blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 blaðió blaöi Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir ÞrösturEmilsson Elin Albertsdóttir Mikilvæg ákvörðun Ákvörðun Atlantshafsbandalagsins, sem Blaðið greindi frá á laugar- daginn, um að bandalagið taki að sér eftirlit með lofthelgi Islands, er eitt skref af mörgum í þeirri viðleitni að tryggja öryggi og varnir landsins við breyttar aðstæður. Ákvörðun bandalagsins er mikilvæg af ýmsum ástæðum. f fyrsta lagi er með henni viðurkennt að öll aðildarríki bandalagsins eiga rétt á að haldið sé uppi eftirliti með lofthelgi þeirra. Geir H. Haarde forsætisráðherra vakti athygli á því á leiðtogafundi NATO í Riga í fyrra að eftir brottför varnarliðsins væri f sland eina NATO-ríkið, þar sem væri ekkert eftirlit í lofti og enginn viðbúnaður á friðartímum. Vegna þess að loftrými bandalagsins væri skilgreint sem ein heild, væri þetta ekki aðeins vandamáf ísiendinga, heldur bandalagsins alls. Með þessari sam- þykkt fellst NATO á þetta með ísienzkum stjórnvöidum. í öðru lagi mun lofthelgiseftirlit NATO koma í veg fyrir að á hafsvæð- inu umhverfis Ísland myndist öryggistómarúm eftir að Bandaríkin hurfu héðan með varnarlið sitt. Vissulega er ekki hægt að líkja því eftir- liti, sem áætlun NATO kveður á um, við daglegt lofthelgiseftirlit í Eystra- saltsríkjunum. En innan NATO er líka lögð áherzla á að viðbúnaðurinn sé í samræmi við ógnina - og hvað sem sagt er opinberlega í NATO um samskiptin við Rússland, er ljóst að næstu nágrannar þess eru taldir þurfa meira eftirlit með lofthelgi sinni en þeir, sem fjær eru umsvifum rússneska heraflans. Herþotur NATO-ríkjanna verða hér á landi að minnsta kosti ársfjórð- ungslega - ekkert útilokar að það verði ekki oftar - og skilaboðin eru þess vegna skýr; NATO lætur sig lofthelgi fslands áfram varða. í þriðja lagi er samkomulagið í höfuðstöðvum NATO í Brussel ánægju- leg staðfesting á að viðleitni íslenzkra stjórnvalda til að styrkja varnir landsins eftir brottför varnarliðsins hefur borið árangur. Tvíhliða við- ræðurnar við fimm grannríki hafa annars vegar þjónað þeim tilgangi að greiða fyrir þessari nýju samþykkt og veita sömuleiðis að öllum lík- indum vísbendingu um það hvaða aðildarríki eru tilbúin að taka eftir- litið að sér. Það liggur nú þegar fyrir svart á hvítu að Noregur og Danmörk eru reiðubúin að taka ríkari þátt í vörnum íslands. Líklegt verður að telja að bæði Bretland og Þýzkaland hafi áhuga á nánara samstarfi. Bretland er í hópi næstu nágrannaríkja íslands og á ýmissa hagsmuna að gæta á haf- svæðinu á milli landanna. Þýzkaland er það NATO-ríki utan Bandaríkj- anna, sem mest hefur notað Keflavíkurflugvöll fyrir herflugvélar sínar. Innan við ári eftir brottför varnarliðsins eru öryggismál íslands í betra horfi en flestir leyfðu sér þá að vona. Það byggist m.a. á því að stjórnvöld hafa tekið sig saman í andlitinu og sýnt frumkvæði, sem árum saman hafði legið niðri vegna þess að aðrir báru ábyrgð á vörnum landsins. Ólafur Þ. Stephensen Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins LEIKUR & BORN ehf simi: <3M-534-ir>66 » www.leika.is info@>leika.is he/lf he/ Ur >#•!