blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 7
blaóiö ÞRIÐJUDAGUR 31. JULI 2007 FRETTIR Teitur Þórðarsson hættur með KR og Logi Ólafsson tekinn við Vantaði neista milli Teits og liðsins Hættur Teitur segir að ákvorðumn sé tekin í fullri sátt við forráðamenn félagsins. Biaðið/Kristmn Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Teitur Þórðarson er hættur með KR-liðið og við starfi hans tekur Logi Ólafsson. Þetta er sam- eiginleg ákvörðun beggja aðila og kemur í kjölfar slaks árangurs liðsins í sumar. Logi stjórnar KR út þetta leiktímabil og segir Jónas Kristinsson, formaður KR sports, að ákvörðun um framhaldið verði tekin í haust þegar deildinni lýkur. Gengi KR hefur verið afleitt í sumar. Margir höfðu trú á því að liðið myndi berjast um íslands- meistaratitilinn í ár, en liðið hefur aðeins unnið einn leik, gert fjögur jafntefli og situr í neðsta sæti Lands- bankadeildarinnar með sjö stig. Ákvörðun var tekin á stjórnar- fundi í gærmorgun þar sem báðir aðilar komu sér saman um að Teitur léti af störfum. Sjálfur segir Teitur að ákvörðunin hafi verið unnin í fullri sátt við stjórn KR. „Mér hefur fundist ég hafa fullan stuðning hennar fram að þessu. Núna fannst mönnum að það yrði eitthvað að ske. Það er talsvert af leikjum eftir og þetta er sjálfsagt rétti tímapunkt- urinn,“ segir Teitur. Hefur unnið frábært starf Þrátt fyrir afleita byrjun hafa nokkur batamerki verið á leik KR og er liðið ósigrað í fjórum leikjum. Þrátt fyrir það segir Jónas að þetta hafi verið það eina í stöðunni. „Það var einhver neisti sem hefur vantað milli liðsins og Teits og það er í raun okkar hlutverk að bregð- ast við. Ég vil ítreka að Teitur skilar hér mjög góðu búi. Hann hefur unnið frábært starf fyrir félagið." • Teitur skrifaði undir fimm ára samning við KR í fyrra og sagði hann við það tilefni að um lang- tímaverkefni að ræða. Hann segist hafa vilja klára það verkefni, en til að svo geti orðið verði árangurinn að vera þolanlegur. Það hafi hann því miður ekki verið. „Það er oft þannig þegar maður fer í gang með svona dæmi, þá getur það komið niður á skammtímaverkefninu.“ Ekki yfir neinu að klaga KR-ingar byrjuðu illa á Islands- mótinu í fyrra, en liðið tók við sér í síðari umferðinni og endaði í öðru sæti eftir sigur á Valsmönnum í lokaumferðinni. Teitur segist hafa haft fulla trú á að KR tækist að snúa við blaðinu undir hans stjórn í ár. „Við vorum allir saman hundfúlir þegar sem verst gekk í vor en svo vorum við nokkurn veginn búnir að snúa þessu við og komnir á ágætis ról fannst mér. Samt sem áður er ákvörðunin ekki svo umdeild miðað við gengi liðs- ins í sumar. Ég hef ekki yfir neinu að klaga og hef verið ofboðslega ánægður hjá KR. Ég ber engan kala til liðsins," segir Teitur Þórðarsson, fyrrum þjálfari KR. Lyfjaverslun Engin skoðun hafin Guðmundur Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Samkeppnis- eftirlitsins, segir að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort stofnunin muni að eigin frumkvæði hefja rannsókn vegna ásakana á hendur lyfsölu- risunum Lyfju og Lyfjum og heilsu sem komu fram í Blað- inu í síðustu viku. Guðmundur staðfestir við Blaðið að það hafi verið haft samband með fyrirspurnir og ábendingar en engar formlegar kvartanir hafi borist. Hann segir stofnunina að jafnaði fylgjast vel með þessum mark- aði vegna þeirrar samþjöpp- unar sem verið hefur á honum og sífellt komi inn á borð til starfsmanna hennar ábend- ingar og athugasemdir um lyfjamarkaðinn. SUBARU 200.000 kr. ferdapakki fylgir öllum nýjum Forester. Innifalid: Upphækkun, heilsársdekk og dráttarbeisli. Subaru Forester sameinar þad besta úr fólksbíl og jeppa. Hann er lipur í akstri eins og fólksbíll en hefur dráttar- og drifkraft á vid marga stærri jeppa. „Mér finnst stundum eins og ég sé á tveimur bílum. Ég kemst í þröng stædi innanbæjar en dríf sídan í torfærum á landsbyggdinni eins og ekkert sé." Forester liggur mjög vel á veginum en er samt med mun meiri veghæd en adrir jepplingar. Hann er á svipudu verdi og venjulegur fólksbíll þrátt fyrir ad vera med J58 hestafla vél, sem er mun meiri kraftur en í mörgum stærri jeppum. „Madur er ordinn of gódu vanur á Forester. Þad er í raun ótrúlegt hvad madur fær rosalega mikid fyrir lítid." Subaru hefur verid seldur á íslandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum vid þær erfidu og óvenjulegu adstædur sem hér eru hefur gert Subaru ad samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru midad vid höfdatölu en einmitt á íslandi. Þad ætti enginn ad kaupa sér bil án þess ad koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrdu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfulegustu bílakaup sem þú gerir. „Hey, þetta er ísland!" Forester 2.590.000,- Forester PLUS 2.890.000,- Forester LUX 3.190.000,- Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 Slmi 525-8000 Opið: Mán. 10-18, þri. - fös. 9 - 18 Umboðsmenn Akureyri Njarðvík Höfn I Hornafiröi um land allt 464-7940 421-8808 478-1990

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.