blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 10
10 FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JULI 2007
blaóiö
Loftslagsbrey tingar á Atlantshafi
Fellibyljir tvöfalt fleiri
Fjöldi fellibylja á Atlantshafi
hefur tvöfaldast síðustu hundrað
árin, samkvæmt nýrri rannsókn
breskra veðurfræðinga. I skýrsl-
unni segir að loftslagsbreytingar
orsaki hlýrri sjávarhita og breyt-
ingum í vindkerfum sem leiði svo
af sér aukinn fjölda fellibylja. Greint
er frá rannsókninni í vísindaritinu
Philosophical Transactions of the
Royal Society in London og segir að
breytingarnar á sjávarhita séu fyrst
og fremst af mannavöldum.
Greg Holland starfar hjá Veður-
fræðirannsóknastofnun Bandaríkj-
anna í Colorado-ríki í Bandaríkj-
unum og segir að minnihluti af
aukinni tíðni fellbylja geti talist af
náttúrulegum orsökum. „Rekja má
STUTT
• Óveður Nærri sjö hundruð
manns hafa látist af völdum
óveðurs í Kína í sumar. Flest
dauðsföllin hafa orsakast af
flóðum, eldingum og aurskriðum.
• Kosningar Shinzo Abe, forsæt-
isráðherra Japans, segist ekki
ætla að segja af sér embætti
þrátt fyrir að flokkur hans hafi
beðið mikinn ósigur í kosn-
ingum til efri deildar Japans-
þings um helgina.
• Flóð Tæplega 700 þúsund
manns hafa neyðst til að flýja
um sextíu prósent, jafnvel sjötíu
prósent, af þeirri aukningu sem við
höfum orðið varir við síðasta áratug-
unn beint til hlýnunar af völdum
losunar gróðurhúsalofttegunda. Sér-
fræðingar spá að fellibyljir á Atlants-
hafi verði sjö á þessu ári og af þeim
muni fimm ná mjög miklum styrk.
atlii@bladid.net
heimili sín vegna mikilla flóða í
norðurhluta Bangladess. Miklar
monsúnrigningar og bráðnun
jökla hafa valdið flóðunum, en
fleiri hundruð manns hafa látist í
flóðunum það sem af er sumri.
• Herlið Sérstakri neyðaraðgerð
breska hersins á Norður-írlandi
lauk á miðnætti eftir að hafa
staðið í 38 ár og verður öryggis-
gæsla nú að fullu í höndum lög-
reglunnar. Herliðið var sent til
Norður-írlands eftir að blóðug
átök kaþólikka og mótmælenda
brutust út árið 1969.
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á
WWW.N1.IS
FLOTTAR
FELGUR
UNDIR BÍLINN
Langatanga 1,Mos. s: 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538
Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777
Fellsmúla24, Rvk. s: 530 5700
Réttarhálsi 2,Rvk. s: 587 5588
Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470
N1 BÍLAÞJÓNUSTA
í þakkarskuld
við Bandaríkin
Gordon Brown segir Bandaríkin hafa haft forystu í baráttunni
gegn hryðjuverkum
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, fundaði með George
Bush Bandaríkjaforseta í Camp
David, sumarbústað Bandaríkjafor-
seta, í gær. Þetta var fyrsta opinbera
heimsókn Browns til Bandaríkj-
anna frá því að hann tók við emb-
ætti forsætisráðherra. Við komuna
til Bandaríkjanna sagði Brown heim-
inn allan standa í þakkarskuld við
Bandaríkin vegna forystu þeirra í
baráttunni gegn hryðjuverkum. For-
sætisráðherrann sagðist vilja vinna
að því að styrkja samband Bret-
lands við Bandaríkin enn frekar og
að sambandið við Bandaríkin væri
mikilvægasta tvíhliða samband
Bretlands við annað ríki.
Prinsipp-maður
Á sameiginlegum fréttamanna-
fundi í gær lýsti Bush Brown sem
hlýjum og hnyttnum „prinsipp-
manni“. Leiðtogarnir hétu sam-
vinnu á ýmsum hnattrænum
sviðum sem myndi byggjast á sam-
eiginlegum grundvallargildum ríkj-
anna. Brown fordæmdi hryðjuverka-
starfsemi og sagði þau vera glæp,
ekki málstað. Bush sagði bresk
stjórnvöld skilja mikilvægi þess að
Bandaríkin nái árangri í írak. „Af-
HEIMSOKN BROWN
Bush lýsir Brown sem „prmsipp-manm"
þeirra mála sem bar á góma voru
kjarnorkudeilan við Irana, alþjóða-
viðskipti, baráttan gegn losun gróð-
urhúsalofttegunda og ástandið í
írak, Afganistan, Darfúr-héraði og
Kosovo-héraði.