/' bór Sveitarfélög, Verktakar, Húsfélög. Nú getum við boðið ykkur hágæða íslensk útileiktæki sem vottuð eru af BSI á íslandi. Við ætlum að bjóða þér þessi frábæru leiktæki á sérstöku sumartilboði. t.d. BG 1000 BG 1012 BG 1020 BG 1012 Ijóna rennibraut með stiga, listaverð 165.199.00.- tilboðsverð 147.199,- BG 1000 tvöföld róla, listaverð 99.975.00.- tilboðsverð 89.000.00.- fáanlea í fleiri útfærslum. BG 1020 leikjahús m/verslun, listaverð 99.700.00.- tilboðsverð 87.700.00.- Einnig fjöldi annara tilboða. Eftirtalin leiktæki eru framleidd hjá okkur. Rólur-rennibrautir-bátar-bílar-sandkassar- klifurveggir-klifurnet-kastalar- jafnvægistæki-sveiflurár-fótboltamörk- Körfuboltastandar-leikjahús-vegasölt- gormatæki-bekkir-boltaveggir-leikjagrindur- borð í sandkassa og leikskófahlið. Gerid verðsamanburð, veijum íslensk já takk. MP Æ J7P//U// £/£/S~ Sterk staða fjármálafyrirtækjanna Nýlegar fréttir af hagnaði fjármála- fyrirtækja eru áhugaverðar fyrir margra hluta sakir. Hagnaðurinn er slíkur að erfitt er að fanga tölurnar. Þannig var hagnaður Kaupþings á fyrri hluta þessa árs um 47 milljarðar króna en til samanburðar mætti nefna að kostnaður við að reka Land- spítalann er um 32 milljarðar og um 12 milljarða kostar að reka alla fram- haldsskóla landsins á ári. Stærri en Adidas og Carlsberg Kaupþing er orðið stærra fyrir- tæki heldur en heimsþekkt fyrir- tæki á borð við íþróttaframleiðand- inn Adidas og bjórframleiðandann Carlsberg. Þrír stærstu bankarnir hér á landi, Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn eru allir á lista yfir 1.200 stærstu fyrirtæki heims. Ég hef leyft mér að álykta að ísland hafi eignast nýja und- irstöðuatvinnugrein sem er fjár- málageirinn. Hlutdeild fjármála- fyrirtækja til landsframleiðslu, þ.e. verðmætasköpunarinnar, nam um 9,3% á síðasta ári sem er t.d. talsvert meira en hlutdeild sjávarútvegsins sem nam um 5,9% sama ár. Saman- burðurinn sýnir glögglega að fjár- málageirinn er íslensku þjóðinni afar mikilvægur. Þetta er hæsta hlutfall á Norður- löndunum og er hlutdeild íslenska fjármálageirans að nálgast sum sterkustu fjármálaríki heims, eins og Bandaríkin og Bretland. Auknar skatttekjur afleiðing af vel- gengibankanna I fyrsta skipti í íslandssögunni vinna líklega fleiri núna í fjármála- geiranum en í sjávarútvegi eða um 8.000 manns. Þetta eru störf sem langflest voru ekki til í íslensku at- vinnulífi fyrir örfáum árum síðan. Það er margt jákvætt samfara þessari miklu upphyggingu íslensks fjármálalífs. Skatttekjur hins op- inbera aukast með vaxandi stærð og hagnaði þessara fyrirtækja og þannig er unnt að styrkja mennta- og velferðarkerfið sem því nemur. Uppbygging fjármálageirans hefur einnig leitt af sér að starfs- möguleikar íslendinga hafa gjör- breyst og tækifærum ungs mennta- fólks til að starfa innanlands fjölgað allnokkuð. Ágúst Ólafur Ágústsson Fjölbreytilegri atvinnumarkaður Bankarnir bjóða upp á störf sem fela í sér ótal tækifæri fyrir almenn- ing og þessi störf eru ekki lengur einskorðuð við ísland heldur er starfsvettvangurinn heimurinn allur. Bankarnir hafa breytt íslensku atvinnulífi nokkuð hvað varðar fjöl- breytni starfa, en í þessu sambandi verður einnig að hafa i huga nýleg störf í þekkingariðnaði og hátækni. Það er mikilvægt fyrir lítið land eins og ísland þar sem margt ungt fólk sækir sér menntun erlendis, að