blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ2007 blaóiö LÍFSSTÍLLHEILSA heilsa@bladid.net Það er lifandi fræðsla um fæðingarferlið og fyrstu tímana eftir fæðinguna, tilfinn- ingalíf okkar á meðgöngunni, í fæðing- unni og á ungbarnaskeiðinu. Arangur fer eftir gæðum Hvaða Spirulina ert þú að taka? 29 vítamín og steinefni ■ 18 aminósýrur ■ Blaðgræna • Omega • GLA fitusýrur • SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lifræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu i likamanum. um Eydís segir að starf hennar byggist fyrst og fremst á námskeiðum í fæð- ingarundirbúningi. „Þetta eru litlir og nánir hópar þar sem konurnar hafa góða möguleika á að mynda stuðningsnet. Það er lifandi fræðsla um fæðingarferlið og fyrstu tímana eftir fæðinguna, tilfinningalíf okkar á meðgöngunni, í fæðingunni og á ungbarnaskeiðinu,“ segir Eydís og bætir við að einnig sé fjallað um til- finningalíf barnsins á þessum tíma og föðurins. Feðurnir með „Feðurnir eru með í þrjú skipti og þeir fá mikið pláss til að vera þeir sjálfir. Kennslunni er breytt svolítið þegar þeir koma, það er kaffi á könnunni og aðeins meira macho umhverfi. Svo erum við líka að gera jóga og læra líf- öndun, alla vega æfingar sem eru góðar fyrir brjóstamömmuna og æfingar sem er gott að gera eftir fæðinguna,“ segir hún og bendir á hve mikilvægt sé að konur myndi tengsl sín á milli. „Konur hafa þörf fyrir félagsleg og andleg tengsl við aðrar konur á meðgöngu og í því felst fyrst og fremst ávinningurinn af þessu. Þarna koma þær á stað þar sem er rosalega mikill tími fyrir þær, þar sem við hlustum á allt sem þær hafa að segja sem er mjög mik- ilvægt fyrir konur. Konur sækja mikið í þessa tegund af stuðningi," segir Eydís. Óhefðbundnar fæðingar Á undanförnum árum hefur færst í aukana að konur velji óhefðbundnar fæðingar svo sem vatnsfæðingar og heimafæðingar. Námskeið sem þetta getur komið þeim að góðum notum. „Ef konur langar að ná ákveðnum markmiðum í fæðingu eins og til dæmis vatnsfæðingu, heimafæðingu eða náttúrulegri fæðingu þá er voða- lega gott að vita hvað maður er að fara að gera. Það er erfitt að ákveða fyrirfram að maður ætli að fara verkjalyfjalaus í fæðinguna og hafa engin tæki og tól til að fylgja því eftir. Það er meðal annars það sem ég býð upp á, bæði með viðveru minni í fæð- ingu og eins með námskeiðunum það er að veita konum og mönnum þessi tól til að takast á við fæðinguna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt,“ segir Eydís. Þjónusta sem þessi hefur notið mikilla vinsælda í nágrannalöndum okkar að sögn Eydísar en sjálf lærði og hún og starfaði í Danmörku. Hún hefur þegar haldið eitt prufunám- skeið hér á landi en býður nú upp á al- mennt námskeið. „Það er talsverður áhugi, prufunámskeiðið gekk líka vel og konurnar voru ánægðar og það er náttúrlega alltaf besta auglýs- ingin. Þetta spyrst út,“ segir hún. Námskeiðið tekur samtals 39 tíma. Konurnar byrja að sækja námskeiðið frá 12. viku meðgöngu. Meðan nám- skeiðið stendur hittast þær einu sinni í viku í átta vikur og svo hittast þær aftur eftir að börnin fæðast. Eydís tekur undir að mjög mikilvægt sé að fylgja mæðrunum eftir að fæðingu lokinni. „Það er líka mjög mikilvægt að konurnar hafi samband eftir að námskeiðinu lýkur og undantekning- arlaust gerist það. Þær eru í miklu sambandi sín á milli,“ segir hún. Nánari