blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 blaðió FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net « Skýringin á mikilli fjölgun skattgreiðenda er hinn mikli aðflutningur fólks sem hefur einkennt íbúaþróun undanfarin ár. Skattgreiðendur aldrei fleiri ■ Álagður fjármagnstekjuskattur eykst um 34 prósent ■ Hlutfall íbúðalána af verðmæti íbúða lækkar Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga fyrir árið 2006 nemur 16,3 milljörðum króna og hækkar um tæplega 34 prósent frá því í fyrra. Greiðendum fjármagnstekjuskatts fjölgar hins vegar aðeins um tæp 10 prósent á milli ára. Þetta er meðal þess sem fram kom í fréttatilkynn- ingu sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í gær, í tilefni þess að álagn- ing og opinber gjöld á einstaklinga og þá sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni fyrir árið 2007 liggur fyrir. Aldrei meiri Qölgun framteijenda Fram kemur að heildarfjöldi fram- teljenda við álagningu er nú 253.911. Fjölgun milli ára hefur aldrei verið meiri, en framteljendum fjölgaði um 5,2 prósent og voru 12.567 fleiri en á síðasta ári. „Skýringin er hinn ENDURGREIÐSLUR ► Hinn 1. ágúst nk. koma til útborgunar 9,2 milljarðar króna eftir skuldajöfnun á móti ofgreiddum sköttum. ► Vaxtabætur eru stærsti hluti útborgunarinnar en útborgun þeirra nemur 4,3 milljörðum og fá þær um 50 þúsund aðilar. ► Fjórðungur barnabóta verða útborgaðar og nemur upp- hæð þeirra 1,6 milljörðum. ► Afgangurinn, um 3 millj- arðar króna, eru ofgreidd staðgreiðsla eða fyrirfram- greiddir skattar af tekjum síðasta árs. mikli aðflutningur fólks sem hefur einkennt íbúaþróun undanfarin ár,“ segir i tilkynningunni. Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 185,5 milljörðum króna og hækkar um 13,4% frá fyrra ári. Álagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í tekjuskatt ann- ars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga. Álagður fjármagnstekjuskattur er eins og áður sagði 16,3 milljarðar króna, og greiðendur fjármagns- tekjuskatts eru um 93 þúsund. Sölu- hagnaður skýrir drjúgan helming af skattstofni fjármagnstekjuskatts en arður og vaxtatekjur tæpan fjórð- ung hvor liður. Verðmæti eykst meira en skuldir Framtaldar eignir heimilanna námu rúmlega 2.800 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær aukist um 14,9 prósent frá fyrra ári. Fasteignir heimilanna töldust 2.052 milljarðar að verðmæti eða nær þrír fjórðungshlutar af heildareignum. Verðmæti fasteigna hafði aukist um 12,5 prósent milli ára en eigendum fasteigna fjölgaði um 1,2 prósent. Framtaldar skuldir heimilanna námu alls 1.113 milljörðum króna í árslok 2006 og höfðu þær vaxið um liðlega 21 prósent frá árinu 2005. Framtaldar skuldir vegna íbúðar- kaupa jukust minna eða um 17,8 prósent, og námu rúmlega 700 millj- örðum króna. Skuldir vegna íbúð- arkaupa námu 34,4 prósent af verð- mæti þeirra, og hefur það hlutfall lækkað nokkuð undanfarin ár, eins og lesa má um á forsíðu Blaðsins. Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á menn árið 2007 í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hér með auglýst að álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds og ákvörðun vaxtabóta og barnabóta, á árinu 2007 er lokið á menn, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla framangreindra laga. Álagning gjalda á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður auglýst sérstaklega. Álagningarskrár með gjöldum manna verða lagðar fram í öllum skattumdæmum þriðjudaginn 31. júlí 2007. Skrárnar liggja frammi til sýnis dagana 31. júlí til 14. ágúst 2007, að báðum dögum meðtöldum, á skattstofu hvers skattumdæmis, hjá umboðsmanni skattstjóra eða á öðrum þeim stöðum í hverju sveitarfélagi sem sérstaklega hafa verið auglýstir. Álagningarseðiar, sem sýna álögð opinber gjöld 2007, þ.m.t. tryggingagjald, vaxtabætur og barnabætur, hafa verið póstlagðir og/eða birtir á þjónustusíðu viðkomandi manns á vef skattstjóra; skattur.is. