Flóð í Bretlandi Samtímis og íbúar suðaustur- hluta Evrópu kljást við gríðarháan hita, berjast Bretar við afleiðingar mikilla rigninga og flóða. Fleiri hundruð heimila í Oxford voru rýmd þegar áin Thames flæddi yfir bakka sína í gær. Flóð síðustu daga eru þau verstu í Bretlandi í sextíu ár og eiga hundruð þúsunda manna á hættu að vera án neysluvatns í Gloucesterskíri næstu tvær vik- urnar. Bresk stjórnvöld hafa lofað að veita andvirði tæplega sex millj- arða króna til þeirra sem hafa orðið verst úti í hamförunum. ÞEKKIRÞÚTIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á biadid@bladid.net Netfyrirtækið MySpace Kynferðisbrota- mönnum úthýst Netfyrirtækið MySpace hefur lokað heimasvæðum um 29 þúsund dæmdra kynferðis- brotamanna í Bandaríkjunum. Fyrirtækið segist í yfirlýsingu vera stolt af því að hafa greint og lokað síðum mannanna. Um áttatíu milljónir manna í heiminum hafa komið sér upp MySpace-svæði, þar af fjöldi íslendinga. Á slíkum síðum er hægt að birta bloggfærslur, myndir og myndbönd, auk þess að komast í samband og tengj- ast öðrum notendum. aí STUTT • Friðarviðræður Utanríkisráð- herrar Egyptalands og Jórdaníu kynntu hugmyndir Arababanda- lagsins um hvernig hægt sé að koma skriði á friðarviðræður fyrir botni Miðjarðarhafs fyrir Ehud Olmert, forsætisráðherra ísraels, í Jerúsalem í gær. • Alpafjöll Sex fjallgöngumenn fundust látnir í Alpafjöllum í gær. Fjórir þeirra voru stúd- entar frá Grenoble sem fundust í hlíðum Mont Blanc og segir lögregla að útbúnaður þeirra hafi verið mjög slæmur með tilliti til aðstæðna og að þeir hafi frosið í hel. Suðurkóreskur gísl drepinn Talibanar drápu í gær einn af þeim 23 Suður-Kóreumönnum sem þeir rændu suður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, í síðustu viku. í til- kynningu sögðust talibanarnir ætla að drepa restina af gíslunum ef kröfum þeirra yrði ekki mætt fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi að íslenskum tíma, en þeir höfðu áður farið fram á að 23 talibönum yrði sleppt úr afgönskum fangelsum. Nafn hins látna var sent á fréttastofur þar sem kom fram að hann hafi verið svo veikburða að hann gat vart gengið og því hafi mannræningjarnir ákveðið að skjóta hann. Gíslunum, átján konum og fimm körlum, var rænt úr bílum sínum í síðustu viku en þau voru öll starfsmenn kristinnar hjálparstofnunar sem starfar í landinu. Síðdegis í gær bárust fréttir af því að átta gísl- anna hefði verið sleppt og þeir færðir á bandaríska herstöð í borginni Ghazni, en það fékkst ekki staðfest. aí Langt að labba heim Lögregla í Frakklandi keyrði framhjá 17 ára Ungverja sem gekk meðfram hraðbraut í frönsku Ölpunum. Hafði hann verið skilinn eftir á hraðbrautinni af foreldrum sínum. Stráknum hefur verið komið í fóstur meðan foreldra hans er leitað. Drengurinn neitar að útskýra hvers vegna þau skildu hann eftir, en þegar lögreglan fann hann var , hann á leið aftur fótgangandi til 1 Tour de France un*™i>*i*"ds- Sprengja sprakk Lítil sprengja sprakk við braut frönsku hjólreiðakeppninnar Tour de France, nærri bænum Belaga í norðausturhluta Spánar, í gær. Engan sakaði í sprenging- unni sem varð í sprungu í kletti við veginn, eftir að hjólreiða- kapparnir höfðu hjólað fram hjá honum. Skömmu áður en sprengjan sprakk hafði maður sem sagðist vera meðlimur ETA, aðskilnaðar- hreyfingar Baska, sagt hreyfing- una hafa komið fjölda sprengja fyrir á brautinni. ai Öngþveiti í flugi í Brasilíu Algjört öngþveiti myndaðist í gær á helsta flugvelli Brasilíu þar sem stærsta flugfélag landsins, TAM, aflýsti tugum fluga til og frá Congbonas flugvellinum í Sao Paulo af öryggisástæðum annan daginn í röð. I síðustu viku fórst flugvél TAM á Conghonas flugvellinum og létust 199 í slysinu. mbi.is HARÐVIÐARVAL hjá Harðviðarvali ehf • Krókhálsi 4 • Sími 567 1010 Er listamaður í fjölskyldunni? Engar áhyggjur Einn besti eiginleiki Quick • Step (laminat/plast) gólfefnisins er aó þad heldur náttúrulegu og fallegu yfirbragói sinu í fjölda ára. Yfirborð þess er svo sterkt að við veitum 25 ára ábyrgd á endingu gólfefnisins við eðlileg heimilisnot. Quick• Step er þar ad auki búið Uniclic smellukerfinu, sem hefur lífstíðarábyrgð. Farið á heimasíðu okkar, parket.is eða hringið í síma 5671010 til að fa upplysinga- bækling. QUICK STEP floors with onduring bcouty QU'.CK STEP

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.