upplýsingar um nám- skeiðin og þjónustuna má nálgast á heimasíðu Draumafæðingar draum- afaeding.net. Erfædd árið 1979 Hún á þrjú börn ► Hún stundaði nám í Danmörku Ahrifalaus umskuröur Umskurður hefur ekki áhrif á kynferðislega næmni karlmanna öfugt við það sem lengi hefur verið talið samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar kanadískra vísindamanna. Vísindamenn við McGill-háskóla í Montréal kom- ust að því að umskornir karlmenn fundu jafnmikið til snertingar og sársauka við kynferðislega örvun og þeir sem ekki höfðu gengist undir slíka aðgerð. Telja vísinda- mennirnir að ekki kunni að vera fótur fyrir þeirri staðhæfingu að munur sé á næmni í getnaðarlimi umskorinna karlmanna og þeirra sem ekki eru umskornir. Lengi hefur verið deilt um áhrif um- skurðar á kynferðislega næmni og vonast vísindamennirnir til að nið- urstöðurnar verði hvati til frekari rannsókna á þessu sviði. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í The Journal of Sexual Medicine. 40 manna hópur tókþátt í rannsókninni, helmingur þeirra hafði gengist undir umskurð en hinn helm- ingurinn ekki. Rannsókninfór þannig fram að mennirnir horfðu á erótískar kvik- myndir og voru við- brögð þeirra mæld með skynjurum í handlegg og getnaðarlim. Hitamynda- vélar voru enn fremur not- aðar til að mæla kynferðis- lega örvun. Dregur ekki úr næmni Umskurður hefur ekki áhrif á kynferðislega næmni karlmanna samkvæmt nýrri rannsókn. Gátlisti fyrir ferðalagið Fjöldi íslendinga verður á faralds- fæti um næstu helgi enda mesta ferðahelgi ársins. Þó að flestir snúi heilu og höldnu úr ferða- lögum helgarinnar er því miður alltaf eitthvað um slys og óhöpp meðal ferðamanna. Með góðum undirbúningi og fyrirhyggju -getur fólk dregið úr hættunni og aukið öryggi sitt á vegum úti. Blaðið tók saman stuttan gátlista fyrir fólk í ferðahug. ^ Gerðu ferðaáætlun þar sem fram kemur leið, áætlaður komustaður, komutími og aðrar mikilvægar upplýsingar. Skildu ferðaáætlunina eftir í öruggum höndum vina eða fjölskyldu. ^ Ef áætlunin breytist eftir að lagt er í hann ættirðu að láta að- 'Standendur vita ef þú hefur tök á. Hafðu með þér góðan fjar- skiptabúnað til að geta látið vita af ferðum þínum. Sjúkrakassi getur komið í góðar þarfir ef slys ber að höndum sem og kunnátta í fyrstu hjálp. Fylgstu vel með veðurspá fyrir ferðadagana og á meðan á ferðalaginu stendur. Gerðu ferða- váætlanir og hagaðu útbúnaði í samræmi við spána. ^ Ekki ferðast einn þíns liðs, sérstaklega utan alfaraleiða. Það segir fátt af einum. Áfengi er ekki góður ferðafélagi. Eydís Hentze undirbýr konur undir fæðingu Lifandi fræösla fæðingarferlið Eydís Hentze undirbýr verðandi mæður fyrir fæðingu á sérstökum námskeiðum. Einnig býðst hún til að vera þeim til halds og trausts í fæðingu og eftir hana. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Greinilegur árangur eftir nokkra daga inntöku Aukiö úthald, þrek og betri líöan Fæst í apótekjum og heilsubúðum. Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringarefnin. Lifestream þörungarnir eru ómengaöir, ræktaöir í ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. IS09001 • IS014001 " Undirbúningur fyrir fæðingu Eydís hjálpar mæðrum að undirbúa sig fyrir fæðinguna. Feð- ; urnir fá einnig að vera með í nokkur skipti. EYDÍS HENTZE

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.