blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 11
blaöiö
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007
FRÉTTIR
11
ESB vill hindra lagningu vegar í Póllandi
Óttast umhverfisslys
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur leitað til Evrópudóm-
stólsins til að hindra lagningu vegar
í gegnum dýraverndunarsvæði
í norðausturhluta Póllands. Veg-
urinn liggur í gegnum dalinn Ro-
spuda, fram hjá bænum Augustow,
og er ætlað að bæta samgöngur frá
höfuðborginni Varsjá til ríkjanna
við austanvert Eystrasalt. Á svæð-
inu er að finna fjölda sjaldgæfra
plantna og dýra. Pólsk stjórnvöld
segja veginn valda minniháttar
umhverfisspjöllum.
Framkvæmdum var frestað fram
yfir varptímabil fugla, en til stóð
að hefja framkvæmdir að nýju á
morgun. Framkvæmdastjórn ESB
vill að framkvæmdunum verði
Rospuda-dalur í dalnum finnast fjöl-
margar sjaldgæfar plöntur og fuglar.
frestað þar til dómstóllinn hefur
úrskurðað hvort vegurinn standist
evrópsk umhverfislög og reglur. aí
Abbas heimsækir Rússland
Opinn fyrir að Rússar miðli málum
Mahmoud Abbas Palestínuforseti
hóf þriggja daga heimsókn sína til
Rússlands í gær. í heimsókn sinni
hyggst Abbas hvetja rússnesk stjórn-
völd til koma að friðarferlinu fyrir
botni Miðjarðarhafs og í samtali
við fréttamenn sagðist hann opinn
fyrir því að Rússar hefðu aðkomu
að því að miðla málum milli palest-
ínsku samtakanna Fatah og Hamas.
Rússar eru einu aðilar Kvartettsins
svokallaða sem hafa ekki slitið sam-
skiptum sínum við Hamas. Á frétta-
vef BBC segir að fréttaskýrendur
álíti sem svo að þessi afstaða Rússa
angri Abbas.
Palestínuforseti fundaði með Ser-
gei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa,
í gær og fundar með Vladimir Pú-
tín Rússlandsforseta í dag. Abbas
segir að hugsanlegt sé að koma á við-
ræðum milli Hamas og Fatah á ný
við sérstakar aðstæður. „Við höfum
að sjálfsögðu ekkert á móti því
að einhverjir taki að sér að miðla
málum milli okkar og Hamas, hvort
sem það séu vinir okkar Rússar eða
arabískir bræður okkar.“ ai
Fá makann í
heimsókn
Fangelsisyfirvöld í Mexíkóborg
leyfa nú samkynhneigðum
föngum að fá maka sína í heim-
sókn í fangelsin. Mismunun
vegna kynhneigðar var bönnuð
með lögum í Mexikó árið 2003
og var brey tingin samþykkt
eftir að samkynhneigður fangi
lagði fram kvörtun um að
maka hans hefði verið meinað
að heimsækja hann. Mannrétt-
indanefnd Mexíkóborgar sagði
samþykktina mikilvæga í bar-
áttunni gegn mismunun vegna
kynhneigðar. aí
Noregur
Englaprins-
essan veik
Ritari Mörta Noregsprinsessu
hefur staðfest að hún hafi tekið
sér tveggja vikna veikindafrí.
Hin 35 ára prinsessan vakti at-
hygli og sætti mikilli gagnrýni
í síðustu viku þegar hún sagð-
ist vera skyggn og geta talað
við engla. Að sögn ritarans
mun prinsessan ekki greina frá
hvað það er sem hrjáir hana og
skýri veikindaleyfið. aí
Spánn
Skógareldar
á Kanarí
Tugir húsa hafa brunnið til
kaldra kola í miklum skógar-
eldum á Kanaríeyjum. Bæði
ferðamenn og heimamenn
hafa neyðst til að yfirgefa
eyjarnar. Salvador Benjumea
segir í samtali við norska Can-
ariposten að alger ringulreið
ríki. „Mikill reykur liggur
yfir norðurhluta eyjarinnar.
Heimamenn hafa flúið heim-
ili sín og dvelja nú margir í
bænum Puerto Mogán. Veit-
ingastaðir dreifa matvælum
og hótel veita heimilislausum
ókeypis húsaskjól." a(
ALLIR ELSKA LAMBAKJÖT, IVIAÐUR
Kjötió skoriö i gúllasbita. Chilisósu, hvitlauk, karrii, oliu, limónusafa og pipar blandaó
saman i skál, kjötió sett út í og látió standa i kæli í a.m.k. 1 klst. Þá er kjötió tekió úr
leginum, en hann er geymdur. Kjötió saltaó og þrætt upp á teina. Útigrill eöa grillió
i ofninum hitaó og kjötió grillaó vió góóan hita þar til þaó hefur tekió góóan lit á
öllum hlióum og er steikt i gegn. Á meóan er kryddlögurinn settur i pott ásamt
tómatmauki. Hitaó aó suóu og látió malla i 5-10 minútur. Smakkaö til meó
pipar og salti og borió fram meó kjötinu.
. tX'n'iutvKi t*V
ELDAMENNSKAN ER LAMB AÐ LEIKA VIÐ
Chilikryddað lambakebab
■
www.lambakjot.is
800 g lambakjöt, beinlaust og fitusnyrt
150 ml mild chilisósa (t.d. Heinz)
3 hvitlauksgeirar, saxaóir smátt
1/2 tsk. karriduft
2 msk. olia
safi úr límónu
nýmalaóur pipar
salt
1 dós (250 ml) tómatmauk (purée)