blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 21
blaöió
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007
íslenskir skátar fjölmenna á aldarafmæli skátahreyfingarinnar
Skátar endurnýja heitin
I tilefni af 100 ára afmæli skáta-
hreyfingarinnar eru um 43.000
skátar og starfsmenn víða að úr heim-
inum staddir á skátaútilegu skammt
frá Stansted á Englandi. 430 íslend-
ingar eru á svæðinu og er íslenski
hópurinn sá næststærsti frá öllum
Norðurlöndunum, en einungis Finn-
arnir eru fjölmennari. Ármann Ingi
Sigurðsson, sem er í fararstjórn ís-
lenska hópsins, segir stemninguna
vera frábæra. „Við komum hingað á
föstudaginn og settum upp tjöldin.
Hér er stíf og fjölbreytileg fræðslu-
og skemmtidagskrá og gott veður.
Reyndar rigndi á okkur eina nótt og
myndaðist smá leðja, en við létum
það ekkert á okkur fá, enda ættum
við íslendingar að vera vanir því að
gista í tjöldum í alls kyns veðrum.
Þátttakendur frá nokkrum Afríku-
þjóðum lentu reyndar í smá vand-
ræðum þar sem þeir voru með lítil
og léleg tjöld, en fyrir utan þessa
einu rigninganótt hefur verið yfir
20 stiga hiti og sól,“ segir hann.
Baden Powell, stofnandi skáta-
hreyfingarinnar, fór í fyrstu skáta-
útileguna í Brownsea-eyju við
England fyrir 100 árum, og af því
tilefni verður sérdagskrá þar þann
í.ágúst með tveimur þátttakendum
frá hverju landi. „Tveir íslenskir
skátar voru sendir þangað snemma
í morgun ásamt þátttakendum
frá hinum 157 löndunum sem taka
þátt. Þar verður lítið skátamót þar
sem haldið er upp á afmælið, en
það verður einnig haldið upp á það
hér á stóra hátíðarsvæðinu og vítt
og breitt um heiminn," útskýrir
Ármann.
Eftir að hópurinn er búinn að gista
í tjöldum í 10 nætur fara skátarnir í
fjögurradagaheimagistinguhjáskáta-
fjölskyldum víða í Bretlandi og síðan
aftur heim. „En það er nóg að gerast
hér á svæðinu og krakkarnir labba
á milli tjalda og finna sér sjálfir eitt-
hvað skemmtilegt að gera. Hver þjóð
er með sína dagskrá, og til að mynda
erum við með kennslu í því hvernig
á að skrifa rúnir, syngja vikivaka og
búa til Þórshamra úr tini ásamt því
sem við fræðum um jólasveinana. 1
tvo daga er síðan farið út fyrir hátíð-
arsvæðið, annars vegar til þess að
sigla á bátum og kanóum úti á vatni
og hins vegar til þess að fara út fyrir
svæðið og kynnast skátastarfi á svæð-
inu,“ segir Ármann að lokum.
Þess má geta að skátar um allan
heim munu endurnýja skátaheitið
klukkan 8 að morgni í.ágúst, og
vegna þessara tímamóta verður opið
hús í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ
123 i Reykjavík, frá klukkan 6.30, en
auk þess sem skátaheitið verður end-
urnýjað verður bein útsending frá
Brownsea-eyju.
Nýr orlofsstaöur
í Mexíkó
Spænska fasteignaþróunarfélagið
Grupo Mall hefur fjárfest ríflega 300
milljónir evra í uppbyggingu nýs
orlofsstaðar, Campeche Playa, Golf,
Marina & Spa Resort, í Mexíkó. Stað-
urinn nær yfir 3.000.000 fermetra
svæði við strandlengju Mexíkóflóa
og er stærsta verkefni sinnar teg-
undar sem verið er að byggja upp í
Campeche-héraði. Svæðið státar af
2,6 kílómetra langri hvítri strand-
lengju, 3.000 glæsiíbúðum, fimm
stjörnu hóteli, miðbæ, snekkjuhöfn
fyrir um 150 báta, Hawksbill-sæ-
skjaldbökusafni og 18 holu Jack
Nicklaus Signature-golfvelli sem
nær yfir mýrasvæði, vötn og marg-
víslegan gróður, auk þess sem hann
liggur að hluta til meðfram strönd-
inni og miðbænum.
Undanfarinn áratug hafa yfirvöld
í Campeche unnið að því að gera
héraðið að umhverfisvænum ferða-
mannastað, og þarf öll uppbygging
á þessum hluta Yucatan-skagans að
standast strangar gæðakröfur hvað
varðar umhverfi og náttúru, enda
eru þar feiknastór gróðrasvæði sem
eru friðuð með öllu vegna mikil-
vægis þeirra fyrir andrúmsloftið.
Tvö mannvirki innan héraðsins
hafa verið sett á heimsminjaskrá UN -
ESCO. Annars vegar höfuðborgin
Campeche, vegna þess hversu vel
sögulegum minjum frá nýlendu-
tímabilinu hefur verið haldið við,
og hins vegar Maya-pýramídinn Ca-
lakmul, en hvergi í Mexíkó finnast
fleiri fornminjar Maya-ættbálksins
en í Campeche.
Verkefnið „Campeche Playa, Golf,
Marina & Spa Resort“ var hannað
með verndun á lífríki plantna og
dýra að leiðarljósi auk þess sem rann-
sóknarstöð á svæðinu mun hafa yfir-
umsjón með umhverfisvernd, og þá
sérstaklega uppbyggingu Hawksbill-
sæskjaldbökustofnsins, en sú teg-
und er í útrýmingarhættu og verpir
við ströndina.
Umfang framkvæmdanna er um-
talsvert og skapast um 5.000 störf
tímabundið á meðan á byggingu
stendur og 2.500 framtíðarstörf.
Campeche -ströndin Áhersla er lögð á
umhverfisvernd I uppbyggingu svæðisins
Atvinnublaðið fylgir blaðinu alla laugardaga
hagkvæmur kostur til að ná til fólks
inn á 96.000 heimili
110.000 eintök
f \
w
f 1
m <4
r '.r
ISK. X I '/** ~ M f" \ „ í tJSk B \
, 9 .. rf"*H
Hringdu núna:
Vallý 510 3728
vally@bladld.net
..... Kata 510 3727
kata@bladid.net