atvinnumarkaðurinn sé aðlaðandi til þess að tryggja að menntafólkið skili sér heim að loknu námi. Á íslenskum vinnumarkaði starfa nú um 160 þúsund manns en hjá íslenskum fyrirtækjum erlendis starfa alls um 200.000 manns, lang- flestir útlendingar. Þetta er mikil breyting á tiltölulega fáum árum. Staðreyndin er sú að það eru mörg tækifæri og spennandi mögu- leikar í íslensku viðskiptalífi um þessar mundir. Útrás íslenskra banka er farin að vekja gríðarlega athygli og umfram það sem við Is- lendingar hér heima gerum okkur oft grein fyrir. Og það er mikilvægt að stjórnvöld hafi skilning á þessu og stuðli að vænlegu starfsum- hverfi fyrirtækja með sanngjörnu og hagstæðu starfsumhverfi fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra. Erlend innrás verði markmið Það eru líkast til ekki áhöld um það að útrás okkar íslendinga gangi framar vonum. Næstu skref eru að mínu mati þau að stuðla að erlendri innrás fyrirtækja í íslenskt atvinnulíf. Það er umhugsunarvert hversu fá erlend fyrirtæki hafa fest sig í sessi hér á landi. Skráning Cent- ury Aluminum á First North Iceland markaðinn í sumar var ánægjulegt skref en félagið er eina bandaríska fyrirtækið sem er skráð í kauphöll OMX á íslandi. Það er hlutverk okkar að skapa þær aðstæður að erlend fyrirtæki sjái kosti í því að starfa á íslandi svo að tækifærunum fjölgi enn frekar, samkeppni aukist og verðlag lækki. Það erbaráttumál jafnaðarmanna um allan heim að auka tekjur og starfsmöguleika fólksins í landinu. Með því að hlúa vel að viðskiptalíf- inu er unnið að þessu markmiði. Höfundur er formaður Viðskiptanefndar Alþingis KLIPPT OG SKORIÐ Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður hefur af því áhyggjur að útvarpsstöðin Saga sé komin í hendur Frjálslynda flokksins. „Ég varð enn sannfærðari í trúnni á hlutdrægni stöðvarinnar þegar ég vaknaði í morgun og kveikti á útvarpinu og ætlaði mér að hlusta á morgunþátt Jóhanns Haukssonar, Morgunhanann. Því miður var Jó- hann ekki við hljóðnemann, heldur leysti annar geðþekkur dagskrár- gerðarmaður hann af, nefnilega hinn vörpulegi Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins," segir hann á heimasíðu sinni. Anna Ólafsdóttir Björns- son sagnfræðingur hefur haldið úti vinsældarkosningu um fallegasta íslenska orðið á bloggsíðu sinni. Kosningunni lauk á miðnætti í gærkvöldi en í gær voru orðin Ijósmóðir og kærleikur að berjast um fyrsta sætið. Kærleikur er reyndar ekki íslenskt orð heldur komið frá danska orðinu kærlighed. Bandaríkjamaður, sem hér starfaði i bandaríska sendi- ráðuneytinu, og hafði lært dálítið í íslensku, benti eitt sinn á í ræðu sem hann hélt að íslendingar ættu sérlega fallegt orð sem hann dáðist mikið að; það er orðið lesblindur. Ekki var það orð að sjá á lista hjá Önnu. Heitt mál er í uppsiglingu í golfheimum eftir Islandsmótið um helgina. Ólafi Má Sigurðssyni úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sem lenti í þriðja sæti, var vísað úr leik að keppni lokinni. Ólafur hefur skrifað mótsstjórn bréf þar sem hann fer fram á að frávísunin verði aftur- kölluð þar sem hún samræmist ekki golfreglum. Talið er að Ólafur muni kæra atburðinn verði mótsstjórnin ekki við bón hans. elin@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.