blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 20
28
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ2007
blaóió
LÍFSSTÍLLFERÐIR
heilsa@bladid.net
Það verður 20 manna hópur sem
fer saman ásamt leiðsögumönnum
og tjaldar við árbakka og skoðar Ijón,
flóðhesta og fleiri dýr.
Haustferð til
St. John’s
Hópferðamiðstöðin TREX efnir
til haustferða til höfuðborgar
Nýfundnalands, St. John’s, í nóv-
ember. Fyrri ferðin er frá 17. til 21.
nóvember og sú seinni er frá 21.
til 26. nóvember.
St. John’s er lífleg og nútímaleg
borg á stærð við Reykjavík og á
sér ríka sögu sem ein mikilvæg-
asta hafnarborg á austurströnd
Norður-Ameríku. í boði eru
skoðunarferðir um borgina og
nágrenni hennar, meðal annars
á útsýnisstaðinn Signal Hill og
til Cape Spear, austasta odda
Norður-Ameríku.
Kjötsúpan er
alltaf vinsæl
Ferðaskrifstofan Vesturferðir,
sem sérhæfir sig í skipulögðum
ferðum um alla Vestfirði, býður
upp á hina árlegu kjötsúpuferð
á Hesteyri næstkomandi laugar-
dag, þann 4. ágúst, klukkan 16.
Farið verður á tveimur bátum
frá fsafirði og siglt norður að
Hesteyri. Þegar þangað er komið
tekur við vegleg kjötsúpa að hætti
staðarhaldara í Læknishúsinu og
upplífgandi gítarsláttur. Nánari
upplýsingar eru á slóðinni vestur-
ferdir.is.
Balkanskaginn
Nú styttist óðum í tveggja vikna
ferð Heimsferða til fimm landa
fyrrum Júgóslavíu. Farið verður
til Króatíu, Slóveníu, Bosníu og
Hersegóvínu, Serbíu og Svart-
fjallalands í fylgd sérfróðra
staðarleiðsögumanna og íslensks
fararstjóra. Flogið er út 26. ágúst
og heim aftur þann 9. september.
Ungur laganemi á leið í hjálparstarf
fátækum börnum
Hönnu Borg Jónsdóttur
hefur dreymt um að
heimsækja Afríku frá
því að hún var barn, og
sá draumur rætist eftir
nokkrar vikur.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Hún mun starfa sem sjálfboða-
liði í Höfðaborg í Suður-Afríku í sjö
vikur og ætlar svo í ferð til Namibíu,
Botsvana, Sambíu og Simbabve. „Ég
fer á vegum Stúdentaferða sem eru
í samstarfi við bresk hjálparsam-
tök og verð annaðhvort að vinna á
barnaspítala Rauða krossins eða á
nokkurs konar leikskóla eða heima-
vist fyrir fátæk börn, en það kemur í
ljós eftir að ég er komin út á hvorum
staðnum ég verð starfandi," segir
hún. Eftir að sjö vikna hjálparstarfi
lýkur tekur við safaríferð á jeppum
um óbyggðir fjögurra landa. „Það
verður 20 manna hópur sem fer
saman ásamt leiðsögumönnum og
tjaldar við árbakka og skoðar ljón,
flóðhesta og fleiri dýr. Ég er mjög
spennt að fara í þá ferð og einhverra
hluta vegna er ég ekkert kvíðin og
ekki foreldrar mínir heldur. Þau
hafa alltaf vitað að ég ætlaði að gera
akkúrat þetta þannig að þau eru
bara spennt fyrir mína hönd.“
Ekki hægt að fresta ferðinni
Hanna er laganemi í Háskóla
íslands en lætur það ekki hindra
sig í að skella sér suður til Afríku.
„Ég kem aftur heim 20. nóvember
og ætla þá að reyna að lesa eins
mikið og ég get og taka eitthvað af
prófum, þannig að ég tek mér ekki
alveg frí í skólanum. Reyndar á ég
eftir að sjá til hvernig þetta gengur
allt saman og það kæmi mér ekki
á óvart þótt ég þyrfti að taka sum-
arpróf næsta sumar. í versta falli
frestast útskriftin um eina önn eða
svo en það breytir litlu fyrir mig.
