blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 17
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 25 Menning fyrir ungt fólk Nýtt menningarblað, Djöfla- eyjan, lítur dagsins ljós föstu- daginn 3. ágúst. Blaðið stílar sérstaklega inn á ungmenn- ingu og unga listamenn auk þess sem pólitískir pistlar og greinar ákveðinna ungmenna spila einnig stórt hlutverk. Ritstjórn skipar fjölbreyttur hópur af listaháskóla-, há- skóla- og menntaskólanemum auk nokkurra ungmenna sem hafa einfaldlega eitthvað að segja. Blaðið er götublað og því verður dreift frítt á alla staði í miðbænum sem og alla helstu almenningsstaði höfuðborg- arsvæðisins. Útlitið er ólíkt öðrum blöðum þar sem það byggist að mestu leyti upp á teikningum í bland við svart- hvítar gamaldags ljósmyndir og allt útlit blaðsins minnir á þriðja og fjórða áratuginn. Áætlað er að blaðið komi út einu sinni í mánuði. Tónaregn í Reykjavík Miðbaugur tekur enda Nú stendur yfir síðasta sýning- arvika myndlistarsýningar Önnu Lindar Sævarsdóttur og Lindu Rogn, „Miðbaugur Kringla - Leis- ure, administration and control", í sýningarýminu Gallerí Dvergur við Grundarstíg 21 í Þingholtunum. Sýningin er opin kl. 12-17 alla daga vikunnar til og með sunnudeg- inum 4. ágúst. Sýning Önnu Lindar Sævars- dóttur og Lindu Rogn er hluti af sýningarverkefninu „Miðbaugur Kringlan - Leisure, administration and control“ en í verkefninu taka þátt alls ellefu listamenn frá fimm Norðurlöndum. Áður vann hópur- inn saman að sýningunni „Hard Revolution/Byltingin er erfið“ á Potsdamer Platz-lestarstöðinni í Berlín 2006 en sýningarstjórar voru Mika Hannula og Frans Jacobi. Verkefnið er styrkt af KUNO, sam- starfsverkefni Eystrasalts- og Norðurlanda um menningarsam- skipti milli landanna. Vettvangur sýningarinnar er Kringlan og mið- bær Reykjavíkur en verkefnið er styrkt af Kringlunni, Listaháskóla íslands, Reykjavíkurborg, Guten- berg, Norrænu ráðherranefndinni og fleirum, Anna Lind Sævarsdóttir hefur að mestu fengist við innsetningar, þar sem hún vinnur með vídeóverk, málun og aðra miðla. Hún hefur í verkum sínum fengist mikið við jaðarmenningu og skuggahliðar samfélagsins. Linda Rogn er norsk myndlistarkona, búsett í Bergen. Hún vinnur aðallega með vídeó-inn- setningar, þar sem áhorfandinn kveikir á verkinu er hann nálgast það en í þeim verkum tengir hún skynjara við stýribúnað dvd-spilar- ans og er áhorfandinn nálgast það skynjar spilarinn hreyfinguna og myndin birtist. Miðbaugur Kringla Kringlan og miðbær Reykjavíkur eru vettvangur sýningarinnar. Lokatónleikar „Tónaregns í Reykjavík“ verða miðvikudag- inn 1. ágúst kl. 20:00 í Dómkirkj- unni til styrktar minningar- sjóði um Susie Rut Einarsdóttur Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda dúóið Para-Dís og hafa í sumar unnið hjá Hinu húsinu í Reykjavík að verkefni sem þau nefna „Tóna- regn í Reykjavík“. Nú er komið að lokahluta verkefnisins en það eru tónleikar til styrktar minningarsjóði um Susie Rut Einarsdóttur sem lést þann 18. júní síðastliðinn 22 ára að aldri. Vinir hennar standa að stofnun sjóðsins en stjórn sjóðsins, stofn- skrá hans og þau verkefni sem sjóðurinn hyggst beita sér fyrir verða kynnt í ágúst mánuði. Mun sjóðurinn einkum beita sér fyrir því að styðja við verk- efni sem annars vegar stuðla að forvörnum gegn notkun fíkni- efna meðal ungs fólks í áhættu- hópum og hins vegar verkefni til stuðnings þeim sem hafa lent á braut fíkniefna og vilja vinna sig út úr þeim. LAUGARDAGAR ORÐLAUSLÍFIÐ Auglýsingasiminn er 510 3744

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.