blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 1
ÓLK»38 141. tölublað 3. árgangur Þriðjudagur 31. jiílí.2007 FRJALST, OHAÐ & 0 Markakongur Fanndís Friöriksdottir er œ.. s bráðefnilegknattspyrnu- kona úr Breiðabliki. Hún varðmarka- |||at\ kóngur Evrópu- BBWBS*. móts leikmanna jÉjBit:: yngri en 19 ára. Rigning um helgina Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir að í veðurkortunum sé lægð og því megi búast við vætusamri og jafnvel nokkuð vindasamri verslunarmannahelgi. i HELGIN»19 FERÐ1R»a Afríka heiiiar Hanna Borg Jonsdottir laganemi er á leið til Höfða- borgar í Suður-Afríku þar sem hún ætlar að tirá starfa sem sjálf- jj| boðaliði við að- hlynningu barna. A Þú færð IG-veiðivörur á næstu þjónustustöð [jj íslandsmet í sjósundi á Viðeyjarsundi , MYND/ÓMAR „Atta manns nægði ekki að synda aðra leiðina og syntu yfir aftur'' Tuttugu og níu félagar í Sjósundfélagi Islands þreyttu í gær Viðeyjarsund í sameiningu og slógu þannig íslandsmet í sjósundi, að sögn Aðalsteins Leifs- sonar, eins sundkappanna. Synt var frá Skarfakletti í Sundahöfn að Viðeyjarbryggju, um 900 metra. Fleiri hafa ekki verið samferða á jafnlöngu sundi í sjó hér við land, að talið er. Sundið tók tæpan hálftíma og fylgdu þrír bátar með björgunarsveitarmönnum sundgörpunum. „Átta manns nægði ekki að synda aðra leið og syntu yfir aftur,“ sagði Aðalsteinn. „Þessi viðburður er til marks um þá gríðarlegu vakningu, sem er í þessari íþrótt hér á landi.“ Hrein eign í fast- eignum tvöfaldast ■ Greiðslubyrði íbúðalána léttist ■ Verðmæti fasteigna vex hraðar en skuldir heimilanna Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladld.net Hrein eign einstaklinga í fasteignum sínum hefur meira en tvöfaldast á síðustu fimm árum hér á landi. Fjölskyldum með eignir fjölgaði um 7,4 prósent á sama tíma. Verðmæti íbúðarhús- næðis íslendinga hækkaði úr um 964 milljörðum árið 2002 í um 1.824 milljarða í fyrra, en á sama tíma hækkuðu skuldir vegna íbúðakaupa land- ans einungis úr um 337 milljörðum í 599 millj- arða. Árið 2002 voru skuldir vegna íbúðakaupa því 38 prósent af verðmæti íbúðanna, en í fyrra voru skuldir vegna íbúðakaupa um 34 prósent af verðmæti íbúðanna. Þetta kemur fram í tölum ríkisskattstjóra, en upplýsingar um framtöl landsmanna 2006 voru birtar í gær. „Þetta kemur mér alls ekki á óvart og ég held að frekar sé um vanmat að ræða heldur en hitt, þar sem hjá skattinum eru fast- eignir stundum skráðar undir markaðsverði," segir Ingólfur Bender, forstöðumaður greining- ardeildar Glitnis. „Þessi þróun sýnir að þótt ís- lenskar fjölskyldur hafi aukið skuldir hratt, hefur verð húsnæðis vaxið enn hraðar. Heimilin, hvað varðar hreinar eignir, standa því betur að vígi.“ Ingólfur bendir þó á að þjóðin sem heild standi ekki betur að vígi þrátt fyrir að fasteignir landans séu verð- mætari. „Um leið og við eigum verð- mætari eign verður fórnarkostnaður- inn við að búa í henni hærri. Það sem mestu máli skiptir fyrir einstaklinga er hins vegar að greiðslu- byrðin af húsnæðislánum hefur lést,“ segir Ingólfur. „íbúðalán hafa hafa lengst, þannig að greiðslubyrðin dreifist á fleiri ár. Svo hafa vextir lækkað og kaupmáttur aukist, sem þýðir að greiðslubyrði á íbúðalánum hefur lést.“ SKATTGREIÐENDUR»14 HREINEIGNÍ ÍBÚÐARHÚSNÆÐI 2002 597.028 milljónir 2003 633.166 milljónir 2004 720.509 milljónir 2005 856.156 milljónir 2006 1.225.470 milljónir Varð aftur fyrir eldingu Bandaríkjamaðurinn Don Frick varð fyrir eldingu í Bandaríkjunum 27. júlí síðast- liðinn, sama dag og hann varð fyrir eldingu 27 árum fyrr. Hinn 68 ára Frick var staddur á útihátíð í Pennsylvaníuríki og leitaði sér skjóls ásamt fjórum félögum sínum í skúr eftir að eldingu laust niður skammt frá. Skömmu síðar Iaust annarri eldingu niður í skúrinn þar sem Frick var staddur. Hann kveðst heppinn að vera á lífi, en slapp með smá- vægileg meiðsl, auk þess að föt hans skemmdust. aí NEYTENDAVAKTIN Ift'l AB-mjólk í 1/21 umbúðum n* i Fyrirtæki Krónur Kaskó 125 Fjarðarkaup 129 Þín verslun Seljabraut 137 Nóatún 153 10-11 168 11-11 168 Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % WM USD 61,88 0,28 A GBP 125,42 0,15 ▲ 55 DKK 11,38 0,52 A • JPY 0,52 0,53 A H EUR 84,73 0,52 A GENGISVlSITALA 114,67 0,43 A I ÚRVALSVÍSITALA 8.507,00 -2,19 ▼ | VEÐRIÐÍDAG VEÐUR»2 COUPE Nýskr: 2007, 3246cc, 6 cyl, 342 hestöfl, ekinn 8000 þús. Verð: 8.300.000 Nýskr: 12/2005, 5000cc, 10 cyl, 507 hestöfl, ekinn 14.000 þús. biloland.is 575 1230 J,

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.