Hins vegar tel ég mig alls ekki geta
frestað þessari ferð þar til eftir út-
skrift, enda gæti það endað með
því að ég færi aldrei, enda verð ég
kannski komin með barn þá eða
annað slíkt, maður veit það ekki,“
segir hún.
Vinna með börnum heillar
Aðspurð segist Hanna vera spennt-
ust fyrir starfinu sjálfu í Höfðaborg.
„Mér finnst vinna með börnum vera
mjög heillandi og þó svo að ég sé
ekki búin að fastnegla hvað ég ætla
að gera í framtíðinni væri ég til í að
nota lögfræðinámið til þess að fara
síðan í framhaldsnám í mannrétt-
indum með áherslu á réttindi barna.
Starfið þarna úti snýst mikið um að
veita börnunum stuðning og hlúa
að þeim. Læknarnir og hjúkrunar-
fræðingarnir á spítalanum eru mjög
önnum kafnir við að sinna sínum
störfum þannig að það kemur í hlut
sjálfboðaliðanna að vera börnunum
innan handar, veita þeim félagsskap
og hjálpa þeim með lærdóminn og
annað slíkt. Við erum vöruð við
því að starfið geti reynst andlega
krefjandi, enda oft um mjög fátæk
og/eða veik börn að ræða, og undir
það verðum við að vera búin.“
Fínt að ferðast ein
Hanna fer ein síns liðs í þetta ferða-
lag en segist hafa frétt að tvær aðrar
íslenskar stelpur, sem hún þekkir
ekki, verði líka í hópnum. En hún
kvíðir því ekkert að fara ein. „Ég
er búin að venjast því að ferðast ein
og finnst það ágætt. Reyndar hef ég
oft verið að heimsækja ættingja og
vini erlendis, en ég er allavega vön
að vera á flugvöllum og svoleiðis ein
míns liðs. Það er fínt, því að þá fær
maður frið með sjálfum sér og getur
FERÐALANGURINN
Hanna hefur lokið einu ári í
lögfræðinámi við HÍ.
Hún hefur búið í eitt ár í
Þýskalandi og tvö sumur í
Frakklandi.
> Hanna er 21 árs.
Hún er Hafnfirðingur.
Hanna er ballerína og leikur
á fiðlu.
Hún er tvíburi.
líka farið á tíma sem hentar manni
sjálfum þótt það henti kannski ekk-
ert endilega öðrum,“ segir hún að
lokum.
Dýr teboð á hótelum Bretlands
Fínustu teboðin vinsæl
Teboð eru ekki urelt Drekka
te fyrir 9 þúsund krónur.
Margir ferðalangar telja fín síð-
degisteboð tilheyra fortíðinni í Bret-
landi. Sú er þó ekki raunin þar sem
slík boð tíðkast enn þar í landi hjá
fólki úr öllum stéttum. Algengt er
að slíkboð séu haldin í heimahúsum
en hótel og veitingastaðir bjóða
mörg hver upp á rándýr síðdegiste-
boð sem eru ekki síst vel sótt af efn-
uðum túristum þó svo að einstaka
innfæddir slæðist þar einnig með.
Þessi boð eru reyndar svo vinsæl
að ekki er óalgengt að þau þurfi að
bóka með allt að sex vikna fyrirvara,
þrátt fyrir að verðið á tekatlinum sé
ekki skorið við nögl.
Á Ritz-hótelum kostar teketill-
inn til dæmis heil 72 pund, eða
9000 íslenskar krónur og er litlu
dýrari en í testofum Brown’s hót-
elanna þar sem hann kostar 65
pund. Óvíða er hann þó dýrari en
í Dorchester-hótelinu í London
þar sem hann kostar 85 pund, sem
nemur um 10.600 íslenskra króna.
Á öllum þessum fínni testofum
er einnig boðið upp á landsins
fínustu kökur og brauðmeti og
algengt er að verðið á veglegum
síðdegisteboðum hlaupi á hundr-
uðum punda.