blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 6
FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ2007 blaöiö Sérþjálfaðir fíkniefna- hundar á ferð um landið Lögregla í stórfelldri baráttu við útbreiðslu og sölu fíkniefna ■ 250 fíkniefnaleitir undanfarnar vikur Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net Lögreglan hefur verið í stórsókn síðsumars gegn sölu og útbreiðslu fíkniefna. „Sérstakt átak hefur verið í gangi síðan 23. júlí og mun það standa fram yfir verslunarmannahelgi," segir Páll E. Winkel, aðstoðarrík- islögreglustjóri. Hann segir átakið tvíþætt; annars vegar aukna fíkni- efnagæslu fram yfir verslunar- mannahelgi og hins vegar samstarfs- verkefni lögreglu og tollgæslu um verslunarmannahelgi sem miðar að notkun sérþjálfaðra hunda við upp- rætingu hvers konar fíkniefna. Fíkniefnateymi á ferð um land „Annar liður átaksins miðar að samvinnu ríkislögreglustjóra og tollgæslu sem mun hefjast rétt fyrir verslunarmannahelgi og standa fram yfir hana. Einstaklingar frá báðum aðilum vinna saman í teymi, ásamt fíkniefnahundum frá toll- gæslu og lögreglu," segir Páll. Sérþjálfuðum fíkniefnahundum á vegum lögreglunnar hefur fjölgað talsvert á undanförnum árum og eru þeir i dag 11 talsins. Hafa þeir allir staðist flókin persónuleikapróf viðurkenndra erlendra aðila sem og skapgerðarmat sérfræðinga hjá FÍKNIEFNAHUNDAR ► ► Voru fjórir á íslandi árið 2000. Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hefur yfir 5 að ráða, hinir dreifast um land. ► Notast er við 2 Labrador- hunda, 3 Springer Spaniel og 6 Scháferhunda. ► Þjálfun hundanna er á veg- um Lögregluskóla ríkisins. hundaskólaí Lundúnum. „Teymi lög- reglu og tollgæslu ásamt hundunum munu ferðast um landið og í samein- ingu halda uppi miklu og öflugu eft- irliti á útihátíðum og öðrum stöðum þar sem fólk mun koma saman um verslunarmannahelgina.“ Mun fíkniefnaeftirlit þessara aðila aldrei hafa verið jafnumfangs- mikið og nú. Hundarnir skipta sköpum Páll segir notkun fíkniefnahund- anna hafi gefist mjög vel. „Við nýtum einfaldlega öll tæki og tól til að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkni- efna og hundarnir eru stór liðurí því,“ segir hann. Þjálfun hundanna tekur sex til níu mánuði og beinist hún aðallega að fíkniefnaleitinni enda Fíkniefnahundurinn Tíri Stóð sig með stakri prýði við sýnidæmi fíkniefnaleitar lögreglu; beygði höfuð sitt fram og staðnæmdist full- komlega er hann hafði fundið eitrið. Blaðið/Kristinn þykir heppilegast að viðhalda sér- hæfingu hundanna. f tilkynningu frá lögreglu segir að þegar leitað sé eftir ákjósanlegum fíkniefnahundi skipti skapgerðareinkenni hunds- ins meira máli en tegund hans. Til þeirra eru gerðar mjög strangar kröfur, mun strangari en víða í ná- grannalöndum okkar. Páll segir hinn liðinn í fíkniefna- átaki lögreglunnar hafa miðað að því að draga almennt úr framboði og sölu fíkniefna. „Það hefur þegar skilað því að yfir 250 fíkniefnaleitir hafa verið gerðar á fólki i bílum og húsum. Einnig hafa 40 fíkniefna- mál komið upp í síðustu viku, allt varðandi sölu fíkniefna." Aðspurður almennt um fíkniefnabrot segir Páll nokkuð ljóst að það sé stór mála- flokkur innan lögregluembættisins sem þarft er að veita nægilega at- hygli. „ Það liggur fyrir að lögreglan, ásamt öðrum löggæslustofnunum, leggur mjög mikla áherslu á stöðvun sölu og útbreiðslu fíkniefna." HVER NENNIR AÐ HANGA I BÆNUM A SUMRIN? "mÍbi Hi V* j ff BvJB'a

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.