blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007
blaöiö
Eldur í mannlausu húsi
Eldur braust út í mannlausu einbýlishúsi í Búðardal í gærdag. Að
sögn lögreglunnar á Borgarnesi fóru slökkviliðsmenn frá Búðardal og
Borgarnesi á staðinn og réðu niðurlögum eldsins. Lögreglan á Borgar-
nesi sér um að rannsaka upptök eldsins sem lágu ekki fyrir stuttu eftir
brunann sem átti sér stað í gær kl. 15:30. mbi.is
Banaslys í Bisk-
upstungum
Bifhjólamaður lét lífið er hann
féll af hjóli sínum í árekstri við
jeppa á Biskupstungnabraut á
laugardag. Hann hét Gunnlaugur
Björnsson, fæddur 1977. Gunn-
laugur bjó í foreldrahúsum í
Hveragerði. Hann var ókvæntur
og barnlaus.
Slysið átti sér stað til móts við
verslunina Minni-Borg í Gríms-
nesi. Bifhjólamaðurinn var í
samfloti við aðra bifhjólamenn
og lenti á hægra afturhorni jepp-
ans sem kom á móti honum og
beygði að versluninni. Lögreglan
rannsakar tildrög slyssins þar
sem þau eru ekki ljós að fullu. bm
Eyrnabit
í biðröð
Tvær ungar konur réðust á
tæplega þrítuga konu í biðröð
við skemmtistaðinn Sólon um
helgina. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Reykjavík komu
upp deilur milli kvennanna sem
enduðu á þann veg að tvær réðust
að einni. Ein árásarkvennanna
beit hluta af eyra fórnarlambsins,
þær spörkuðu í konuna og drógu
hana á hárinu. Vitni sáu árásar-
konurnar hlaupa af vettvangi
Eftir árásina var fórnarlambið
flutt á Landspítalann og fór
þar í aðgerð á eyra. Þá fékk hún
áfallahjálp, enda var henni mjög
brugðið við árásina í miðborg-
inni. bm
Fjárfestingar vegna Gagnaveitu Reykjavíkur
0R veitir engar upplýsingar
Orkuveita Reykjavíkur hefur ítrekað hafnað óskum Blaðsins um upplýs-
ingar varðandi Gagnaveitu Reykjavíkur, sem áður hét Lina.net.
Blaðið óskaði eftir upplýsingum um fjárfestingar Orkuveitu Reykjavíkur
og Reykavíkurborgar í Gagnaveitunni frá upphafi. Þá var einnig óskað
eftir því að upplýsingum um rekstrai tckjur, -gjöld og hagnað eða tap af
rekstri fyrirtækisins frá upphafi, auk nokkurra annarra þátta.
Orkuveitan hafnaði óskum Blaðsins á þeirri forsendu að fyrirtækið
væri í verðmati og það færi gegn hagsmunum eigenda fyrirtækisins að
umbeðnar upplýsingar yrðu gerðar opinberar.
Orkuveita Reykjavíkur er fyrirtæki í eigu skattgreiðenda í Reykjavík
og að mati Blaðsins er um opinberar upplýsingar að ræða sem almenn-
ingur ætti að hafa aðgang að. ejg
Skipulagsbreytingar á Stöð 2
Steingrímur fréttastjóri
Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur
verið ráðinn fréttastjóri Stöðvar
2. Hann tekur við stöðunni af
Sigmundi Erni Rúnarssyni nú um
mánaðamótin. Sigmundur tekur
við nýrri stöðu forstöðumanns
fréttasviðs.
Þá verða tveir varafréttastjórar
undir Sigmundi og Steingrími.
Þórir Guðmundsson snýr nú til
baka frá Vísi og verður varafrétta-
stjóri erlendra frétta en Kristján
Már Unnarsson gegnir áfram stöðu
varafréttastjóra innlendra frétta.
Ástríðuglæpur um hábjartan dag í Reykjavík
Lögregla rannsakar málið enn
Lögregla rannsakar enn aðdrag-
anda voðaverkanna á Sæbraut um
helgina. Málið telst upplýst en þó
eru enn nokkrir þættir sem verið er
að upplýsa, að sögn lögreglu.
Laust fyrir hádegi á sunnudag
skaut Tómas Björnsson, 39 ára
rekstrarfræðingur, Stefán Jónsson,
35 ára lífefnafræðing, í brjóstið
með riffli. Rannsóknin beinist að
sögn lögreglu að atburðarásinni
og að því að kanna hver samskipti
árásarmannsins og hins myrta voru
áður en til árásarinnar kom.
Margt þykir benda til þess að
árásarmaðurinn hafi elt hinn myrta
áður en hann beitti skotvopninu.
Ummerki á vettvangi benda til
þess að Stefán hafi verið að skipta
um hjólbarða á bifreið sinni skammt
frá gatnamótum Sæbrautar og
Kringlumýrarbrautar þegar Tómas
bar að og skaut hann í brjóstið..
Tómas fannst síðar í bifreið sinni
í Almannagjá á Þingvöllum þar sem
hann hafði svipt sig lífi. Hann skildi
eftir bréf þar sem hann játaði glæp
sinn.
Stefán mun nýlega hafa tekið upp
samband við fyrverandi eiginkonu
Tómasar og mun sjúkleg afbrýði-
semi vera ástæða glæpsins.
Ratsjárstofnun rek-
ur kerfið um sinn
■ Framtíðarfyrirkomulag lojftvarnakerfisins enn óljóst ■ Þarf að
bregðast við nýjum veruleika segir utanríkisráðherra
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@bladid.net
„Ratsjárstofnun mun hér eftir sem
hingað til annast rekstur íslenska
loftvarnarkerfisins," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra. I Blaðinu á laugardaginn kom
fram að forsenda þess að áætlun um
reglubundið eftirlit með lofthelgi
íslands sem fastaráð Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) hefur sam-
þykkt geti farið fram er að íslenska
loftvarnarkerfið verði rekið áfram.
