blaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 1
139. tölublað 3. árgangur Föstudagur 27. júlí 2007 FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS Veiða í Póllandi Stórtónleikar á Miklatúni Glæsilegur garður Ólafur Páll Gunnarsson á Rás 2 boðar stórtón- A leika á Miklatúni á . menningarnótt þar sem margir 'Xm* þekktir lista- menn stíga á svið. Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður fer með hópa veiðimanna til Póllands en slíkar ferðir eru mjög vinsælar um þessar mundir. Rádýr og villisvín eru helstfelld. Ragnhildur Guðjónsdottir og Ágúst Einarsson búa við Rituhóla og eiga garð sem Garð- yrkjufélagið valdi einn affegurstu görðum borgarinnar. FÓLK»38 SUMARHUSI20 VEIÐI»28 Hótuðu gjaldþroti ■ Fyrrverandi lyfsali í Borgarnesi segir stóru lyfjakeðjurnar hafa stillt sér upp við vegg ■ „Þeir ætluðu sér þetta með góðu eða illu/' segir fyrrum apótekari í Vestmannaeyjum Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net „Mér var bara stillt upp við vegg. Annaðhvort seldi ég eða þeir myndu opna apótek í Borgarnesi og setja mig á hausinn,“ segir Þór Oddsson, fyrr- verandi lyfsali í Borgarnesi, en hann segir stóru lyfsölukeðjurnar, Lyfju og Lyf og heilsu, hafa neytt sig til að selja. Allt gert til að gera reksturinn erfiðan „Ég tók þá ákvörðun að selja til Lyfju og skuld- batt mig jafnframt að opna ekki apótek innan tveggja ára,“ segir Þór en bætir við: „Keðjurnar sögðu einnig við mig, eftir að ég seldi í Borgar- nesi, að ef ég myndi opna apótek í Reykjavík eða annars staðar þá yrði allt gert til þess að gera mér reksturinn erfiðan.“ Þór segir nú fjögur ár liðin frá því að hann seldi APÓTEK ÞÓRS í BORGARNESI ► Þór Oddsson hafði getið sér gott orð á Vesturlandi fyrir gott verð. ► Apótekið hlaut viðurkenningu bæjar- stjórnar Borgarbyggðar fyrir framúr- skarandi þjónustu og lágt verð. ► Margir Akurnesingar fóru í apótekið í Borgarnesi þrátt fyrir að apótek væri uppi á Skaga. apótekið í Borgarnesi en hann hafi ekki enn lagt í að að opna nýtt í Reykjavík eða annars staðar. „Ég gæti stofnað nýtt apótek en legg ekki í það því ég er ekki tilbúinn til þess,“ segir hann. Þór hefur frá þeim tíma sem hann seldi apótekið í Borgar- nesi aflað sér MBA-gráðu til viðbótar við lyfja- fræðimenntun sína. Hann starfar nú sem lyfja- fræðingur á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Báðar keðjurnar buðu í apótekið Hanna María Siggeirsdóttir, fyrrverandi lyfsali í Vestmannaeyjum, hefur svipaða sögu að segja af samskiptum sínum við keðjurnar. „Bæði Lyfja og Lyf og heilsa gerðu tilboð í apótekið mitt. En ég vildi ekkert fara því þetta var mitt lifibrauð," segir hún og bætir við: „Ég var ekki tilbúin að selja og þeir voru ekki tilbúnir að bíða lengur. Þeir ætluðu sér þetta með góðu eða illu.“ Hanna María tók þá ákvörðun að selja ekki heldur taka slaginn við Lyf og heilsu í Vestmannaeyjum. Bæði segjast Þór og Hanna María vita til þess að öðrum einyrkjum hafi verið þröngvað á sama hátt til þess að selja eða hætta. NEYDDIR TIL AÐ SELJA 4 Dæmdur fyrir manndrápstilraun Ólafur Þór Guðmundsson, 51 árs, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í gær fyrir manndrápstil- raun. Hann skaut að eiginkonu sinni úr haglabyssu eftir hastarlegt rifrildi. ÆWÆ* Upplýsingatækni ógn við einkalíf „Upplýsingatækni auð veldar fyrir- tækjum að fylgjast með einstak- lingum. Þau geta notfært sér gagna- söfn og verkfæri upplýsingatækni til að vanvirða friðhelgi einstakl- inga,“ segir Haukur Arnþórs-%%*" son stjórnmálafræðingur. ##0 Vont aðgengi við Grensásdeild „Erfitt að fara um í hjólastól, með göngugrind eða hækjur" Sjúklingar á endurhæfingardeildinni við Grensás komast ekki allir út fyrir dyr í góða veðrinu. „Bæði er erfitt að fara um í hjólastól og eins fyrir fólk með göngugrind eða hækjur," segir Þórdís Ingólfsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar. Hún segir lagfæringar í kringum bygginguna standa til en þær strandi á fjárskorti, brýnni verkefni hafi gengið fyrir. „Velvilji hefur verið hjá stjórnendum Landspítalans til úrbóta en ekki hefur verið hægt að ráðast í þær hingað til.“ KEF / STO - KEF / OSL www.flysas.is Hefurðu hugleitt hvar þú færð ódýrasta eldsneytið? ÞAÐ MUNAR UM MINNA Æði rennur á pólfara Kanadískir vísindamenn segja að fólk sem vinnur löngum stundum við erfiðar aðstæður nærri norður- og suðurpólnum eigi á hættu að fá svokallað heimskautaæði. Um helmingur starfsmanna i rannsóknarstöðvum við heimskautin hefur þjáðst af þunglyndi, svefnleysi, pirringi og reiði í garð annarra og átt í erfiðleikum með samskipti. Vísindamennirnir vonast til að rannsóknin geti komið að gagni við undirbúning lengri geimferða manna í framtíð- inni, svo sem til reikistjörn- unnar Mars. aí JL. NEYTENDAVAKTIN £ 1 Pepsi Max 2 lítrar 1 Verslun Krónur Kaskó 149 Nettó 152 Kjarval 214 Samkaup-Strax 214 11-11 214 10-11 245 I Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % ■H USD 60,70 0,89 ▲ GBP 124,26 0,81 ▲ 55 DKK 11,19 1,08 A • JPY 0,51 1,95 A ■1 EUR 83,32 1,06 A GENGISVlSITALA 112,77 0,99 A I ÚRVALSVÍSITALA 8.797,00 -0,82 ▼ VEÐRIÐÍDAG SAS Scandinavian Airlines A STAR ALLIANCE MEMBER

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.