blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 5

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 5
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 FRETTIR 5 Merkum áfanga náð í Kárahnjúkavirkjun Vatnssöfnun hafin í aðrennslisgöng Byrjað var að safna vatni í neðri hluta aðrennslisganga Kára- hnjúkavirkjunar nú um helgina, alls 15 kílómetra af þeim 40 sem að- rennslisgöngin eru í heildina. Með því hefur nyrsti hluti ganganna verið tekinn í notkun og er það merkur áfangi í virkjunarfram- kvæmdunum. Eins og fram kemur á vef virkjunarinnar vinnast að einhverju leyti tafir í frágangs- vinnu í frárennslisgöngunum með verklagi þessu. „Áfanganum var náð á laugar- dagskvöld með táknrænum hætti þegar lokað var gríðarmikilli stál- hurð fyrir opi á steyptum „tappa“ neðst í aðrennslisgöngunum, rétt við þann stað þar sem vatn mun renna inn í fallgöngin og áfram niður í stöðvarhúsið, ríflega 400 metrum neðar í fjallinu,“ segir enn fremur á vef virkjunarinnar. Nú verður grunnvatni safnað í aðrennslisgöngunum en ætla má að í umræddan kafla ganganna renni 700-800 lítrar á sekúndu. „Vatnsleki inn í göngin, hefur hingað til heldur verið til óþurftar en nú fær grunnvatnið það ábyrgð- arhlutverk að snúa vélum stöðvar- hússins við prófun.“ í framhald- inu verður unnið að frágangi efri hluta aðrennslisganganna. bJorg@bladid.net i „Höfum heyrt ýmsar sögur af íslenskri veöráttu“ „Við erum við öllu búin hér á íslandi, enda búin að heyra talsvert af sögum af veðrinu,“ segja frönsku ferðalangarnir sem gist hafa í tjaldi í Laugardalnum í tvær nætur. „Það hefur rignt talsvert, en við höfum lítið fundið fyrir því. Við teljum okkur vera með nauðsynlegar græjur og viðeigandi útivistarklæðnað þangað til annað kemur í ljós.“ Hópur- inn hyggur á ferðalög um landið en hann mun dvelja hérlendis í þrjár vikur samtals. Ekki bótaskyld Ekki þótti sannað að um ökumaður hefði sýnt af sér gáleysi Mynd/Ingimar Fá ekki greiddar miskabætur Norðfjarðargöng Byrjað að bora Foreldrar karlmanns sem lést í árekstri á Akureyri í febrúar 2001 fá ekki greiddar skaðabætur. Foreldr- arnir höfðuðu skaðabótamál gegn tryggingafélagi og erfingja manns sem á sínum tíma olli slysinu. Þau kröfðust 5 milljóna króna í miska- bætui vegna stórfellds gáleysis. Hér- aðsdómur Norðurlands eystra taldi lagaskilyrði ekki vera fyrir hendi og sýknaði stefndu. 11. febrúar 2001 var bifreið ekið í veg fyrir aðra bifreið á gatnamótum Drottningarbrautar og Þórunnar- strætis með þeim afleiðingum að ökumaður hennar, tæplega 21 árs karlmaður, lést. Sá sem olli slys- inu var dæmdur í 45 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir atvikið. Maður- inn lést árið 2004. Málið sem nú var tekið fyrir var höfðað á grundvelli ákvæðis skaða- bótalaga en samkvæmt því er heim- ilt að láta þann sem veldur dauða manns af ásetningi eða með stór- felldu gáleysi greiða meðal annars foreldrum hins látna miskabætur. Dómurinn taldi að ekki hefði verið sýnt fram á stórfellt gáleysi eða ásetning i þessu tilviki. hbv árið 2009 Áætlað er að framkvæmdir við Norðfjarðargöng hefjist árið 2009 og þeim ljúki árið 2011. Þetta kemur fram í drögum að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, sem búið er að birta. Framkvæmdin spannar alls um 16 kílómetra kafla. Jarðgöngin verða 6,2 til 6,5 kílómetra löng en niðurstöður jarðfræðiathugunar munu ráða endanlegri legu þeirra. Reiknað er með að nokkur fjöldi starfa skapist á framkvæmdar- tíma vegna umfangs verksins. Fjörutíu og eitt slys var skráð á ár- unum 2000 til 2004 á svæðinu frá Hátúni á Eskifirði að Kirkjubóls- vegi á Neskaupsstað. Er gert ráð fyrir því að með jarðgöngunum og nýjum vegi rnilli Eskifjarðar og Norðfjarðar lækki slysatíðnin. Fyrstu fjárveitingar til fyrir- hugaðrar framkvæmdar voru á vegaáætlun fyrir árin 2011 til 2014 en fjárveitingu til verksins hefur verið flýtt og verður ráðist í verkið 2009 til 2010. hbv öryggi vegfarenda til muna Lyfjastofnun svarar Lyfjastofnun hefur sent Aðalsteini Arnarsyni svar við andmælum hans við tilmælum stofnunar- innar að hann láti af starfsemi vefsíðunnar MinLyf.net. Að sögn Regínu Hallgrímsdóttur hjá Lyfjastofnun var svarið póstlagt síðastliðinn föstudag. Hún sagði stofnunina ekki geta tjáð sig um svarið fyrr en það hefði borist Að- alsteini og vildi því ekki svara því hvort afstaða stofnunarinn væri óbreytteðaekki. ejg Netvædd Bolungarvík Bolungarvík hefur nú bæst í hóp netvæddra kaupstaða og fengið sína eigin heimasíðu, www. bolungarvik.is. Heimasíðan er unnin af fyrirtækinu Netheimum ehf. sem staðsett er á ísafirði. Á síðunni má fá upplýsingar um margs konar málefni tengd kaup- staðnum, ýmiss konar fróðleik- smola um svæðið í kring og dag- skrá sumarsins tengda staðnum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.