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda á menn, sem tilkynnt hefur verið um með álagningarseðli 2007, þurfa að hafa borist skattstjóra eigi síðar en fimmtudaginn 30. ágúst 2007. 31. júlí2007 Skattstjórinn f Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi, vestra, Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi, eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. MARKAÐURINN í GÆR • Mest viðskipti í kauphöll OMX voru með bréf Glitnis, eða fyrir tæpa 3,2 milljarða króna. • Mest hækkun varð á bréfum Atlantic Petroleum P/F eða 0,37%. Bréf HF Eimskipafélags íslands hækkuðu um 0,25% og bréf Teymis um 0,18%. • Mesta lækkunin var á bréfum Alfesca eða um 4,04%. Bréf FL Group lækkuðu um 3,85% og bréf Century Aluminum um 3,63%. • Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,193%. í lok dags stóð hún í 8.506,60 stigum. Langt er síðan hún hefur lækkað jafnmikið á einum degi. Hinn 18. júlí sl. stóð hún í 9.016 stigum. • Gengi íslensku krónunnar veiktist um 1,1% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan hækkaði um 0,79%. Þýska DAX- vísitalan hækkaði um 0,1% og breska FTSE-vísitalan lækkaði um 0,19%. Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá 0MX á islandi, 30. júlí 2007 Viðskipti 1 krónum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð (lok dags: Félög í úrvalsvísitölu verð breyting viðsk.verös viðskipta dagsins Kaup Sala ir Atorka Group hf. 9,10 -2,15% 30.7.2007 15 101.397.956 9,10 9,11 ▼ Bakkavör Group hf. 66,20 -2,65% 30.7.2007 44 447.170.825 66,20 66,50 ▼ Existahf. 37,55 -3,10% 30.7.2007 97 966.757.969 37,50 37,55 ▼ FLGrouphf. 27,50 -3,85% 30.7.2007 75 710.782.534 27,50 27,70 ▼ Glitnir banki hf. 29,50 -1,83% 30.7.2007 162 3.160.504.920 29,50 29,60 a Hf. Eimskipafélag Islands 39,70 0,25% 30.7.2007 25 69.512.423 39,70 39,75 ▼ lcelandair Group hf. 28,90 -0,86% 30.7.2007 10 173.868.500 28,90 28,95 ▼ Kaupþing banki hf. 1220,00 -2,40% 30.7.2007 156 1.887.065.107 1220,00 1226,00 ▼ Landsbanki Islands hf. 39,00 -1,02% 30.7.2007 91 444.509.034 39,00 39,20 Mosaic Fashions hf. 17,20 - 30.7.2007 1 156.520.000 17,00 17,20 ▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 21,05 -2,77% 30.7.2007 117 1.050.614.911 21,00 21,15 A Teymihf. 5,61 0,18% 30.7.2007 7 8.605.431 5,61 5,68 ▼ össurhf. 107,50 -1,83% 30.7.2007 8 4.537.148 107,50 109,00 Onnur bréf á Aðallista ▼ 365 hf. 3,27 -0,61% 30.7.2007 1 268.022 3,27 3,31 Actavis Group hf. 86,20 - 20.7.2007 - - 88,00 v Alfescahf. 5,70 ■4,04% 30.7.2007 8 26.390.889 5,75 5,79 ▲ Atlantic Petroleum P/F 1079,00 0,37% 30.7.2007 1 122.952 1070,00 1085,00 ♦ EikBanki 740,00 0,00% 30.7.2007 2 168.646 736,00 740,00 ♦ Flaga Group hf. 1,79 0,00% 27.7.2007 - - 1,79 1,81 ♦ Foroya Bank 248,00 0,00% 30.7.2007 4 3.346.484 248,00 250,00 ▼ lcelandic Group hf. 6,10 -0,97% 30.7.2007 1 3.050.000 6,05 6,14 ' Marelhf. 96,30 -1,03% 30.7.2007 8 19.688.641 96,30 96,40 Nýherji hf. 21,00 - 26.7.2007 - - 19,50 21,90 Tryggingamiðstöðin hf. 39,25 - 30.7.2007 1 157.000 39,25 39,65 Vinnslustöðin hf. 8,50 - 25.7.2007 - - First North á íslandi ▼ Century Aluminium Co. 3209,00 -3,63% 30.7.2007 3 29.097.000 3200,00 3243,00 HBGrandihf. 11,00 • 18.7.2007 - - 12,00 Hampiöjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - 6,80

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.