blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 29
blaðió
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007
29
Kvenkyns
forseti í USA
Eins og flestir vita sem fylgjast
með spennuþáttaröðinni 24 á
Stöð 2 þá skipar Bandaríkjafor-
seti stórt hlutverk í atburðarás
þáttanna. í næstu þáttaröð mun
forseti Bandaríkjanna vera kven-
kyns en leikkonan Cherry jones
fer með hlutverkið. Þættirnir
verða sýndir á næsta ári en á
sama tíma mun Hillary Clinton,
öldungadeildarþingmaður demó-
krata, vera í harðri baráttu um
tilnefningu sem fulltrúi flokks
síns fyrir næstu forsetakosningar.
Framleiðendur 24 hafa áður
vakið athygli þegar kemur að vali
á forseta fyrir þættina. í einni
þáttaröðinni fór Dennis Haysbert
með hlutverk fyrsta þeldökka
forseta Bandaríkjanna.
J-Loí
tónleikaferð
Söng- og leikkonan Jennifer
Lopez og eiginmaður hennar,
söngvarinn Marc Anthony, ætla
saman í tónleikaferð. Tónleika-
ferðalagið hefst í lok september
í New York. Lopez og Anthony
hafa verið saman í 3 ár og ætla
þau að syngja saman og sitt í
hvoru lagi. Bráðum verður frum-
sýnd kvikmyndin E1 Cantente,
sem fjallar um ævi söngvarans
Hectors Lavoe frá Púertó Rikó,
en þar leika hjónin saman. Lopez
hefur áður leikið í mynd með
manni sem hún er ástfangin af,
því hún lék í myndinni Gigli með
Ben Affleck en þau voru par á
þeim tíma. Lopes verður að telj-
ast hugrökk að leggja í slíkt aftur
því sú mynd fékk hræðilega dóma
og gekk nánast frá ferli hennar
sem leikkonu.
Sandler tekur
við af Potter
Nýjasta gamanmynd Adams
Sandler, I Now Pronounce You
Chuck and Larry, fór beint í efsta
sæti norðurameríska aðsóknar-
listans um síðustu helgi. Myndin
fjallar um tvo slökkviliðsmenn
sem þykjast vera par og hefur það
kostuíegar afleiðingar. Myndin
velti nýjustu Harry Potter-mynd-
inni úr fyrsta sæti.
10 bestu sjónvarpsleikaramir
Hæfileikar frekar en fegurð
Larry Carroll kvikmyndagagn-
rýnandi er komin með nóg af því að
fallegustu og vinsælustu leikararnir
vinni alltaf til verðlauna. Hann
segir flesta af bestu sjónvarpsleik-
urunum vera miðaldra fólk, ósköp
venjulegt í útliti, sem fái minni tíma
á skjánum vegna persónu- og útlits-
dýrkunar áhorfenda. Hann setti
saman lista yfir 10 bestu sjónvarps-
leikarana í dag.
t fyrsta sæti er leikkonan CCH
Pounder, hún leikur í spennuþátt-
unum The Shield og segir hann
skömm að því að þessi kona skuli
ekki hafa hlotið Emmy-verðlaun. I
öðru sæti er Michael Emmerson
í Lost, hann er foringi The Others
og eftir að hann
drap John Locke
þá sé hann vinsæl-
asti „elskum að hata
hann“-leikarinn í
sjónvarpi um þessar
mundir.
Á eftir þeim koma James Morri-
son úr 24-þáttunum, Nicholas Lea,
leikari í þáttum sem nefnast Kyle
XY. t fimmta sæti er leikarinn
Creed Bratton en
hann leikur í hinum
stórkostlegu Off-
ice-þáttum, sjötta
sætið fær Julianne
Nicholson í Law
And Order Criminal
Intent. Chandra Wilson eða Dr. Ba-
iley úr Grey’s Anatomy er í sjöunda
sæti. Carroll segir Wilson eða Dr.
Bailey gera frábæra hluti og vera
eðlilegasti karkaterinn í þáttunum,
hún sé mannleg, gáfuð og laus við
alla væmni og ástardramað sem
fylgir hinum karakterunum. Ro-
bert Knepper úr
Prison Break, betur
þekktur sem T-Bag,
er annar karakter
sem áhorfendur
elska að hata. Leik-
arinn Hugh Laurie
eða Dr. House er í níunda sæti og á
eftir honum kemur Jack Coleman úr
Heroes og leikur hann Mr. Bennett.
.
Gott til
endurvinnslu
Gerum gott úr þessu
Pappír er frábært efni. Eftir að hafa fært okkur fréttir og annað
lesefni getur pappírinn öðlast nýtt hlutverk. Það eina sem við
þurfum að gera er að flokka hann og skila í næsta pappírsgám
eða endurvinnslutunnu.
■ og Wónustu / Sj* nárw i»n eryjurvinnslu prertméöta á www.aiJs - Hönnun Hvft« njtii/ SlA