blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007
blaðið
SAMbio.is .
SAMám
[575 8900
jANEFONDA UNDSAY LOHAN FHJOTY HUFPMAN
GeorgiaRule
/ÁLFABAKKA
GE0RGIA RULES M. 3 -5:30- 8 -10:30 7
NANCYDREW ld.8 7
HARRY P0TTER 5 kl.1 - -4-5-7-8-10 10
HARRY POTTER 5 ki. 2 - 5 - 8 DI6ITAL 10
HARRY P0TTER5 kl.2-5-8 VIP
EVAN ALMIGHTY kl . ? - ' - 6 L
BLIND DATING kl.8 10
SHREK3 WÍS1.TA1 kl. -4-6 l
SHREK3 .' ír&u TAi kl. 10:30 L
OCEAN'S 13 kl. 10:10 7
SáMHÉ&kl / KRINGLUNNI
GE0RGIA RULES kl. 3-5:30-8-10:30 7
HARRY P0TTER 5 kl. 2:30-5:20-8-10:40 10
SHREK3M/ ÍSLTAL kl.2-4-6 i.
SHREK 3 W Fnsfai ÍAL kl.8 i.
PIRATES 3 M.10
SáMSiMÍ!* / AKUREYRI
NANCY DREW M.8 7
GE0RGIA RULES kl. 8-10:20 7
HARRY P0TTER 5 kl. 1 -5-10 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl.2-4 L
SHREK 3 M' EnskuTAL kl. 6 L
/ KEFLAVÍK
SIMPS0NS -HSKr íaí M. 2-4-6-8-10
NANCY DREW M.8
SHREK3M/-ÍSLTAL M.2
HARRY POTTER 5 kl.5-10
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
mp Hann á að vera að stíga upp í vélina í
þessum töluðu orðum. Ég reyndar bíð
eftir því að fíflið hringi í mig eftir klukku-
tíma og segi að hann hafi misst af vélinni.
16.000 íslendingar sáu
Simpsons um helgina
Islendingar flykktust í stórum
stíl á The Simpsons Movie um helg-
ina og rúmlega 16.000 manns sáu
myndina á þremur dögum. Um var
að ræða langstærstu sýningarhelgi
ársins og fimmtu stærstu sýning-
arhelgi allra tíma á íslandi og því
óhætt að fullyrða að íslendingar
eru hrifnir af hinni mjög svo furðu-
legu Simpson-fjölskyldu. Þá hefur
myndin fengið fínustu dóma hér
á landi og þá sérstaklega íslenska
talsetningin með Erni Árnasyni
fremstan í flokki.
Á Móti Sól heldur tónleika með Toby Rand á Gauknum
Hita upp fyrir Þjóðhátíð
Hljómsveitin Á Móti Sól
hitar upp fyrir Þjóðhá-
tíð ásamt Toby Rand á
Gauknum annað kvöld.
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@bladid.net
Hljómsveitin Á móti sól mun
halda upphitun fyrir Þjóðhátíð
í Vestmanneyjum miðvikudags-
kvöldið, í.ágúst. Söngvarinn Magni
fer þar fremstur í flokki en auk hans
hyggst Ástralinn Toby Rand úr Rock
Star Supernova trylla lýðinn.
„Þetta er smá partý sem Tuborg
og FM957 eru að halda fyrir Þjóðhá-
tíð. Þar sem við í hljómsveitinni Á
móti sól erum nú langskólagengnir
þjóðhátíðargestir og skemmtendur
er vel við hæfi að við hitum upp
fyrir hátíðina með pompi og prakt,“
sagði Magni Ásgeirsson í samtali
við Blaðið í gær. Þegar blaðamaður
náði af honum tali naut hann veð-
urblíðunnar í traktor á Borgarfirði
eystri, en var í þann mund að halda
suður til þess að sækja Toby Rand
á völlinn.
„Hann á að vera að stíga upp í
vélina í þessum töluðu orðum. Ég
reyndar bíð eftir því að fíflið hringi
í mig eftir klukkutíma og segi að
hann hafi misst af vélinni. Hann
nefnilega missti af fyrri vélinni sem
fór í morgun. Það reyndar hentaði
mér ágætlega þar sem ég sit ber að
ofan í 25 stiga hita ofan á traktor
hérna í sveitinni og hefði ekkert
nennt að sækja hann.“
Toby Rand spenntur fyrir Eyjum
Magni segir Toby fullan tilhlökk-
unar fyrir Þjóðhátíð í Eyjum, en
hann hefur lengi falast eftir boði á
hátíðina frá Magna.
„Ég var búinn að segja Toby mikið
frá Þjóðhátíð í Eyjum og hann hefur
lengi nöldrað í mér um að fá að
koma. Það var því ákveðið, enda
lífgar það líka upp á tilveru okkar
drengjanna að fá hann með. Hann
verður þarna í VlP-tjaldinu hjá Tu-
borg að skemmta en svo er aldrei að
vita nema við hleypum honum upp
á svið líka,“ segir Magni, sem gerir
u
f £
. é* , - *•*' Jr'™*
T:/
. néfc- W' • '*
Kemur aftur á Klakann Rokkarinn To-
by kemur hingað til lands í annað skiptið,
en síðast kom hann og söng við mikinn
mannfögnuð á Rock Star-tónleikunum í
Laugardalshöllinni.
ráð fyrir góðu upphitunarkvöldi á
Gauknum á morgun.
„Þetta verður bara létt og leikandi
upphitunarpartí. Við ætlum ekki
að vera of formlegir og höfum til
dæmis ekki mikinn tíma til að æfa
með Toby. Við munum því spila
bara það sem okkur finnst skemmti-
legt án þess að hafa alltof mikið
planað og hafa bara gaman af þessu.