Unnið að framtíðarfyrirkomulagi
„Það er vinnuhópur að störfum
í utanríkisráðuneytinu sem er að
fara yfir þessi mál og hvernig þessu
verður fyrirkomið þegar við tökum
reksturinn yfir frá Bandaríkja-
mönnum,“ segir Ingibjörg en gert
er ráð fyrir að það verði þann 15. ág-
úst næstkomandi. „Við þurfum að
standa klár á þeirri yfirtöku,“ segir
Ingibjörg en telur ekki þar með sagt
að framtíðarfyrirkomulag muni
liggjafyrirþá.
„Menn verða að gefa sér tíma til
að skoða það í framhaldinu hvernig
þessu verður best fyrirkomið til
framtíðar litið,“ segir Ingibjörg.
Hún segir að þar til framtíðarfyr-
irkomulag liggi ljóst fyrir muni
Ratsjárstofnun annast rekstur
lofvarnarkerfisins.
Úreltur lagarammi
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra tók á heimasiðu sinni um helg-
ina undir sjónarmið Þorsteins Páls-
VEÐRIÐ I DAG
Austlægar áttir
Suðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld með
köflum, en hægari og þurrt norðaustan- og
austanlands. Vaxandi austanátt með rigningu
í kvöld og nótt, en norðaustan og norðan 8-
15 á morgun og talsverð rigning austantil, en
úrkomulítið vestantil. Hiti 10 til 18 stig.
Ratsjárstöðin á Stokksnesi Ein af
fjórum ratsjárstöövum Ratsjárstofnunar
er á Stokksnesi.
sonar, ritstjóra Fréttablaðsins, þess
efnis að eyða þurfi öllum vafa um
getu og heimild Ratsjárstofnunar til
að sinna hernaðarlegum verkefnum
og rifjaði upp eigin ummæli um
breytta verkaskiptingu ráðuneyta í
kjölfar brottfarar ráðuneytisins.
„Ég tel að það megi til sanns vegar
færa að núverandi lagarammi um
framkvæmd stjórnsýslu á sviði varn-
armála sé um margt úreltur og það
þurfi að endurskoða gildandi lög-
gjöf og setja heildstæð lög um fram-
kvæmd varnarmála," segir Ingibjörg
en hún segir það vera verkefni sem
þurfi góðan tíma til að vinna.
ÁMORGUN
Rigning nyrðra
Norðan 10-15 m/s með rigningu á Norður-
og Austurlandi, en þurru sunnan- og vestan-
lands. Dregur úr úrkomu norðvestantil þegar
líður á daginn. Hiti 11 til 17 sunnanlands, en
8 til 12 stig fyrir norðan.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 30 Halifax 25 New York 23
Amsterdam 18 Hamborg 14 Nuuk 6
Ankara 39 Helsinki 16 Orlando 25
Barcelona 29 Kaupmannahöfn 16 Osló 15
Berlín 16 London 20 Palma 37
Chlcago 30 Madrid 37 Paris 21
Dublln 19 Milanó 34 Prag 22
Frankfurt 16 Montreal 21 Stokkhólmur 20
Glasgow 17 Múnchen 18 Þórshöfn 12
LOFTVARNAKERFIÐ
►
Fjórar ratsjárstöðvar eru
staðsettar á Miðnesheiði,
Bolafjalli, Stokksnesi og
Gunnólfsvíkurfjalli.
►
►
Eftirlits- og stjórnstöðin er
á Keflavíkurflugvelli.
Hugbúnaðarstöð er stað-
sett á Keflavíkurflugvelli.
„Það er alveg ljóst að utanríkis-
ráðuneytið fer með framkvæmd
varnarsamningsins og framkvæmd
varnarmála. En hvort það á að stofn-
anafesta það eitthvað frekar er ég
ekki tilbúin til að tjá mig um á þessu
stigi,“ segir hún aðspurð hvort þörf
sé á nýjum stofnunum og löggjöf
til að halda utan um framkvæmd
varnarmála.
Brugðist við nýjum veruieika
Ingibjörg segir fslendinga standa
andspænis nýjum veruleika eftir
að herinn fór og þurfi að vinna sig
í gegnum hann. „Við þurfum að
skilgreina okkar eigin varnarþarfir.
Við þurfum líka að átta okkur á því
hvort ógnirnar sem að okkur steðja
eru annars eðlis en hernaðarlegar
og þá hvernig við ætlum að bregðast
við þeim,“ segir hún. Ingibjörg segir
að vinna þurfi heildstætt öryggis-
og varnarmat og byrjað sé að undir-
búa þá vinnu. „Eg býst við að í þeirri
vinnu verði þær ógnir sem steðja að
landinu og nauðsynlegar varnir skil-
greindar,” segir hún.
12 líkamsárásir
um helgina
Tólf líkamsárásir voru tilkynntar
til lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu um síðustu helgi. f
nokkrum tilvikum þurftu ein-
staklingar að leita sér aðhlynn-
ingar á slysadeild eins og fram
kemur í tilkynningu lögregluemb-
ættisins. Meðal annars handleggs-
brotnaði tvítugur piltur í átökum
á Laugaveginum, og starfsmaður
veitingahúss var sleginn bylm-
ingshögg í andlitið er hann
hugðist stöðva viðskiptavin sem
reyndist ekki borgunarmaður
fyrir máltíð sinni. Starfsmaður
verslunar fékk svipaða útreið
þegar hann ætlaði að koma í veg
fyrir gripdeild.bm
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaöi á síðu 2.