blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 25

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net Annar leikmaður hélt því fram að hann hafi verið hýddur með rafmagnskapli þar til tók að blæða og dýft í úrgangs- tank til að flýta fyrir sýkingu. SKEYTIN INN Eiður Smári Guðjohnsen er að íhuga framtíð sína hjá Barcelona og útilokar ekki að gangatilliðsvið West Ham. Þetta er haft eftir föður hans og umboðsmanni, Arnóri Guðjohnsen, í breskum fjölmiðlum í gær. „Ég hef heyrt af áhuga West Ham en það hafa engar viðræður átt sér stað enn þá. Þetta er eitthvað sem Eiður mun íhuga, ekki síst í ljósi þess að eigendumir em íslenskir,“ segir Arnór. Eiður Smári hefúr lítið getað æft með Barcelona í sumar og segir Arnór að hann einbeiti sér fyrst og fremst að ná fullri heilsu.„Barcelona hefur alltaf sagt honum að framtíðin sé í hans höndum og þeir muni ekki standa í vegi hans ef hann vill fara.“ Bjarni Þór Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir varalið Everton sem vann Kendal Town í æfingaleik á laugardag. I viðtali við Blaðið um helgina sagðist Bjarni vonast til að fá tækifæri með aðalliðinu á leiktíðinni og ef marka má Andy Holden, þjálfara varaliðsins, er Bjarni Þór á réttri leið. „Bjarni spilaði frábærlega og verðskuldaði mörkin. Yngri strákarnir geta lært mikið af honum því hann hefur frábært viðhorf,“ sagði Holden um Bjama. afael Benítez, 1-^ knattspymu- JL Vstjóri Liverpo- ol, er búinn að vera á eyðslufylleríi í sumar og hefúr keypt þá Fernando Torres, Ryan Babel, Yossi Benayo- un og Lucas Leiva. Þá vill hann ólm- ur fá Gabriel Heinze frá Manchester United, þrátt fyrir að Alex Ferguson hafi sagt að hann fari ekki til Liverpo- ol Nú hefur Rick Parry, stjórnarfor- maður Liverpool, sagt að von sé á fleiri leikmönnum áður en félaga- skiptaglugganum er lokað í lok ágúst. Birmingham hefurkeypteg- ypska miðju- manninn Hossam Ghaly frá Totten- ham. Ghaly náði sérekkiástrikmeð Tottenham á sfðustu leiktíð, en Steve Bruce, knattspyrnustjóri Birming- ham, hefur fulla trú á þessum 25 ára miðjumanni. Kaupverðið er 3 milljón- ir punda, eða um 375 milljónir króna. Brasilíska goð- sögnin Pele segir að Dav- id Beckham hegði sér meira eins og poppstjarna en fót- boltamaður. Skorar hann á Englendinginn að einbeita sér eingöngu að fótboltanum, annars nái hann ekki árangri með Los Angeles Galaxy. „Ég þekki gæðin í bandarísku deildinni og áhorfendur eiga eftir að krefjast mikils af honum sem helstu stjömu liðsins. Af reynslu minni með New York Cosmos af dæma, ráðlegg ég honum að undir- búa sig vel fyrir leiki,“ segir Pele. FÖSTUDAGAR LÍFSSTÍLLBÍLAR blaðió Auglýsingasíminn er 510 3744 Óvæntur sigur Younis Mohmoud, fyrirliði (raks, fagnar sigrinum ásamt félögum sínum. Fótbolti er samein- ingartákn Iraka 9 Sigur íraks í Asíubikarnum vekur vonir um frið Uppreisnarmenn óttast jákvæð áhrif Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Það er sérstakt andrúmsloftið í Irak þessa dagana eftir að lands- liðið vann eftirminnilegan sigur á Sádi-Arabíu í úrslitaleik Asíubikars- ins. Karlar og konur á öllum aldri þustu út á götur landsins, veifuðu íraska fánanum og sungu söngva til heiðurs landi og þjóð. Sigurinn hefur vakið vonarneista í hjörtum þjóðar sem hefur mátt þola linnu- lausar þjáningar í áratugi. „Stjórnmálamennirnir hafa að- skilið okkur en þessir íþróttamenn hafa sameinað okkur. I dag hef ég gleymt öllu öðru og hugsað aðeins um lrak,“ sagði Tereq Yassin, 24 ára gömul sjíta-mær, í miðjum fagnaðarlátunum. Ógnarstjórn Uday Hussein Þótt írösk knattspyrna sé ekki hátt skrifuð á alþjóðavettvangi, þá er íþróttin svo vinsæl í landinu að það jaðrar við trúarbrögð. En íþrótta- andinn hefur ekki alltaf svifið yfir vötnum í hinni