blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 15

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 15
blaóiö ÞRIÐJUDAGUR 31. JULI 2007 FRETTIR 15 Eimskip yfirtek- ur Versacold Eimskip Holdings Inc., dótt- urfélag Hf. Eimskipafélags íslands, og stjórn Versacold Income Fund, hafa sent frá sér tilkynningu um að öll skilyrði yfirtökutilboðs Eimskips í Vers- acold Income Fund hafa verið uppfyllt. Öll tilskilin leyfi fyrir yfirtökunni hafa verið veitt. Eimskip hefur fengið sam- þykki fyrir kaupum á um það bil 54,1 milljón hlutum, sem samsvara 93% af útgefnum og útistandandi hlutum eða 87% af útgefnum og útistandandi Versacold verður afskráð úr Kauphöllinni í Toronto eins fljótt og hægt er með tilliti til þeirra laga sem gilda þar um. mbl.is Grænt Ijós á sölu BTC Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins hefur gefið grænt ljós á sölu Novator Holdings, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, á hlut sínum í búlgarska símafyrir- tækinu BTC. Novator og Viva Ventures, fjárfestingararmur Advent International, seldu 65% í BTC til fjárfestingarfé- lagsins AIG Global Investment Group á rúmlega milljarð evra. ESB tók söluna til skoðunar af samkeppnisástæðum, en framkvæmdastjórnin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að salan hafi ekki neikvæð áhrif á samkeppni á fjarskiptamark- aði í ESB. Associated Press sagði frá. 66°Norður fer vestur 66°Norður hefur stofnað dótturfyrirtækið 66°North USA til að sjá um sölu og dreifingu á útivistarfatnaði fyrirtækisins í Norður-Am- eríku. Fyrirtækið hafði áður bandarískan dreifingaraðila, en hefur sagt upp samningum við hann og stofnað eigin skrif- stofu í New York. „Með þessu móti fáum við fulla stjórn á vörumerkinu okkar, verð- lagningu og staðsetningu á markaðnum,“ er haft eftir Hall- dóri G. Eyjólfssyni forstjóra í fréttatilkynningu. Fatnaður frá 66°Norður er nú seldur í fimmtán ríkjum. Matt- hew Hershey, framkvæmda- stjóri 66°North USA, segist bjartsýnn á framtíð fyrirtæk- isins í Bandaríkjunum. Haft er eftir Halldóri Eyjólfssyni að fleiri búðir verði opnaðar bráðlega í Evrópulöndum og „spennandi frétta“ af fyrirtæk- inu sé að vænta. Ódýrara að framleiða Vísitala framleiðsluverðs í júní 2007 var 118,2 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% (0,3%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 0,7% (-0,4%), sam- kvæmt frétt Hagstofu íslands. Frá júní 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,8%; sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 4,5% og afurðir stóriðju um 14,8% en matvæli hafa hækkað um 2,3%. mbl.is Ungur athafnamaður á Selfossi Byrjaði ferilinn á að kaupa sér fyrirtæki ívar Atlason er 23 ára markaðs- fræðingur sem hóf ferill sinn sem vinnandi maður á því að kaupa sér auglýsingafyrirtæki á Selfossi. „Eftir að ég hafði klárað markaðs- fræðinám í Kolding í Danmörku langaði mig að gera eitthvað fyrir minn heimabæ sem ég hef sterkar taugar til,“ segir Ivar. „Eg hafði búið alla ævi á Selfossi, utan þess tíma sem ég var í námi í Danmörku og í starfsþjálfun í Nýja-Sjálandi. Mig hafði lengi langað til að vera með eigin rekstur og á Selfossi þekki ég vel til, þannig að það var að öllu leyti tilvalið fyrir mig að byrja hér.“ Fyrirtækið sem ívar keypti heitir Fagform ehf. og sér um alhliða filmuísetningu, auglýsingahönnun, grafíska hönnun og skiltagerð. Það hafði verið starfandi á Selfossi í 13 ár áður en ívar keypti það. ívar segist ekki hafa fundist það ógvekjandi að kaupa sér fyrirtæki strax að loknu námi, enda henti það honum mjög vel að vera með eigin rekstur. „Það tók þó dálítinn tíma að venjast þess- ari tegund af rekstri. Ég hafði aldrei () R M G A S T O F A 1 Vl ' R Ð \ (var Atlason Hinn 23 ára gamli markaðsfræð- ingur vildi gera eitthvað í sínum fæðingabæ, og ákvað því að kaupa auglýsingafyrirtækið Fagform ehf. á Selfossi. Mynd/EgillBjarnason unnið við neitt þessu líkt áður, og Enreksturinngengurmjögvel, enda kúnnahópur minn kemur, vaxandi aldrei komið nálægt gerð auglýsinga. er Suðurlandið, þaðan sem stærsti þjónustusvæði." hiynur@biadid.net 1 ,r J « Jil 15 .og drifkerfi með 3 (!) valmöguleikum: ’ ■ v Framhjóladrif - Sjálfvirkt, sítengt fjórhjóladrif - Læst fjórhjóladrif Komdu í reynsluakstur upplifunin verður ánægju SX4 1.6 6LX handskiptur og SX4 2.0 GLX sjálfskiptur. Kíktu á suzukibilar.is SUZUKI ...er lífsstill! SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.