Ef ég þekki okkur og Toby rétt þá
spilum við örugglega helling af
U2 lögum, þar sem við fílum lögin
þeirra mikið, og eins lög úr Rock
Star og Á móti sól. Svo bara fáum
við okkur Tuborg, verðum hressir
og spilum allan andskotann. Þetta
ætti því ekki að geta klikkað!“
Vonbrigði
Sjónvarpsþættirnir um Simpson-
fjölskylduna voru dægurbylting á
sínum tíma. Alveg eins og Radíus-
bræður, Tvíhöfði og 70 Mínútur.
Þetta var eitthvað nýtt og framandi,
öðruvísi og ögrandi. Því er ekki
laust við að maður gerði miklar
væntingar til kvikmyndarinnar
um þessa gulu víðómatýpu hins
bandaríska heimilisföður. En því
miður stóð myndin ekki undir vænt-
ingum. Kvikmyndin er orðin að því
sem þættirnir hafa frá upphafi gert
grín að. Hún er væmin, fjölskyldu-
væn og klisjukennd. Auðvitað
voru ágætis brandarar inn á milli,
en boðskapurinn um fjölskyldu-
gildi og umhverfisvernd, sem lesa
mátti milli línanna, var vægast
sagt viðbjóðslegur. Simpson-þætt-
irnir þóttu djarfir á sínum tíma og
gerðu óspart grín að bandarískri
menningu á mjög kaldhæðinn og
lúmskan hátt í gegnum allan þann
fjölda persóna sem prýddu þáttinn.
Þegar maður hugsar aftur, man
maður í raun lítið eftir atriðum sem
skartar Apu, Mr. Burns, Krusty og
fleiri góðum persónum. Auðvitað er
erfitt að gera öllum jafn hátt undir
höfði, en sjálf Simpson-fjölskyldan
var of lengi í sviðsljósinu, sem gerði
myndina einsleita og bitlausa. Þætt-
irnir eru þekktir fyrir að vaða úr
einu í annað með söguþráðinn, en
í myndinni er hann frekar einfaldur
og fyrirsjáanlegur og upptekinn af
pólitískri rétthugsun. En ég vona að
Hómer geri betur næst, á meðan sný
ég mér að South Park.
The Simpsons Movj
Leikstjóri: David Silverman "
1.5. j
Sýnd: Smárabíó, Laugarásbíó, Si^jA
Háskólabíó, Regnbog- 'W/
anum, Borgarbíó •*'*
Akureyri, Sambíóin
Keflavík
!H.
E i „r*
Eftlr Trausta Salvar Krlstjánsson
traustis@bladld.net
KVIKMYNDIR ★ ★
Hætt við
myndbandið
Óþekktaranginn Britney Spears
kom í veg fyrir upptökur á nýju
myndbandi sínu <3
við lagið Get Back
í síðustu viku.
Söngkonan mun
hafa látið öllum
illum látum
meðan á upp-
tökum stóð og fór
það ekki betur en
svo að leikstjórinn stöðvaði tökur
eftir tíu klukkustunda skammar-
legt puð. Honum mun ekki hafa
litist á blikuna þar sem Britney
virtist lífsins ómögulegt að læra
danssporin auk þess sem söng-
konan var greinilega drukkin.
Eru menn nú almennt á því að
ansi mikið þurfi til að koma svo
ferli prinsessunnar verði bjargað,
en hún hefur sem kunnugt er
misstigið sig allverulega undan-
farna mánuði.
Ferlinum
stefnt í voða
Vandræðin herja greinilega ekki
bara á einkalíf leikkonunnar
Lindsay Lo-
han. Nú hefur
ferlinum verið
stefntívoða líka,
en mislukkuð
frammistaða
leikkonunnar í
kvikmyndinni I
KnowWhoKilled
Me hefur gert það að verkum að
myndin þykir lítið annað en stór-
slys. Gagnrýnendur segja þetta lé-
legustu mynd Lindsay til þessa og
virðast flestir á því að hér sé á ferð-
inni kandídat í hóp verstu kvik-
mynda þetta árið. „Engin orð geta
raunverulega lýst viðbjóðnum. Þú
verður að sjá myndina til að trúa
því,“ sagði gagnrýnandi Daily
News og það sama var uppi á ten-
ingnum í öðrum tímaritum.
Moss til
Bandaríkjanna
Ofurfyrirsætan Kate Moss hyggst
flytjast til Los Angeles og hefja
þar nýtt líf, en
hún sleit nýlega
sambandi sínu
við eiturlyfja-
neytandann Pete
Doherty eftir að
hann gerði sér
aðeins ofdælt við
brasilíska fyrir-
sætu ekki alls fyrir löngu. Nánir
vinir Moss hafa ráðlagt henni að
flytjast til Bandaríkjanna þar sem
hún muni eiga auðveldara með að
láta lítið fyrir sér fara.
Spenna
eftir barni
Fjölskylda söngkonunnar Pink
virðist leggja hart að henni varð-
andi barneignir
og hafa bæði
kærastinn, Carey
Hart, og móðir
hennar hvatt
hana til að setja
í ofninn. „Carey
vildi að við
eignuðumst barn
þegar við hittumst fyrst. En ég
sagði honum að það væri aðeins
of fljótt og hann var alveg sáttur
við það. En núna er það mamma
sem lætur mig ekki vera með
þetta og ég tala varla við hana án
þess að hún minnist á að verða
amma.“