fornu Mesóp- ótamíu. Þegar Saddam Hus- sein réði ríkjum ílrakgerði hann son sinn, Uday, að æðsta manni íþróttamála í landinu. Uday Hussein þótti jafnvel enn harðari en Saddam og stjórnaði hann íþróttum i land- inu með harðri hendi. Fótbolti var í miklu uppáhaldi hjá honum og var hann sífellt með puttana í störfum landsliðsþjálfaranna. Þá beitti hann leikmenn landsliðsins hörðum refs- ingum ef það stóð ekki undir hans væntingum. Hann fylgdist með öllum leikjum liðsins og skráði ná- kvæmt bókhald yfir þá refsingu sem hver og einn leikmaður hlaut írak varð um helgina Asíu- meistari í fyrsta sinn. Liðið vann Sádí-Arabíu í úrslitaleik, 1:0. Younis Mah- moud skoraði sigurmarkið. Þjálfari liðsins er Brasilíu- maðurinn Jorvan Vieira. W Liðið er í 80. sæti á heimslista FIFA. fyrir frammistöðu sína. Pressan á leikmönnum liðsins var gríðarleg, því oftast nægði jafntefli ekki til að komast hjá refsingu. Leikmenn pyntaðir Leikmaður sem lék illa í tapleik átti von á þriggja daga fangelsisvist. Leik- maður sem gerði sig sekan um slæm varnarmistök eða brenndi af víta- spyrnu þurfti að þola allt að mánaðar fangelsisvist. „Við hugsuðum um refs- inguna í hverjum einasta leik,“ sagði Hisham Mohammed, fyrrum lands- liðsmaður. Hann var í liði íraks sem tapaði fyrir Japan ( Asíukeppninni. Uday lét liðið dúsa í fangelsi í 16 daga og rakaði hárið af leikmönnum. Þetta þótti vel sloppið því refsing- arnar gátu verið æði harðar. í fang- elsum voru fótboltamenn reglulega barðir í fæturna með prikum og þeir píndir með vatni. Armbeygjur og sprettir í 12 tíma samfleytt var nánast daglegt brauð og þá lét hann leikmann sparka í steypubolta eftir að hann hafði gert mistök í undan- keppni HM 1994. Annar leikmaður hélt því fram að hann hafi verið hýddur með rafmagnskapli þar til tók að blæða og dýft í úrgangstank til að flýta fyrir sýkingu. 1 höfuð- stöðvum Ólympíunefndarinnar í írak fundust einnig pyntingartæki frá miðöldum sem talið er að Uday hafi notað á leikmenn landsliðsins. Bjartara framundan Það hefur margt breyst til betri vegar í íraskri knattspyrnu eftir að Saddam var steypt af stóli. Áður fyrr fengu leikmenn ekki að leika með liðum utan Iraks og var Saith Hussein, sem í upphafi 10. áratugar- ins var gulldrengur íraskrar knatt- spyrnu, meinað að fara til Barcelona. Sífellt fleiri leikmenn leika nú sem atvinnumenn í erlendum liðum, flestir í Miðausturlöndum. í stjórnartíð Udays voru nær allir leikmenn Iraks súnní-múslimar sem komu frá Saddam-borg, út- hverfi Bagdad sem nú heitir Sadr. 1 dag fá leikmenn úr öðrum þjóð- arbrotum, þar með taldir Kúrdar, tækifæri á að spreyta sig með lands- liðinu. Á þann hátt hefur fótboltinn náð að sameina ólík trúarbrot sem berjast á banaspjótum. Skammvinn gleði En það eru ekki allir jafn hrifnir af velgengni landsliðsins. Uppreisn- armenn í írak óttast hversu vel landsliðið nær að sameina ólík þjóð- arbrot. Þess vegna hafa þeir beint spjótum sínum að leikmönnum Iiðs- ins og í fyrra bárust leikmönnum þess morðhótanir. 1 síðustu viku létust yfir 50 manns í sprengjutil- ræðum sem framin voru í miðjum fagnaðarlátum í Bagdad, eftir að liðið hafði lagt Suður-Kóreu að velli í undanúrslitum Asíubikarsins. Sigur íraska landsliðsins og við- brögð þjóðarinnar sýna fram á hversu mikilvægu hlutverki fótbolt- inn gegnir sem sameiningartákn. - En íbúar í írak óttast að gleðin sem ríkt hefur í landinu verði skamm- vinn og að sigurinn falli í skuggann af enn frekara ofbeldi. „Iraska liðið ^ hefur fært okkur gleði og sigurtil- finningu. Við erum í skýjunum. En gleðin varir ekki lengi því á morgun færa stjórnmálamennirnir okkur deilur og sorg,“ segir Mohammed Hussein, kennari i Bagdad.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.