► Heimsókn Browns er sú
fyrsta til Bandaríkjanna frá
því að hann tók við embætti
forsætisráðherra Bretlands.
► Áfundinum lagði Brown sér-
staka áhersiu að markvisst
verði unnið að lausn deilunn-
ar í Darfúr-héraði í Súdan.
► Fréttaskýrendur telja ólík-
legt að samband Bush og
Browns verði jafn náið og
samband Bush og Blairs.
Brown er talinn formlegri
og fálátari í samskiptum en
forveri hans í starfi.
leiðingar mistaka í Irak yrðu stór-
slys fyrir Bandaríkin, og forsætisráð-
herrann gerir sér grein fyrir því.“
Brown kom til Bandaríkjanna á
sunnudagskvöld og snæddi kvöld-
verð í boði Bush í sumarbústað
forsetans. Formlegs fundar breska
forsætisráðherrans og Bandaríkja-
forseta í gær var beðið með tals-
verðri eftirvæntingu þar sem leitað
var svara við hvort eða hvernig
samband ríkjanna myndi breytast
eftir afsögn Tonys Blairs. Brown
og Bush funduðu ásamt David
Miliband og Condoleezzu Rice, ut-
anríkisráðherrum ríkjanna. Meðal
Erfið staða
Brown hélt einnig til Washington
í gær þar sem hann ræddi við þing-
menn í báðum deildum Bandaríkja-
þings. Eftir fundinn við Bush hélt
Brown til New York-borgar þar sem
hann mun funda með Ban Ki-Moon,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, og flytja ræðu á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna.
Fréttaskýrendur segja að Brown
sé í erfiðri stöðu þegar kemur að
sambandinu við Bush, þar sem
hann þarf að sannfæra Bandaríkja-
forseta um að samband ríkjanna
tveggja sé enn traust auk þess að
sannfæra kjósendur heima fyrir að
sambandið verði ekki með sama
hætti og það var undir stjórn Blairs.
Íraksstríðið og náið samband Blairs
og Bush eru fyrst og fremst talin
skýra dvínandi vinsældir Blairs síð-
ustu ár hans í starfi.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Filippseyjar
1.700 látnir í
hryðjuverkum
Hryðjuverkahópa íslamista á Fil-
ippseyjum hafa drepið yfir 1.700
manns í hryðjuverkaárásum
sínum frá árinu 2000, samkvæmt
nýrri skýrslu mannréttindasam-
takanna Human Rights Watch.
„Þessir vopnuðu öfgahópar hafa
sprengt rútur fullar af verkafólki,
mannmargar verslanir og ferjur
og flugvelli þar sem fólk hefur
beðið eftir ástvinum sínum,“
segir John Sifton, talsmaður
Human Rights Watch.
Flestar sprengjuárásirnar,
mannránin, aftökurnar og
skotárásirnar hafa átt sér stað á
Mindanao, Basilian, Jolo og fleiri
eyjum í suðurhluta Filippseyja. af
Þriðjungur þarf
neyðarhjálp
Nærri þriðjungur írösku þjóð-
arinnar þarf á neyðaraðstoð að
halda, samkvæmt nýrri skýrslu
Oxfam og fleiri mannréttinda-
samtaka sem starfa í írak. í
skýrslunni segir að íröskum
stjórnvöldum takist ekki að veita
um átta milljónum landsmanna
ýmsa grundvallarhluti svo sem
vatn, sorphreinsun, mat og
húsaskjól. Um fjórar milljónir
íraka hafa flúið heimili sín vegna
óaldarinnar í heimalandinu. Um
tvær milljónir manna eru á ver-
gangi innanlands og aðrar tvær
milljónir hafa flúið til nágranna-
ríkjanna, flestir til Sýrlands og
Jórdaníu. ai
Afganistan
Einn gíslanna
líflátinn
Talibanskir mannræningjar, sem
hafa haft 22 suður-kóreska gísla
í haldi, tóku einn gíslanna af lífi
ígær.
Tuttugu og einn gísl er því enn í
haldi mannræningjanna. Loka-
frestur afganskra stjórnvalda
til að ganga að kröfum talibana
rann út I gær. Skömmu síðar
sendu talibanar frá sér yfirlýs-
ingu þar sem þeir veittu stjórn-
völdum nýjan lokafrest til að
sleppa talibönum úr fangelsum
í skiptum fyrir lausn suðurkór-
esku gíslanna tuttugu og tveggja.
Nýi fresturinn rann út klukkan
hálfellefu í gærkvöldi að ís-
lenskum tíma. a